Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Þjóðarátak gegn einelti!!!

Ég er ein af þessum sem standa að stofnun Landssamtakanna, það er von mín að reynsla mín í öllum myndum verði til þess að aðstoða Ingu í þessu þarfa málefni.  Þegar ég heyri um mismunun, einelti, útilokun og höfnun verð ég æf!!! það er eitt af því fáa sem sporaði mig jákvætt að ganga í gegnum helvítið á jörðu á mínum uppvaxtarárum er að ég er með mjög svo ríka réttlætiskennd.  Ég hef alið börnin mín upp við þá reglu "ef þú getur leikið við eina stelpu þá getur þú leikið við allar þær sem spyrja eftir þér"  Þetta er regla hér sem hefur alltaf verið og mun alltaf vera. 

Ég verð að viðurkenna að ég varð smeik þegar ég mætti á foreldrafund 6 ára barna í Seljaskóla.  bekkurinn er með um 60 börnum og eru þau sem ein heild!!  en bekknum er jafnframt skipt upp í þrennt og hafa sinn umsjónakennara, en þeim er einnig skipt öðruvísi upp og þá umsjónahóparnir blandaðir saman.  Það sem ég var smeik við með þetta fyrirkomulag er að þessi bekkjarheild er ekki lengur við líði, nema jú 60 börn.  Því getur skólinn ekki séð sig fært að skipta sér af afmælisboðum og vilja þau út fyrir skólann GOTT OG GILT MEÐ ÞAÐ!!! kennararnir sögðu að börnin ættu bara að bjóða vinum sínum og þetta væri í valdi foreldra...... ég fékk sting fyrir hjartað!!  Hvernig verður þetta jú!!  það verður alltaf einhver börn í bekknum sem fá ekki að fara í afmælin, kannski boðið í 1-2 afmæli hjá besta vininum eða frænda/frænku.  Svo verða önnur börn sem verða boðið í flest öll afmælin.  Ég hélt afmæli fyrir dóttir mína, hún bauð öllum stelpunum í sínum umsjónarhóp (líkt og fyrrum bekkjarfyrirkomulagið)  Þær eru í heildina 9 talsins, hún bauð svo 2 öðrum stelpum í hinum umsjónahópunum sem hún hefur leikið svolítið við og þekkir úr leikskóla. 

Þó svo að afmælisboðin séu komin út fyrir skólann þá tala börnin um afmælisboðin/veislurnar og ég vona svo innilega að eitthvað gott fyrirkomulag finnist og foreldarar sjái mikilvægi þess að skilja ekki börn útundan og bjóða bara útvöldum.  ÞETTA ER MÍN SKOÐUN, ÞVÍ ÉG VEIT HVAÐ ÞAÐ ER AÐ VERA HÖFNUÐ, ÉG VEIT EINNIG HVAÐ ÞAÐ ER AÐ EIGA BARN SEM VERÐUR FYRIR MIKILLI HÖFNUN!!!

Nú ég er komin langt út fyrir efnið, enda er það svo líkt mér þegar ég fer á skrið hehe en ég vil endilega óska eftir aðstoð, þið sem þekkið til fyrirtækja eða fjársterka aðila endilega sendið þeim linkinn á bloggið hennar Ingu og reikningsnúmerið 0305-13-303030
Kennitala 150462-7549  Að stofna svona þörf samtök kostar sitt og án fjármagns er lítið hægt að gera.  En það er einlægur vilji okkar allra sem stöndum að þessu með Ingu er að gera þetta af virkum samtökum, veita fræðslu/upplýsingar/ráðgjöf og ekki sýðst þrýstingu á þjóðfélagið í heild að breyta viðhorfi til eineltis í öllum þeim myndum sem það birtist.

Ef þið viljið frekari upplýsingar eða viljið hafa samband þá tek ég glöð við fyrirspurnum elistef@simnet.is 

Með von um stuðning og styrk

Elísabet Sóley


Brjálað að gera

og algjör bloggleti....

Hélt þrjár afmælisveislur fyrir Dagný skvís um helgina og gengu þær bara mjög vel, að ég held Blush  hehe jújú held að allir hafi verið mjög sáttir....

Annars brjálað að gera hér hjá mér við að gera ekki neitt... s.s. samasem bara leti og andleysi :-)  En þetta potast samt þó svo að það taki mun meiri tíma en hjá þessum eðlilegu!!

Fór til bæklunarlæknis í síðustu viku og það var því staðfest að ég er bækluð, fædd með fæðingargalla i hnjám og stend því alveg undir öllum þeim fullyrðingum mínum sem ég hafði um hnén mín þegar ég var á gelgjunni... önnur eins forljót hné hef ég bara sjaldan séð!! Ég er nu ekki mikið að spá í fegurðinni við þau núna það eru þessir endalausi sársauki sem er að drepa mann og annan hér.....

Annars er kvíði og tilhlökkun fyrir morgundeginum.  Er að fara með Rebekku til heila- og taugasérfræðingsins og verð að vona allt það besta með það... svo er ég líka að fara með Sólveigu til meltingarsérfræðings og þá er einnig að krossa putta þar. 

Um kvöldið á ég svo von á nokkrum "módel 77" skvísum og hlakkar mér voða mikið að hitta þær.... 

Svo maður ætti kannski að fara að skella sér í háttinn og biðja um ofurskutlukrafta :-) og ofurorku með.... er bara búin að vera löt í dag!!

 


Fyrsti grunurinn

 

Var að svara einni inná Óskasteinagrúbbunni og ákvað að leifa ykkur að lesa :-)  Þetta er s.s. fyrsta ferlið sem Rebekka fór í gegnum og fyrsti grunurinn og þau frávik sem ég sem móðir sá.

Fyrsti grunurinn vaknaði í 6 vikna skoðuninni, ég var reyndar búin að bíða eftir fyrsta brosinu sem var ekki komið þarna og sagði ég þeim það, ég sagði þeim einnig að mér fyndist augun á henni renna svo til og hún væri svo rangeygð.  Þau gerðu þetta reglulega tékk og sáu að hún var ekki farin að fylgja eftir hlutum og vildu því láta barnalækni skoða hana.  2 dögum seinna fór hún til barnalæknis og þar sá barnalæknirinn að viðbrögð auganna voru ekki eins og venjulega, sjáaldurinn drógst ekki eðlilega saman og sundur miðað við birtu og hún fylgdi ekki hlutum, ljósi eða neinu.  Því vorum við strax sendar suður beint til Brynhildar augnlæknis, sem skoðaði hana vel og sá að augnbotninn var eðlilegur en hún var ekki að svara skynboðum rétt.  Hún sá einnig að hún var ekki að svara hljóði, ef bjalla var sett við eyrað á henni leitaði hún ekki eftir hljóðinu eða spenntist upp við það.  Brynhildur sendi hana því til Ólafs Thors heila- og taugasérfræðings og var hún þá tæplega 7 vikna, hann er svo búinn að vera með hana með hléum síðan.    

Einkennin sem ég sá svo síðar var að brjóstagjöfin var slagsmál frá upphafi til enda, hún var alltaf óvær þegar við héldum á henni, eini sénsinn að halda á henni var að láta hana snúa fram, og því hafði hún útsýnið en ekki að horfa framan í okkur.  Hún svaraði ekki kalli, horfði ekki á okkur, fylgdi ekki hlutum, fékk störur, vildi helst vera bara ein uppí rúmi eða í rólunni sinni.  Svaf mjög lítið, kallaði ekki eftir mat/athygli.  Ég þurfti alltaf að stinga puttanum uppí hana og svo geirvörtunni til þess að hún fattaði að um mat væri að ræða.  Hún varð ekkert óvær við að fá ekki að drekka, ég þurfti að hugsa með tímaramma hvenær ég gaf henni síðast og hvort það væri kominn tími á aðra gjöf.  Hún fékk miklar störur, horfði meira á vissa liti/rauðann.   Þetta er nú það sem ég man eftir í fljótheitum.  En það er ekki að sjá á minni dömu að hún hafi verið svona, hún elskar að kúra, horfir í augun, þarf að fá reglulega að borða annars verður hún pirruð, sefur vel og blómstrar :-)    

Ég man að þegar ég uppgötvaði að hún þoldi illa snertingu þá strauk ég henni alltaf þegar hún var sofnuð, hún kipptist stundum til, en ég gafst ekki upp.  Ég þjálfaði hana að vera í fanginu okkar, hún fékk fyrst að sitja á hnjánum mínum svo færði ég hana alltaf nær og nær og að lokum snéri ég henni að mér.  Þetta snýst allt um þjálfun og í dag uppskerum við það, ég fæ að halda á henni, fæ að strjúka henni, fæ að knúsa hana og fæ að kúra hjá henni.  Eflaust fengi ég það ekki í dag ef ég hefði ekki þjálfað hana í snertingu og nánd :-)  

 Gangi þér vel kv Elísabet


Klukk :-)

Nú jæja María klukkaði mig svo hér kemur þetta :-)

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina

  1. - Leikskóla
  2. - Veitingarstaður
  3. - Dagmamma
  4. - Stuðlar


Fjórir staðir sem ég hef búið á

  1. - Grundarstígur - Sauðárkróki 
  2. - Glaðheimar - Reykjavík 
  3. - Kleifarsel - Reykjavík 
  4. - Flúðasel - Reykjavík

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á

hahaha ég bíómyndir??? held að þær nái ekki einu sinni 3 tugum sem ég hef horft á frá byrjun til enda á minni æfi haha, en þær sem ég man eftir eru

  1. - Titanic
  2. - Dirty dancing
  3. - Pretty woman
  4. -  Englar alheimsins

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar

  1. - Bold :-)
  2. - Íslenskir tónlistarþættir
  3. - Innlit/útlit
  4. - Oprah

 

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum

  1. - París
  2. - London
  3. - Spánn/Alicante
  4. - Ítalía/Toscana

 

Fjórar síður sem ég skoða daglega, fyrir utan blogg

 

  1. - Scrapbook.is
  2. - mbl.is
  3. - visir.is
  4. - facebook.com


Fernt sem ég held upp á matarkyns

  1. - pasta
  2. - Kjúklingur
  3. - Indverskur matur 
  4. - lambalæri


Fjórar bækur sem ég hef lesið oft - huhuhummm les eiginlega ALDREI bækur fyrir utan skólabækur sem eru barasta ekkert í lestri núna :-)

  1. - Dagbókin mín
  2. - Bókin um einhverfu - aðeins að byrja að lesa hana
  3. - Stampin Up bækurnar/bæklingar
  4. - Skrapp blöð

 

Ég klukka svo... daddaramm....:

  1. - Jónu Á snilling :-)
  2. - Kristín - dauðans alvara
  3. - Guðbjörg - ofurskutla með meiru
  4. - Steinunn Ósk skvís


Var klukkuð af Maríu.... hún þarf að segja 4 hluti um mig!  híhí gott á þig :-)


betri dagar

já átti sko betri dag í dag :-)  þó svo að ég viðurkenni það alveg að það sé enn kvíðahræðsluhnútur í mallanum og verkir um allan skrokk :-)

Ennnnnnn hún elsku Rebekka svaf af sér allan hamaganginn sem er hér á morgnanna þegar þrjár elstu eru að græja sig fyrir skólann, þegar þær voru lagðar af stað ætlaði ég mér að vekja prinsessuna en nei hún bara sagði "nei mamma sofa lengur" og snéri sér á hina hliðina :-)  Hún kom uppí til mín undir morgun svo ég skreyð uppí og svaf með henni til RÚMLEGA 9 :-) bara lúxus hér sko :-)  Ekki oft sem minn orkubolti vill sofa :-)

Hún vildi svo bara fara að leika sér hérna heima og ekki fara í leikskólann en þegar ég sagði henni að Guðbjörg besta vinkona hennar ætti afmæli í dag og hún mætti gefa henni smá gjöf þá var mín sko sátt og fór í leiksólann með Hello Kitty hálsmen og armband handa vinkonu sinni :-)

Hún var svo sótt klukkan 13.30, og fór í málþroskapróf sem gekk svona glimrandi vel :-)  Rosalega margt sem hún átti að gera sem hefur verið í atferlisþjálfuninni hjá Þórdísi, bæði beint og óbeint og því átti Rebekka ansi auðvelt með margt og græddi sko heilmikið á því :-) Niðurstöður prófsins voru s.s. þær að hún er rétt fyrir neðan meðaltal jafnaldra sem er sko ALGJÖR SNILLD og er ég búin að brosa síðan :-)   Það var samt sumt sem hún gat ekki sem flestir jafnaldrar geta og verður bara unnið með það núna, annað gat hún sem margir gera vitlaust en þá er það líka yfirleitt eitthvað sem búið var að þjálfa/kenna henni :-)  Svo ég segi að Þórdís eigi sko sinn fullan þátt í því að skvísan kom svona vel út og segi því húrra fyrir henni hehe og auðvitað Rebekku líka, enda er hún flottust og fínust :-)

Ég fékk svo líka jákvæðan póst hér sem létti heilmikið á mér svo þetta var góður dagur...

Ég var svo bara voða dugleg hérna seinnipartinn og tók alveg fullt í gegn, svona jákvæðir hlutir eru nefnilega vítamínssprautur fyrir mig :-)

Læt þetta duga í bili

kveðja Elísabet


Skrítnir dagar

ææii já þetta eru frekar skrítnir dagar og líður mér frekar asnalega :-( 

Dagurinn í gær var erfiður, það var teymisfundur hjá Rebekku og ýmislegt sem kom þar fram sem hræðir mig Crying ekki það að ég hef verið svakalega rosalega heppin með mína dömu og þeim ótrúlegu kraftaverku framförum hennar, þá verð ég því miður að opna augun fyrir því að í fyrsta skipti er hún farin að missa niður fyrri færni, færni sem hún var súperklár og ofurdugleg við Crying

Hér fyrir ári síðan þá var Rebekka púsl sjúk, hún púslaði allan daginn og var það hennar skemmtilegasti leikur, rétt fyrir jólin náði hún að púsla 99 kubba púsl, fékk reyndar aðstoð þá hjá okkur við að taka ramman frá og púsla hann fyrst en að öðru leiti púslaði hún sjálf, 60-80 kubba púsl voru þau púsl sem hún púslaði vanalega og var mjög snögg að því.  Í febrúar/mars var leikur Rebekku eingöngu farinn að snúast um púsl, ég ákvað því að taka öll púsl á heimilinu og setja uppí skáp.  Hún hefur jú haft púsl í leikskólanum en smá saman hætti hun að sækja í þau og er núna dúkkuleikjasjúk.  Núna hálfu ári seinna kann hún ekki að púsla, hún náði að púsla 12 kubba púsl með aðstoð :-(  hún horfir á púslin eins og hún bara hafi aldrei séð þetta áður. Crying  Þetta var sjokk fyrir mig, en eitthvað sem ég kannski vissi innst inni en vildi ekki sjá.

Ég veit að ég á ekki að mála skrattann á vegginn og halda að þetta sé komið til að vera, núna fer bara mín prinsessa í púslþjálfun hérna heima, en þetta segir mér bara það að öll þau kennsla og aðhalda sem hún fær hér heima virkar en þetta segir mér líka það að til þess að hún missir ekki niður fyrri færnir þarf að halda öllu við, það má ekki taka neitt úr í langan tíma nema að halda því við markvisst, sem við höfum reyndar gert en púslið gleymdist og það kvarflaði bara ekki að mér að forma/reglu/rökhugsunar prinsessan mín myndi tapa þessu :-(

Ég talaði einnig við gigtarsérfræðinginn minn og sagðist hún ekki geta gert neitt fyrir mig til að lina mér sársaukann, næsta skref er morfínverkjalyf og það harðneita ég :-(  Hún ráðlagði mér reyndar að fara til bæklunarlæknis til að skoða hnén mín, sem eru sérstaklega að pirra mig ofaná alla bak og stoðkerfisverki. 

Já eins og þið sjáið er ég í vonleysisgírnum núna og það er vont, óþægilegt og erfitt.  Ætla að reyna að koma mér í jákvæða partinn í lífinu í dag og setja þessar neikvæðu hugsanir á HOLD.... spurning hvernig það gengur?

kveðja Elísabet


Verkir!!

Úffff ég er í klessu, bakið gjörsamlega gargar á mig, axlirnar líka og hausinn eftir því Crying  Er að fara í langþráðan nudd tíma á morgun og vona svo innilega að ég verði eitthvað betri eftir hann.

Annars gerði ég TOSSALISTA fyrir mig haha svo margt sem ég þarf að gera og hefur verið trassað í allt sumar þar á meðal að hemsækja ykkur Gulla mín :-)  Vonandi fer ég að gefa mér tíma í það núna þegar ég er búin að rita það niður á forgangslistann :-)

Annars er þessi listi heil 60 atriði hahaha mis stór og mistímafrek, en jafnframt atriði sem ég vil klára og gera sem fyrst.

svo jæja ætli það sé ekki best að fara að byrja, svo ég geti farið að stroka út af listanum góða :-)

kveðja Elísabet


Höfundur

Elísabet Sóley Stefánsdóttir
Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Ég er ein af þessum súpermömmum, á fjórar skvísur, kærasta, vinkona, dóttir, systir og gæti talið endalaust upp

Styrktarreikningur Landsamtakanna Liðsmenn Jerico - samtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda eineltisofbeldis  - reikninsnúmerið er 1158-26-034147  Kt: 641008-0280

 

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband