20.11.2007 | 22:56
letiblogg
ææiii ég er bara drullu löt núna. Var heima í allan dag með stelpunni og kom ansi fáu í verk. Finnst ég samt hafa verið á fullu í allan dag, ótrúlegt hvað maður getur verið á fullu en samt ekki afrekað neitt
Annars fórum við til læknis og skvísan með barkabólgu og þarf að taka því rólega, lítið hægt að gera og þurfum við bara að sjá hvort hún vinni ekki á þessu sjálf.
ég er þvílíkt að mikla skólaverkefnunum fyrir mér, ég bara kem mér ekki á gang, er náttúrulega að vinna mikið og eiginlega búin á líkamanum. Allsstaðar verkir og kallar líkaminn á hvíld. Það er svo sem ekki í boði og verður því að bíða betri tíma.
Mig langar að fara að byrja að skrappa og gera það sem ég ætla að klára fyrir jól en kem mér ekki einu sinni á stað í þeim málum, skrítið að vera svona........
En afrekaði að útbúa ætis styrkja handa Rebekku s.s. svona hólfað box sem ég er búin að setja mismunandi styrkja eins og kexbúta, snakk, morgunkorn, rúsínur, smá nammi skorið niður í litla bita og eitthvað fleira. Vona að þjálfarinn verði nú súper ánægð með þetta þegar skvísan kemur með boxið í leikskólann . Svo þarf ég að fara að setja upp dagsskipulagið, ææiii hef ekki verið dugleg með þetta en nota klukkuna samt mikið, lífið gengur alveg ágætlega og er Rebekka bara búin að vera ótrúlega ballenseruð. Kannski er það vegna þess að hún er búin að vera núna í að verða 6 vikur hjá mér án þess að vera í einhverju róti????
Annars er hún að þrjóskast með mömmu sína, hún leggst í neðstu tröppuna og ætlast til þess að ég haldi á henni upp stigann sem ég geri EKKI, vegna þess að bakið á mér er nógu slæmt fyrir, ég bíð henni hönd mína og ég leiði hana upp, en yfirleitt neitar hún því. Þetta er því svolítill barningur að koma barninu upp stigann og tekur þetta á. Ég má ekki gefa eftir og halda á henni upp því þá verður þetta eylíft vesen. Rebekka er það þung að ég bara get ekki verið að halda á henni upp stigann hérna, enda er hún full fær um að ganga hann sjálf.
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.