Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Ritgerðarmaraþon

Afsakið langlokuna hér að neðan.  Las yfir þetta áðan og OMG hef greinilega verið MJÖG ÞREYTT þarna í gærkveldi og já ALVEG BÚIN Á ÞVÍ hehe  fullt af ritvillum og allt í belg og biðu hehe...  Ég skrifaði líka um veikindi stelpnanna stóru þegar þær voru litlar en humm það hefur ekki uppfærst.  Svo þið heyrið kannski bara af því síðar hehe

Er allt önnur í dag.  tók ákvörðun!!! jájá ég ætla bara að hugsa um MIG og hana nú. 

Hér er ég, um mig, frá mér til mín?   Hvenær hef ég hugsað svona?? 

En já fyrst aðrir geta gert það þá hlýt ég að afreka það, þó svo að það væri ekki nema í eins og eina viku Grin

Ég meira að segja neitaði þeim á Stuðlum um vinnu, það vantaði í kvöld og næstu daga og ég bað þá bara að hafa samband í næstu viku :-)  já ég gat þetta, ég sem kann ekki að segja nei.

Ég stefni á að læra í alla nótt, koma skvísunum svo í skólann og fara að sofa.  Þetta er bara minn tími og verð ég að nýta hann vel. 

Ég fékk mikið knús frá karlinum mínum í gær, þurfti svo á því að halda og held barasta að hann hafi gefið mér súperorku.  Líður betur í dag og ætla bara að taka einn dag í einu.

Læt þetta duga í bili og vona að ég vinni endalaust af orku núna, passið ykkur á mér ég er orkusuga þessa daganna, svo ef þið getið ekki misst orku þá skulið þið bara sleppa því að hafa samband Wink

Ef ykkur langar að fá lánuð eins og 4 börn þá vitið þið hvar þau eiga heima, móðurlaus greyin þessa daganna.  Pabbinn á heimilinu kemur reyndar úr vinnu á miðvikudaginn en fer aftur í vinnu á sunnudag.

kveðja Elísabet

 


Erfið vika að baki

Jæja þá er ansi erfið vika að baki, ég vona að næsta vika gefi mér orku,kraft og ró til að ná áttum og klára lokaritgerðina.   Ef ekki þá bara klára ég hana í sumar :-(

Síðastliðinn mánudag lést amma stelpnanna minna mjög snögglega og er það alltaf erfitt á svona dögum.  Það sem var erfiðast var ástandið á okkur foreldrum stelpnanna minna.  Ég er orðin svo langþreytt á þessu og allar þær tilfinningar sem koma í framhaldi af svona álagi sem er búið að vera síðastliðin 2 ár.  Ég ætla ekki að fara nánar út í þetta hér en guð minn góður hvað ég myndi vilja hafa hlutina öðruvísi, ég fæ því miður lítið ráðið um það og verð því bara að halda áfram að stiðja og styrkja dætur mínar, þær eru jú það dýrmætasta sem ég á.

Mig langar að vitna í bloggfærslu frá Eygló http://benjonikla.blog.is/blog/benjonikla/  þar sem hún talar um þeirra líðan og vitnar í að við getum svo sannarlega verið hamingjusöm, þó svo að okkur sé illt í sálinni. Þetta á sko alveg við hjá mér, er mjög hamingjusöm með það sem ég á í dag, líður vel með minni fjölskyldu og er sátt við sjálfa mig....... ENNNNNN mér líður ansi oft illa í minni sál, þið sem þekkið mig vitið af hverju það er og vona ég hvert einasta kvöld að þegar ég vakna á morgun geti allt gengið vel og allir góðir við alla.  En þar sem ég er ekki sá sem ræður þá verður þetta bara að vera í mínum vonum/óskum, ég er því miður orðin ansi svartsýn á að þetta geti orðið og ef það yrði að það væri of seint fyrir stelpurnar.  Ég vona svo sannarlega að það verði ekki, tíminn einn verður að leiða það.

Elsku dætur mínar fylgdu ömmu sinni svo í hinsta sinn á laugardaginn með mömmu sína sér við hlið, þær stóðu sig mjög vel og er ég rosalega stollt af mínum skvísum. Allt það mótlæti sem þær hafa þurft að ganga í gegnum á þeirra stuttu ævi er allt of mikið og ætla ég mér að gera allt mitt besta til að reyna að hjálpa þeim að takast á við það á skynsamlegan hátt.  Ég mun aldrei vanvirða þeirra tilfinningar heldur þvert á móti þá mun ég og hef alltaf gert að hjálpa þeim að takast á við sínar tilfinningar, tjá sig og leita lausna á sinni líðan.  Þetta er ansi oft erfitt og flókið viðfangs, en sem betur fer hef ég fagfólk á sínu sviði mér til halds og trausts.

Elísabet amma mín, fyrirmynd mín átti 90 ára afmæli á fimmtudaginn.  Amma eignaðist 12 börn með Skarphéðni afa, hún tók einnig að sér önnur börn og ólust 2 börn afa upp að mestu hjá ömmu.  Það var því oft glatt á hjalla og mikið fjör á Gili.   Þegar ég var lítið ætlaði ég mér alltaf að eignast 12 börn eins og amma, enda er ég alnafna hennar og það sem ég hef líka er mikil barnakerling.  Ég eignaðist 2 yndislegar dætur með 11 mánaða millibili og var gert mikið grín af þessu því ég sagðist alltaf ætla að eignast 12 börn.  20 ára gömul var ég komin með tvö og hafði því nógan tíma til að klára hin 10!!!! Grin  en nei nei ég er skynsamlegri en það og ætlaði mér því alltaf að eiga fjögur. Í dag á ég fjórar dætur, ein af þeim eignaðist ég reyndar ekki fyrir en hún var orðin 4 ára en hún er nú samt dóttir mín Wink

Elísabet amma er ótrúlega frísk og var einmitt sagt í einni ræðunni i afmælisveislunni í dag að hún gæti verið að halda uppá 70 ára afmælið sitt, svo hress er mín.  Býr ein í stóru húsi, prjónar heilu flíkurnar og missir sko ekki af Glæstum vonum eða Leiðarljósi :-)  Amma á 124 afkomendur og er fjölskyldan því orðin ansi STÓR þegar makar eru líka með.  Ég er svo stollt af ömmu minni sem kenndi mér svo margt, ég fór til hennar á hverju kvöldi frá 6 ára aldri og þangað til að ég flutti að heiman, með smá hléum reyndar og svaf hjá ömmu.  Hún kenndi mér faðir vorið, hún hjálpaði mér oft að læra, hún gaf mér morgunmat, hún fór með bænir með mér.  Stundum sat ég á rúmstokknum hjá henni heilu klukkutímanna að spjalla og þegar við rönkuðum við okkur var klukkan náttúrulega orðin allt of margt.  Mér finnst forréttindi að hafa getað verið svona mikið hjá ömmu, en er leið yfir að vera svona langt frá henni og gefa mér ekki tíma til að hringja oftar í ömmu.   Ég ætla að bæta mig í því.

Ólöf Rún besta frænka fermdist einnig á laugardaginn, hún var fyrsta systkinabarnið mitt og hefur alltaf verið í uppáhaldi, sem og reyndar Ólína Rut líka, hún fæddist rúmu ári seinna. 

Það var því mikið um að vera hjá okkur þessa helgina, bæði gleði og sorgir enda eru það svo skylt. 

Það var því ansi lítið um lærdóm þessa vikuna, ég var til staðar fyrir dætur mínar og hafði einnig litla einbeitingu til þess að læra við þessar aðstæður.  Núna er ég komin suður, stelpurnar fara í skóla sína á morgun, Elvar að vinna og ég út í skóla að LÆRA!!! úfff það er VIKA í skil og ég er komin ALLTOF STUTT......

Finnst þetta svo leiðinlegt, er kvíðin fyrir þessu, efins um að ná þessu og því sorgmætt að klikka á síðustu metrunum...  Það er nú þannig að á þessum tæpum fjórum árum sem ég er búin að vera í þessu námi hefur verið ansi mikið álag, mörg og mikil áföll, en einhvern veginn hef ég komist í gegnum þetta.  Það má ég líka þakka kennurum mínum í KHI, samnemendum sem hafa stutt mig allan tímann og elskulegu fjölskyldu minni, mamma er búin að standa eins og klettur með mér síðustu 2 árin og hefur Elvar einnig hjálpað mér mikið.  Þegar ég byrjaði í skólanum vorum við 28 nemendur, ég var orðin ólétt og gekk meðgangan ekki vel, það blæddi nánast alla meðgönguna og var ég með sýkingar og í fyrstu prófunum var ég send suður vegna mikilla hætta á fyrirburafæðingu.  Ég náði samt öllum prófunum með stæl.  Í janúar 2005 eignaðist ég yndislega stelpu, heilbrigð, falleg og góð.  Hún var ósköp meðfærilegt vildi bara vera í sínu rúmi.  3. vikna skoðaði barnalæknir hana og var hún þá með mikla gulu og þurfti ég að hætta með hana á brjósti um tíma, þá mjólkaði ég mig til að halda mjólkinni, það var verið að útiloka með þessu gulu að lífræðilegum orsökum og greindist hún því með brjóstamjólkurgulu sem er ekki hættuleg. Meðan á þessu stóð var ég ein heima með stelpurnar og mjög kvíðin og hafði miklar áhyggjur að eitthvað alvarlegt væri að.  Að mestu drakk hún úr pela eftir þetta en fékk samt móðurmjólkina því ég mjólkaði mig fyrir hana. 

Í mars fórum við svo í 6 vikna skoðun og þá kom fyrsta alvöru áfallið, eitthvað athugavert var og við sendar suður, pabbi Rebekku á sjónum og ég því ein með hana í þessu.  Eftir þetta hefur Rebekka verið í stöðugu eftirliti, þjálfunum, læknisheimsóknum, veikindum, rannsóknum og hver hefur hjálpað henni með það, jú ÉG!!! Þið megið ekki misskilja mig, guð ég á yndislega stelpur og hef það svo gott, það eru svo MARGIR sem eiga alvarlega veik og fötluð börn, ég er hugsað til elsku Fjólu og Mumma sem hafa barist með syni sínum í rúm 3 ár, sú barátta lauk á mánudaginn og vil ég votta þeim mína innilegar samúðar.  Minnir að ég hafi lesið það einhversstaðar að hann væri búinn að eyða 2/3 úr ævi sinnar á spítala.  Þessir foreldar langveikra barna eru hetjur.

Það er nú bara þannig að þessi 4 ár sem ég hef verið í skólanum þá hefur ALLTAf komið upp mikil veikindi, áföll, álag og því miður mikil leiðindi á próftímum.  Mér finnst því svo leiðinlegt að sjá ekki fyrir endann á lokaritgerðarskrifunum, ég sem langar svo að útskrifast á RÉTTUM TÍMA!!! en svo segir fólk þú getur þetta!!! jájá ég get þetta, ef ég fæ FRIÐ, en hvenær fæ ég frið í eina viku án einhverra uppákomna?  það er mjög sjaldan skal ég segja ykkur :-)  En svo eru aðrir hva, þú útskrifast þá bara í október!!! jájá það er einn möguleikinn, en 14. júní, afmælisdagurinn minn heillar meira.

Jæja ætla að hætta þessu rausi hérna, þurfti greinilega bara aðeins að pústa.  Ætla að koma mér í rúmið því ég verð að vera dugleg á morgun.

kv Elísabet


Fjölskyldan sem missti allt vegna myglusvepps

Kæru vinir

Þar sem þessi kæra fjölskylda sem lenti í því að missa húsið sitt og megnið af innbúi sínu eru mér mjög kær og hafa reynst mér vel, þá ákvað ég að hafa samband við Bylgju og Ívar til að fá samþykki fyrir því að hefja söfnun fyrir þau.

Þau voru með allar tryggingar á hreinu, en tryggingar bæta samt ekki skaðsemi myglusvepps.  Bylgja er búin að vera heilsulaus síðustu ár vegna myglusveppsins og því búin að þurfa að hætta í vinnu og skóla.  

Eftir standa þau uppi með 10 milljóna skuld en engar eignir og húsnæðislaus. 

Þetta var erfið ákvörðun fyrir þau, en ákváðu barnanna vegna að samþykkja að gefa upp reikningsnúmerið.  Heimasætan fær þá kannski fyrr að eignast sitt eigið rúm og jafnvel heimili til frambúðar.  Eldri börnin og barnabarn og bráðum barnabörn fá kannski tækifæri til að heimsækja móðir þeirra á heimili hennar og Ívars.

Ég vona svo innilega að við getum lagst á eitt og hjálpað þeim í þessari baráttu, margt smátt gerir eitt stórt og vona ég að flestir sjái sér fært til að leggja inn, þó svo að það sé ekki nema verðmæti einnar pizzu eða sígarettupakka.

Reikningsnúmerið er 1102-15-9217 Kt. 2410645149

Tökum höndum saman og styðjum þessa fjölskyldu til að koma upp heimili á ný, eftir þennan mikla missi.  Ég veit að þau rifu ekki niður húsið sitt og hentu eignum á hauganna að ástæðulausu, þau neyddust til þess að gera þetta.

Með kærri vinsemd

Elísabet Sóley Stefánsdóttir


Enginn veit hvað dagurinn ber í skauti sér

Ég var rétt að festa svefn eftir að hafa lært alla nóttina þegar ég fékk símhringingu með sorgarfréttumCrying, ég hennti því bókum og drasli ofaní tösku og reddaði mér fari norður.  Knúsaði svo skvísurnar mínar hér á Króknum í gær og fór svo að sofa með yngstu skvísunni enda búin að vaka í rúman sólarhring. Sleeping

Bækurnar sem ég er að vinna úr fylltu stærstu ferðatöskuna sem ég var með heima LoL þetta er ekkert smáræði!!  Svo var ég að fá lánaðar 3 BIG bækur hjá sálfræðingi BVS svo já´já og ég á að reyna að lesa og koma þessu niður í þessu ástandi!!! 

Þetta er bara svo ekta ég, þarf alltaf að koma eitthvað alvarlegt uppá þegar álag er hjá mér í skólanum, stundum skil ég bara ekki hvað er hægt að leggja á sumt fólk endalaust!!

En ég er hér fyrir norðan til staðar fyrir elsku skvísurnar mínar sem eiga svolítið erfitt núna og ég reyndar líka Crying ætla samt að reyna að lesa og vinna í ritgerðinni á milli þess sem tárin streyma Frown

 


Andvökur augum spilla

Er málsháttur minn Tounge  frekar fyndið þar sem ég fór nú ekki að sofa fyrir en 09.30 í morgun haha 

Svaf til klukkan 13.00 og fór þá fram og borðaði, las svolítið og dekraði við mig.  Var svo slöpp í maganum að ég ákvað að skríða aftur inní rúm seinnipartinn og svaf þá til klukkan 22.00 jájá var vakin með páskasteikinni haha sem karlinn töfraði fram og ég borðaði með bestu lyst Grin en það liðu ekki nema hálf tími að ég fékk aftur í magann og er salernisherbergið besti vinur minn núna Sick

ohhh er þetta ekki alveg EKTA ÉG!!! komið á skrið farin að afreka eitthvað en nei þá veikist ég!!  Vona að þetta verði fljótt að fara og ég geti notað orkuna í skrifin. 

Næsta verkefni er HAM - Hugræn atferlismeðferð og er það líka ótrúlega spennandi allt saman, þekki það reyndar svolítið sjálf en það er ekki nóg ég þarf að grúska í erlendum bókum og leita af FRUMHEIMILDUM!!!!

jæja verð að rjúka núna, þangað til næst hafið það GOTT!!


Gleðilega páska

Jæja ég vaki og ligg hér yfir bókum, greinum og vefsíðum um Motivational Interviewing eða hvatningarviðtölum.   Mjög spennandi allt saman og takið eftir eitthvað komið á blað!! vonandi á skiljanlegri ÍSLENSKU, annars verð ég bara að fá einhvern íslenskufræðing til að hjálpa mér að orða þetta öðruvísi Tounge

Markmið mitt núna er að klára þennan kafla að mestu! eða svona það sem ég kemst yfir fyrir svefn.  Er ótrúlega óörugg eitthvað með þetta, hvar á ég að setja tilvitnanirnar, hvernig á ég að orða þetta?  hvort á ég að segja þetta svona eða svona?  Greinaskil hér eða eftir næstu setningu? og svona mætti lengi telja Frown hahaha jájá ég er að skrifa b.a. ritgerð og líður eins og 5 ára krakka sem þarf að skila mastersritgerð í latínu Frown  þarf að loka á þessa minnimáttarkennd og koma mér í þá hugsun að ég get þetta og hana nú!!! 

Ég meina af hverju get ég þetta ekki eins og Systa eða allir hinir?  Elsku Systa ofurskutlan mín í náminu gerði sér lítið fyrir og kláraði ritgerðina fyrir páska, samhliða því að undirbúa fermingaveislu sonar síns.  Ég meina hún er bara snillingur sko!!!  Þau eru það nú öll sömul sem hafa ennst námið þessi fjögur ár, hehe já ótrúlegt alveg við byrjuðum að ég held 28 og erum eftir 8 og þar af erum við 5 sem stefnum á útskrift!!!

Jæja ætla að halda áfram að lesa um Wiliam R. Miller og Stephen Rollnick og alla þá snilldar speki sem þeir lögðu fram Tounge

Eigið góðan páskadag, líklega sef ég hann að mestu af mér en passið að borða ekki yfir ykkur af súkkulaði hehe - geymið það frekar handa mérWink

knús og kram Elísabet

 


hver fer hægar en snígillinn?

ÉG!!!  Þetta gengur það hægt að mér finnst ég fara tíu skref aftur á bak og eitt áfram Crying  Hvernig á maður að halda geðheilsunni eiginlega?? 

Fór að sofa þegar ég kom heim úr vinnunni eða um kvöldmatarleytið í gær og ætlaði mér að sofa til klukkan 23.00 og byrja svo að læra og læra í nótt.   Það henntar mér nefnilega yfirleitt best að læra á nóttunni því að ÉG ER SVO FORVITIN að ég má ekki missa af neinu hehe þar sem lítið er að gerast í netheimum og fáir vakandi á nóttunni þá held ég mér meira við efnið!!! ENNNN nei nei skvísan mín hringdi sturluð úr hræðslu klukkan 22.00 og hafði þá faðir hennar skutlað henni heim til ömmu hennar og þar var allt slökkt og enginn heima!!! Skvísan er sjúklega myrkfælin og eina símanúmerið sem hún mundi í þessu ástandi var síminn hennar mömmu, greyið litla var bara í sjokki og engan veginn að höndla þessar aðstæður enda ekki há í loftinu.   Ég hafði hana á einni línunni meðan ég hringdi úr hinum símanum og lét sækja hana.  Spjallaði svo við hana og róaði þangað til hún var sótt.

ÉG MEINA AÐ SKUTLA BARNI HEIM ÁN ÞESS AÐ ATH HVORT EINHVER ER HEIMA KLUKKAN 22 AÐ KVÖLDI!! Angry jájá ég var gefur að skilja svolítið reið... en svona erum við mismunandi...

Ég var því svolítinn tíma að ná mér niður aftur en langaði að sofa í 1 tíma í viðbót haha þreytan að gera vart við sig!! talaði svo við ástina og hann ætlaði að hringja í mig klukkutíma seinna en nei nei hann ákvað að vera góður við gellunna og leifa henni bara að sofa, ég sofnaði því fastasvefni og rankaði við mér klukkan 6 í morgun!! fannst nú ekki taka því að vakna þá haha svo ég snéri mér á hina hliðina og svaf til klukkan 10.00!!! mín búin að sofa í næstum því 14 tíma!!  meira en ungabarn!

Fór fram og las NORSKU en klukkan 13.00 var ég komin með dúndrandi hausverk svo ég skreið enn eina ferðina inní rúm og svaf til klukkan 17.00  hvað er í gangi?????

Ég ætti að geta lært í nótt, úthvíld!!!  Stundum tek ég svona svefnmaraþon eftir mikið álag og eftir þvi sem ég leifi mér að sofa meira, þá þarf ég meiri svefn!!

ææiii pínu pirruð út í sjálfa mig, veit samt að ég þurfti svo á þessum svefni að halda og vona að ég verði bara kraftmeiri í nótt.   Ég læri og læri og nýt tímann eins vel og ég get BARNLAUS,, en er svo með móral yfir því að afreka ekki meira þegar ég hef ekkert um annað að hugsa en sjálfa mig MEÐVIRKNI HVAÐ!!!!

knús og kram

Elísabet úthvílda en vantar samt orku Errm


Flutt aftur heim og EIN í kotinu...

Jæja núna er ég bara alein í kotinu, reyndar gulli gullfiskur hérna líka sem ég notabene er að fatta að hann á eftir að fá matinn sinn, fer í það núna svo ég gleymi því ekki aftur ................................ 

Jæja búin að gefa "gulla" að borða, ég kalla hann bara Gulla því ég veit barasta ekkert hvað hann heitir hehe, hún Sólveig tók hann í fóstur meðan vinkona hennar fór í 10 daga skíðaferð, en sú skíðaferð er orðin humm líklega 2 mánuðir :-) 

Annars ritgerðarvinna hér, skrítið að vera svona einn í kotinu, ég barasta læri þegar ég get, set í þvottavélina þegar ég nenni, geng frá þvotti þegar ég nenni, les skólabækurnar þegar ég nenni, fer að sofa þegar ég þarf, vakna þegar ég er úthvíld og reyni svo að koma mér í lærdómsástand þegar ég þarf á því að halda....   er þetta ekki bara lúxus?   eða jú ég gleymdi, ég náttúrulega borða þegar ég NENNI... ææii lítil svengd hérna þessa daganna.

Svo fór ég og keypti svaka töfrablómadropa, eitthvað sem ég hef aldrei prófað en þessir dropar eiga að koma huganum í gang, sem hefur nú reynst mér frekar erfitt þar sem hann blessaður sko huginn þarf alltaf að vera út og suður, upp og niður og þvers og kruss Angry

Nú jæja ferðin austu gekk vel og það var bara rosa gaman að spjalla við Mumma og Pál, ég og Mummi vorum bara sammála um margt og fékk mig einmitt til að sjá marga hluti frá öðru sjónarhorni, bara fróðlegt og skemmtilegt.

Ég á nú líklega eftir að gera aðra ferð austur þegar ég fer að vinna kaflann um Götusmiðjunna nákvæmlega, en nú er bara að skrifa heimildavinnuna og OMG hvað mér finnst ekki auðvelt að lesa þessar fræðibækur á ensku, norsku og þýsku Crying  hefði viljað fá eitthvað af þessari tungumálagreind sem sumir fá :-), en ég hef bara aðrar greindir Grin

Ætla að fara að koma mér í HUGARÁSTAND með hjálp blómadropanna sem bíða mín hérna í flöskum sem standa hérna í kringum mig, vers bara hvað þeir eru ekki góðir á bragðið Sick  en hvað gerir maður ekki til að ná fullkomnu jafnvægi og einbeitingu?

knús og kram og endilega sendið mér lærdómsstrauma, ef þið eruð galdrótt þá megið þið alveg senda mér tungumálagreindina þó svo að það væri ekki nema bara EINN DAG!!!

Þegar ég var í Englandi síðasta sumar þá voru allir kennararnir mínir svo hissa að við gætum ekki farið í háskólanám á Íslandi öðru vísi en að vera fær á öðru tungumáli, þeim fannst þetta svo fáránlegt að þau töluðu bara um mannréttindabrot hehe ég sagði þeim nú að Ísland væri svo lítið að það væri nú bara ekki fjármagn né geta til að þýðar allar fræðibækur á Íslandi, en guð hvað skólalíf væri þá auðvelt!!!

knús og kram  Elísabet


flutt að heiman

og uppí skóla... jájá börnin komin í fóstur og ég því komin í útlegð við ritgerðarskrif, verst bara að ritstíflan er að gera mig klikkaða, eða kannski bara skipulagsleysi og agaleysi? 

æiii er svolítið svartsýn á að ég nái að klára lokaverkefnið á tilsettum tíma, en það verður bara að koma í ljós.  Vantar því fullt af orku, ritgerðarstraumum og hlýjum hugsunum svo ef þið eigið eitthvað að deila þá er hún vel þegin Tounge

Annars bara gott að frétta af börnunum, stóru skvísurnar léku sér á skíðum í Tindastól í allan dag.   Afi gamli keyrði þeim uppí fjall í hádeginu og sótti þær svo aftur eftir vinnu, nóg að gera hjá gamla settinu :-)

Ætla að halda áfram hérna, mikil vinna á morgun.  Fer austur í heimsókn í Götusmiðjuna og hlakkar mig mikið til að skoða það og spjalla við starfsfólkið en það kraumar nú samt líka smá kvíðahnútur hehe ekkert alvarlegur bara lítið sjálfsstraust og því erfitt að mæta einn á svona staði Wink

knús og kram

Elísabet


Einelti - hvatvísi - aspergerheilkenni - höfuðáverkar

Þetta er ALLT mér skylt eða svona að mestu.

Ég er virkilega slegin yfir þessari frétt og gjörsamlega orðlaus yfir dómstólum okkar.   Ofan á þetta allt saman er ég líka algjörlega orðlaus ef það er rétt að kennarar í starfi, séu ekki slysatryggðir.  Það sé barnið sjálft sem beri skaðabótaskyldur vegna afleiðingar svona SLYS....

Ég varð fyrir mjög alvarlegu og langvarandi einelti í minni barnæsku og er það eitt af því erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum, flestir skóladagar mínir voru HELVÍTI Á JÖRÐU!!!

Stundum faldi ég mig inná WC og stóð uppá klósettinu svo enginn sæi að ég væri þar inni þegar kíkt var inn á klósettálmuna. Oft hljóp ég þangað inn og skellti á eftir mér hurðinni til að forðast ofbeldi. Sem betur fer urðu ekki alvarleg slys á öðrum á þessum flótta, en oft sá á mér.  Ekkert var gert.  Það að vera í flótta undan einelti er þekkt og oft sú eina lausn sem fórnalamb eineltis sér.

Ég á barn sem er með greininguna einhverfurófsröskun, ótilgreind.   Barn með aspargerheilkenni höndlar oft ekki félagslegt áreiti og er því eins og ég sé þetta mjög skiljanlegt að hún hafi stokkið inní rými sem hún gat lokað sig inni í þessum aðstæðum.  Hún hefur eflaust verið að kljást við margt og þetta hennar eina "lausn" til að komast út úr aðstæðunum. 

11. ára gamalt barn hefur alveg pottþétt ekki ætlað að skaða kennara sinn þannig að hann verði fyrir því að fá 25% skaða.  Ég veit nefnilega líka hvað það er að vera alltaf kvalin og það er sko langt í frá eitthvað sem maður velur sér.   En af hverju að SAKAST VIÐ BARNIÐ!!! er ekkert spáð í það að þarna var barn sem þarfnaðist sér úrræðist jafnvel og einnig að um slys var að ræða, hvar koma þá tryggingar skólanna.  Börnin eru tryggð fyrir slysum, en eru kennarar ekki tryggðir?

Ég þekki líka vel til hvatvísis og er það sem mörg börn á einhverfurófinu og einnig börn með ADHD þurfa að kljást við.  Ég get svo með sanni sagt ykkur að þetta er ekki auðvelt og það veit ég sjálf. 

Ég get því sett mig í spor beggja aðila eða foreldra barnsins og kennarans.  Auðvitað á kennarinn að eiga rétt á skaðabótum vegna þess slys sem hann lenti í.  Það að gera foreldra barnsins skaðabótaskylt gagnvart þessu slysi finnst mér algjörlega fyrir neðan allar hellur.  Ég get bara ekki orða bundist og velti fyrir mér hvort börnin mín geti lent í svona aðstæðum í skóla sínum og þá er ég sko enginn borgunarmanneskja fyrir því.  

Mér finnst sorglegt hvað sumar umræðurnar hérna á netinu hafa þróast uppí uppeldisásakanir.  Ekkert annað en FÁFRÆÐI og FORDÓMAR í garð foreldar FATLAÐRA barna!!!!  Því hvatvísi, einelti, asparger, einhverfa hefur EKKERT MEÐ UPPELDI AÐ GERA!!!!Angry

Ef svo er að þetta barn verði dæmt til að greiða kennara sínum skaðabætur í Hæstarétti þá tek ég undir skrif einhvers hérna á netinu í dag að hefja söfnun og mótmæla þessum dómi harkalega.  

Hvert verður svo framhaldið?  Ef barn með ADHD/hvatvísi/mótþróaröskun/  fær "kast" í skóla vegna utanaðkomandi áreitis innan veggja skólans, eru þá foreldrarnir alltaf ábyrgðir? 

jáhá ég held að við verðum þá að sjá dóma í hverri viku eins og USA um börn sem "skaða" aðra vegna aðstæðna sem þau ráða EKKI VIÐ....

jæja get látið meira flakka hérna en ætla að stoppa núna...


mbl.is Dæmd til að greiða kennara 10 milljónir í bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Elísabet Sóley Stefánsdóttir
Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Ég er ein af þessum súpermömmum, á fjórar skvísur, kærasta, vinkona, dóttir, systir og gæti talið endalaust upp

Styrktarreikningur Landsamtakanna Liðsmenn Jerico - samtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda eineltisofbeldis  - reikninsnúmerið er 1158-26-034147  Kt: 641008-0280

 

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband