Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Jólakveðja - fréttaannáll

 

Harpa Katrín 028

Kæru vinir

Nú er árið 2007 senn á enda og erum við búin að eiga viðburðaríkt ár.   Fyrri partur ársins einkenndist á ferðum á milli Húsavíkur og Reykjavík hvort sem það var með flugi, bíl eða huganum  einum J

Húsmóðirin náði loksins árunum 30 í sumar og viku síðar var hún flúin land og skellti sér í nám til Englands nánar tiltekið í Torquay og tók þar 4 vikna enskunám í virtum skóla þar.  Þetta var að mestu góður tími, dvaldi hjá alveg yndislegum hjónum og kynntist fullt af fólki. Elvar og Sólveig komu svo í heimsókn til hennar og hittumst við í London og áttum alveg yndislegan tíma.  Sólveig Birna alveg blómstraði við alla þessa athygli og mun eflaust aldrei gleyma þessari ferð.

 Harpa Katrín ásamt 3 öðrum íslenskum krökkum fóru sem fulltrúar Íslands í alþjóðalegar sumarbúðir 11 ára barna (CISV) til Mississippi í USA ásamt frábærum farastjóra honum Arnór Fannari.  Mikil vinna hófst strax í mars við undirbúning að ferðinni, við útbúðum ótrúlega flottan bækling um Ísland og krakkanna sjálfa og það kemur náttúrulega fæstum á óvart að móðirin á heimilinu sá um föndurleiðbeiningar.  Ferðin hófst svo 22. Júní og stóðu krakkarnir og þar með Harpa Katrín sig alveg frábærlega bæði í ferðalaginu til og frá Íslandi og allan tímann úti. Við erum því ótrúlega stolt af því að eiga svona frábæra fulltrúa frá Íslandi til að kynna land og þjóð. Það voru svo stoltir foreldrar sem biðu spenntir eftir krökkunum okkar í Keflavík 21. Júlí og krakkarnir sem komu til baka voru mun þroskaðri og reynslumeiri eftir þessa dvöl úti.  Það verður nú að koma fram hér að það fyrsta sem Harpa Katrín sagði við Sólveigu Birnu systur sína við komuna í Keflavík var „þú verður að fara út næst, þetta er sko enga stund að líða og geggjað gaman, ég fékk enga heimþrá" Núna á Harpa Katrín yfir 40 vini frá 10 löndum víða úr heiminum sem hún heldur reglulega samband við.   Að sjálfsögðu mun Sólveig Birna fá tækifæri til að fara í CISV sumarbúðir 2008. 

Í haust hafa þær systur æft skíði og stundað söngnám við söngskóla Maríu Bjarkar, en enginn önnur en Regína Ósk kennir þeim þar með miklum árangri.

Sólveig Birna (10 ára) fór í eina viku í sumarbúðir í Ölver í sumar og átti þar mjög skemmtilega tíma, kynntist þar krökkum og fékk að prófa ýmislegt merkilegt eins og að sofa í hengirúmi.  Þar fékk hún líka verðlaun fyrir snyrtilegasta herbergið, en hefur nú ekki alveg flutt þá lægni heim til sín Winken hún er nú alveg hörkudugleg þegar hún tekur sig til.  Þaðan fór hún beint á Húsavík til Elvars og Dagnýjar að eigin ósk.  Þau áttu alveg frábæran tíma og var ýmislegt brallað eins og sund, veiða, hjólatúrar og fékk skvísan að keyra bíl alveg sjálf að hennar sögn J Sólveig er mjög barngóð og hefur mjög gaman að því að passa börn.

Elvar leggur mikla vinnu í að vinna að forvarnarstarfi og einn liður af því var að halda úti tónlistarsmiðju á Húsavík fyrir krakka á aldrinum 12-17 ára með mjög góðum árangri. Elvar endaði tónlistasmiðjuna svo með að gefa út geisladiskinn „Lífið er leikur" en þar er að finna 10 lög eftir Elvar sjálfan í flutningi ungmenna í tónlistarsmiðjunni og gesta þeirra.  Þess má geta að Guðni bróðir hans sá alfarið um upptökur og aðstoðaði einnig með margt annað og er honum þakkað kærlega fyrir alla þá hjálp. Áfram heldur Elvar úti heimasíðunni líf án áfengis en þar er að finna ýmsan fróðleik sem allir geta nýtt sér.

Dagný skvís kvaddi Bestabæ á Húsavík í ágúst þegar fjölskyldurnar tvær ákváðu að tími væri kominn til að sameinast í Reykjavík.  Skvísan flutti viku á undan pabba sínum þar sem hann hafði nóg að gera við söng, söngæfingar og tónleika.  Dagný var yngsti nemandinn á tómstundabraut við KHI þegar hún sat þar tíma í heila viku, en bið var á því að hún kæmist í leikskólann vegna manneklu.  15. september byrjaði hún á leikskólanum Jöklaborg og á deildinni Heimaseli, þar er hún alveg að brillera, á marga vini og þar af einn kærasta.Wink Dagný varð 5 ára í september og finnst henni rosalega gaman að leika sér með petshop, í dúkkuleik og fara í tölvuna. Það má ekki gleyma „Dóru" æðinu sem er hér á bæ, en þær yngri systur elska Dóru og vilja helst eiga allt sem tengist henni. Hún hefur einnig ásamt stóru systrunum verið í söngskólanum og stendur sig vel þar,  feimnin er öll að fara og þar bakvið leynist eflaust söngstjarna framtíðarinnar.

Rebekka verður 3 ára í janúar, hún stendur sig ótrúlega vel.    Hún á Þórdísi sína í Leikskólanum sem er atferlisþjálfari hennar, Þórdís er alveg einstök kona sem vinnur með Rebekku af einstökum áhuga og fagmennsku.  Teymisfundir eru haldnir sirka einu sinni í mánuði en þá hittast allir þeir sérfræðingar og ráðgjafara sem koma að henni  í leikskólanum  ásamt móður. Þarna er farið yfir stöðuna og rætt hin ýmis mál sem tengjast Rebekku.  Við gerum plan fyrir komandi mánuð sem þarf að fara eftir bæði í leikskóla og heima.  Rebekka byrjaði í talþjálfun í haust og gengur það mjög vel og fengum við alveg að heyra það hvað Rebekka á góða mömmu, sem hefur lagt mikla vinnu í að gera lífið hennar sem auðveldast.  Þjálfunarnámskeið fyrir Rebekku var haldið í október og var báðum foreldrum Rebekku boðið ásamt starfsfólki Heimahlíð.  Mamman og  Elvar sóttu þetta námskeið sem haldið var á Greiningarstöðinni, en Elvar hefur reynst Rebekku mjög vel og verið tilbúin að setja sig inní allar hennar þarfir.  Við erum þakklát fyrir að Reykjavíkurborg samþykkti námskeiðið, enda var það sér miðað af þörfum Rebekku og okkar sem komum að henni.  En allt þetta hefur hjálpað Rebekku til aðlagast lífinu á sem auðveldastan hátt. Rebekka er mjög nákvæm og þarf allt að vera í föstum skorðum í kringum hana.  Hún veit alveg hvernig hún vill hafa hlutina, stundum skipta millimetrar henni máli Smile Rebekka er púsl sérfræðingur og er hún farin að púsla allt að 70 kubba án aðstoðar og hefur púslað 100 púsl með smá aðstoð.  Hún er því langt á undan í þroska á þessu sviði miðað við jafnaldra hennar.  Uppáhald hennar þessa daganna er að sitja á gólfinu og brjóta saman flíkur, það gerir hún með einstakri nákvæmni og lægni, horn í horn og allt slétt og fínt Smile Hún elskar líka „Dóru" teiknimyndastelpuna sem kennir krökkum ensku, en það er mikið kappsmál hjá henni að vera í einhverju „Dóru" hvort sem það eru nærföt, sokkar eða annað.

Nú foreldrarnir hér á bæ hafa nóg að gera, húsbóndinn byrjaði að vinna á meðferðarheimilinu Hlaðgerðarkoti í ágúst og líkar það mjög vel, hann er einnig að syngja með kirkjukór Seljakirkju og spilar og syngur með lofgjörðabandi.

Húsfreyjan var að klára næst síðustu önn sína í námi sínu í KHÍ og vann vettvangsnám á meðferðarheimilinu Stuðlum sem rekið er af barnaverndarstofu fyrir börn á aldrinum 12-18 ára, í framhaldi af því var hún ráðin í vinnu og vinnur þar sem ráðgjafi í afleysingastöðu.  Næsta önn mun einkennast að B.A ritgerðar skrifum og er stefnt að útskrift 21. Júní 2008 og getur hún þá loksins titlað sig sem tómstunda- og félagsmálafræðing. Stefnan er svo tekin á áframhaldandi nám og þá líklega Master í Náms- og starfsráðgjöf, svo ekki er nú skólagangan búin hér á bæ. 

Brátt hækkar á lofti himnesk jól,
þá hlýnar í byggðum við Norðurpól,
Megi hátíðin kæra ást og frið ykkur færa ,
fögnuð í hjarta og gleðileg jól

 
Elvar, Elísabet, Harpa Katrín, Sólveig Birna, Dagný og Rebekka


jólin koma

jólin koma brátt!!!

Jájá allt að verða reddý hér, ótrúlegt en satt hehe!!!

Er hér að reyna að koma mér af stað í að gera eitthvað, en langar ósköp mikið að fara að sofa.  Elvar búinn að tuða hérna í mér að jólin komi þó svo að ég framkvæmi ekki þetta sem ég á eftir að gera haha  jájá jólin koma, jólin koma brátt!

Annars bara gott hér að frétta.  Rebekka bara súper glöð með lífið,  reyndar mikil þörf fyrir að segja frá einhverjum "atburðum" sem við könnumst nú ekki við hérna á þessu heimili... jájá líklega eru þetta einhverjir draumar sem hún er að segja frá.   Svo er það nú páfagaukaeftirhermu þörfin á efsta stigi þessa daganna, sem sumir fjölskyldumeðlimir geta nú orðið ansi þreytt á!  en geta svo hlegið af því líka :-)

Sendi ykkur eflaust kveðju á morgun já og ég gleymdi að segja það hérna, núna þurfið þið góðu vinir ekkert að staðfesta í emaili, tók það af.  Svo kommentið á alveg að virka haha

Gleðileg jól

kveðja Elísabet


jólabros

Jæja núna brosi ég hringinn.   Góðar fréttir á hverjum degi svo það er ekkert hægt annað en að brosa yfir því Smile 

Rebekka er búin að fá úthlutað 7 tíma í stuðning á dag, sem ég er að sjálfsögðu súper ánægð með.  Loksins verður hægt að fara að vinna með hana tvisvar sinnum á dag og Þórdís okkar fær tíma í undirbúning o.s.frv.

Annars bara góðar fréttir hér, Rebekka snappaði aðeins á leiðinni í leikskólann í morgun.   Hún var nefnilega ekki alveg sátt við að fá ekki að leiða mína hægri hönd, en Dagný var á undan að ná hægri hendinni og því átti Rebekka bara að leiða mína vinstri.  Hún höndlaði það ekki og tók kast yfir því.  Ég ákvað að ganga áfram og halda áfram að leiða Dagný hægri megin.  Rebekka fékk því ekki að ráða, en það tók mig svo ansi langan tíma að koma henni inní leikskólann og mætti mín því þangað öfugsnúin.   Ég áttaði mig svo reyndar á því eftirá að hún leiðir mig alltaf hægri megin, velur alltaf þá hendi og svo ræddi ég við þjálfara hennar og þá gerir hún það sama þar.  Svo þetta er nú eitthvað sem við þurfum að brjóta upp og breita, verður verkefni jólanna :-)

Læknirinn okkar á GRR vill að Rebekka fari sem fyrst til Ólafs okkar Thor og láta hann meta störurnar hennar.  Við eigum einnig að skrá niður þessar störur og þá aðdragandan hvað hún varir lengi og hvernig hún er eftirá.   Það væri líka frábært ef við myndum ná þessu á video.   Þetta er bara samt svo erfitt því þetta er svo fljótt að líða, manni finnst þetta reyndar vera í óratíma, en þetta er ekki nema kannski hálf mínúta kannski mesta lagi uppí mínútu. Svo við verðum að hlaða video vélina og vera með hana miðsvæðis og reyna að taka upp þessar störur.  En líklega verður hún send í CTið aftur og þá verður vonandi hægt að segja að þetta sé ekkert til að hafa áhyggjur af. 

Það er bara svo óhugnanlegt að horfa á barnið sitt svona, dettur út og er eins og hún sé í VÍMU, sést nánast bara hvítan og augun rosalega skrítin, svipurinn á henni líka.

Annars talaði hún ekki um annað í dag en litla barnið í maganum á Rósu, svo ætli þetta verði ekki umræðuefnið næstu mánuðina :-)  Emma kom líka í heimsókn til okkar með sína bumbu svo það var kannski til þess að ýta undir umræðuna um litla barnið í bumbunni hehe

Annars bara súpergott að frétta hér, hlökkum til jólanna.  En ástin mín verður víst lítið heima, syngjandi hér og syngjandi þar haha

kv Elísabet 


Eldhúsið búið

Jájá mín tók bara eldhúsið í gegn,  ALLA skápa innan sem utan og ofaná líka :-)  Ohhhh hvað ég er fegin að þetta er búið........  Enda sigur hjá mér að klára svona á einum degi!!

Annars gleymdi ég nú alltaf að láta ykkur vita að veskið fannst svo ég fékk mína lykla sem ég óttaðist mest um!

Hér er að koma smá jólastress í kroppinn.   ætlaði mér að vera búin með miklu meira, en ég þarf einhvern veginn alltaf að vera á síðustu stundu með allt saman,  ótrúlegt!!

Langar að byðja ykkur að senda hlýjar hugsanir til Kristínar og fjölskyldu og ekki gleyma Ragga sem þarf að fá styrk til að stíga upp enn einu sinni.   ohhhh skelfilegt að þurfa alltaf að ganga í gegnum það aftur og aftur að missa barnið sitt.  Ég finn svakalega mikið til með foreldrum og fjölskyldum fíkla.

Núna er bara að koma sér í háttinn og vakna sprækur á morgun!

kveðja Elísabet


Komin í jólafrí

ohhhh hvað það er góð tilfinning.  LOKSINS kom ég öllu frá mér tengt skólanum, ótrúlega ánægð með mig :-)

Annars ansi margt búið að ganga á hér á bæ, svona eins og gerist mjög reglulega.  Það mætti halda að karlmenn fara á túr, ég get svo svarið það hahaha

Stelpurnar mínar fóru af stað í morgun í skólann, enda skólinn bara í næstu götu, en jájá mamman fékk nú MÓRAL dauðans, þegar þær hringdu og höfðu bara fokið og endað á TRÉ, en þær komust heilar og húfi heim til vinkonu Sólveigar sem á heima hérna nánast í næsta húsi. 

Þær fengu svo að vera veðurteftar þar, því við vildum ekki senda börnin í skólann.  Mamma hennar Unnar var svo elskuleg að keyra þeim heim um 11 leytið og við erum bara búnar að vera að dunda okkur hérna í dag.  Litlu skvísurnar fóru ekki heldur í skólann svo það voru bara allir heima.

Rebekka skvísan mín er orðin slöpp, komin með einhverja hitavellu og búin að vera frekar lítil í sér í dag.  En það sem er svo merkilegt við hana Rebekku að hún verður svo SKÝR og svo DUGLEG þegar hún er með hita.  Það er eins og allt fari bara í gang.  Ekki það að hún er sko snillingur þessi dama,  en þá finnum við mun á henni þegar hún er lasin, er einhvern veginn balleseraðri.

Teymisfundurinn var á miðvikudag og voru störurnar hennar ræddar ásamt öllu öðru.  María vill ræða þetta við Ingibjörgu lækni því kannski er þetta flogastörur :-(  Við verðum því líklega sendar aftur í CT og vonum að sjálfssögðu að allt komi vel út úr því.  En ég neita því ekki að sjálfsögðu var mér brugðið við þetta.  En ég veit líka að skvísan er bara snillingur og vona ég að þessar störur hennar verði bara hættar og einhver önnur ástæða fyrir þeim. 

Það á líka að athuga með fæturna á henni sem eru óvenjusnúnir alltaf, hún er svo liðug en samt svo klunnaleg í hreyfingum.  Sjáum til hvort við verðum sendar í sjúkraþjálfunina sem er búið að bíða aðeins með.

Skvísan er líka farin að púsla púsluspilin sem eru til fyrir elstu krakkanna,  Það eru farnar ferðir inná stóru deildina til að ná í púsl fyrir hana því púslin á hennar deild eru bara svo létt Smile

Hún er með púsl hérna heim sem eru 60 stykki og fer hún alveg leikandi með það, en Dagný skvísa sem er nú ekki mikið fyrir púsl finnst það frekar flókið.

Leifði börnunum að baka myndakökur í dag og OMG, það fór allt á HVOLF!!! ég bölva þessu í hvert einasta skipti sem ég leifi stelpunum að baka kökur, ég hugsa alltaf það sama, næst KAUPI ég piparkökur og leifi þeim að skreyta!!  Núna er allt út í fitu og ógeði og það á eftir að skreyta kökurnar!!

 


Hér var eitt útkall

Klæðningin er að losna, eitt járn farið og annað sem slæst við blokkina og ekkert er hægt að gera.  Komu hér 3 björgunarsveitamenn og hristu bara hausinn, því það væri bara stór hættulegt fyrir þau að fara upp, rokið er svo mikið.   Svo hér stöndum við bara vaktina og bíðum eftir að járnið gefi sig og losni svo við getum farið að sofa róleg.  Hættan er nefnilega heilmikil og verðum við því bara að BÍÐA, en þetta blessaða járn ætlar ekkert að gefa sig, er aðeins byrjað að rifna en það bara gefur sig ekki.

Börnin öll vöknuð og geta ekki farið að sofa úr hræðslu, hávaðinn er svo mikill þegar járnið slæst svona.  En jájá bara að leifa ykkur að fylgjast með lífinu í Seljahverfinu hehe

kv Elísabet


mbl.is Slæmt ástand í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert bólar á töskunni minni :-(

Ég fékk enga hringingu frá húsverðinum í gær svo veskið hefur ekki fundist :-(    Í rauninni er mér sama um kortin mín, ég náði að loka þeim og ekkert fór út af þeim.  En lyklarnir!!!! er ekki sama að vita af þeim einhversstaðar út í bæ Frown  Ég er líka að pirrast yfir því að núna á ég ekki lykla af póstkassanum, skíðaboganum, bílageymslunni og geymslunni.  Þetta voru einu lyklarnir sem til voru á þessu heimili.  Bílageymslan reyndar reddast.  En hitt þarf ég að skipta um skrá og efast nú um að það sé hægt á skíðaboganum og borgaði ég nú 35000 kall fyrir hann :-(  

Æiii ég er að vonast að veskið finnist og einhver hafi bara tekið peninganna og skilið veskið eftir einhversstaðar.

Annars prófin búin en ég á eftir tvö verkefni og þá er ég komin í JÓLAFRÍ!!!!!

Er að fara í konfektgerð í Námsflokkum Reykjavíkur á morgun, konfektkassagerð á þriðjudag og á miðvikudag mun ég sjá um dagatalagerð svo þetta verður nú bara stuð!

kveðja Elísabet

 


RÆND!!!

jájá ég var rænd í kvöld Angry  Var í KHI að læra í hljóða lessalnum.  En hafði svo farið á WC og gleymt veskinu mínu þar í glugganum.   Þegar ég svo uppgötvaði þetta þá rauk ég inná WC og auðvitað var veskið mitt FARIÐ, með öllum mínum kortum, bíllyklum, húslyklum, málningadóti og fullt af öðru drasli Crying

Ég stóð því ein í KHI peningalaus, bíllyklalaus og HÚSLYKLALAUS.   Karlinn að vinna og enginn heima!!!!   Þarna voru öll ráð dýr!!  Ég ákvað svo að hringja í elsku bestu Guðbjörgu frænku og auðvitað var Haukur tilbúin að redda mér klukkan að ganga 1 að nóttu!!!  Hann sótti mig í KHI og keyrði mér inní Mosfellsdal til að ná í húslykla, svo fórum við heim til að ná í bíllykla og þaðan aftur í KHI til að ná í bílinn!!!

Ég hringdi nefnilega í lögguna og báðu þeir mig vinsamlegast að ná í bílinn og láta hann ekki standa þarna fyrir utan, löggan sem ég talaði við sagði jafnframt að það borgaði sig fyrir mig að skipta um sílender en það var erfiðara með bílinn.   Í veskinu mínu er nefnilega skylríki og því auðvelt að flétta mér upp og sjá mitt heimilisfang. 

Við vorum nú bara þrjár á lesstofunni, ég veit ekki hvort það hafi verið fleiri í húsinu að læra en ég var ekki vör við það.   Svo var reyndar allt starfsfólk KHI í jólateiti í matsalnum, en ég ræddi þar við veislustjóra og einnig við húsvörð og það hafði enginn fengið veskið :-(

Æiii ég vona að veskið finnist alla veganna lyklarnir, svolítið óþægilegt að vita að einhver er með lykla af ÖLLU hjá mér.  Annars voru nú reyndar peningar þarna og öll kort.  En ég er búin að loka þeim....

Æiii þetta er frekar pirrandi svona daginn fyrir próf pirrrpirrr

bara smá púst og krossið nú putta fyrir mig svo að veskið finnist, þó svo að mér finnist það harla ólíklegt

kveðja Elísabet


Próf og veikindi

Jæja núna er ég búin í einu prófi og gekk það bara ótrúlega vel, miðað við engann lestur!!! Annars veiktist ég í gær og var bara fárveik í gærkveldi og nótt.  Er hálf drusluleg í dag en samt hressari.  Er svo að fara í erfitt próf á morgun og þá á ég bara eftir 2 VERKEFNI júhhhhúúuúúú JÓLAFRÍ!!!!

Reyndar ekki alveg, því ég er að fara að sjá um verkefni í jólaviku hjá Námsflokkum Reykjavíkur í næstu viku og verður það nú örugglega bara SPENNANDI... og gaman.

Annars sendi ég börnin mín norður í gær, átti að vera pabbahelgi sem klikkaði enn einu sinni og því varð ég að senda börnin norður svo ég gæti tekið prófið á morgun, Elvar að vinna.

læt þetta duga í bili.  Minni á alla söfnunarreikninga sem eru í gangi núna fyrir jól.  Margt smátt gerir eitt stórt!!

kveðja Elísabet


Friðarljós í minningu

Annað kvöld, mánudagskvöldið 3. desember, klukkan 19:00, skulum við öll taka okkur saman og kveikja á friðar(úti)kerti fyrir Kristinn Veigar litla, guttagullið sem lést í gær eftir að keyrt var á hann á föstudaginn. Um leið og við kveikjum á kertinu skulum við hugsa hlýtt til syrgjandi fjölskyldu hans, ættingja og vina, sem nú ganga þung skref. Við skulum líka hugsa til ökumannsins og vona að hann geti fundið jafnvægi í sína tilveru.

Látið orðið berast.

Friðarljós í minningu
† Kristins Veigars †
mánudaginn 3. des. klukkan 19:00

Næsta síða »

Höfundur

Elísabet Sóley Stefánsdóttir
Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Ég er ein af þessum súpermömmum, á fjórar skvísur, kærasta, vinkona, dóttir, systir og gæti talið endalaust upp

Styrktarreikningur Landsamtakanna Liðsmenn Jerico - samtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda eineltisofbeldis  - reikninsnúmerið er 1158-26-034147  Kt: 641008-0280

 

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband