Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

jóla hvað!

Jæja bara svona að láta áfram vita af mér hehe

Hér er allt gott að frétta, ég er bara í rólegheitum, eiginlega of róleg yfir þessum jólum og ætla sko að gera ALLT fyrir jól, held að ég hafi allan tímann í heiminum því ég er ekki í neinum prófum haha en svona er þetta bara :-)

Annars gengur allt vel hjá Rebekku, lyfin eru að gera sitt og heldur skvísan áfram að brillera :-)  Hún er reyndar farin að sína meiri mótþróa í leikskólanum svo Þórdís fær aðeins að finna fyrir því.

Ég fór til spákonu í gær haha og já það eru sko stórfréttir TVÍBURAR væntanlegir híhí ég var nú í sjokki í gær en núna hlæ ég bara af þessu.  Það eru engin plön hér, svo það eru ansi litlar líkur að eitthvað líf sé að kveikna hér á bæ :-)  svona fyrir utan allt lífið sem er hér alla daga, börnin glöð,kát og yndisleg. 

Gelgjurnar eru alltaf að verða meiri og meiri gelgjur, sú yngri farin að svara mér með gelgjutónum sem ég samþykki ekki hér svo það eru endalaus agaprógrömm :-)

Læt þetta duga í bili, er að spá í að skríða uppí rúm og leggja mig í eins og einn tíma, svaf eitthvað lítið í nótt og er að leka hér niður úr þreytu!

kveðja Elísabet


Er á lífi :-)

Bara nóg að gera :-)  er ný komin heim úr geggjaðri ferð í Skálholt síðustu helgi, alveg endurnærð þó ekki útkvíld :-)  En full af orku samt hehehe

Vildi bara láta aðeins vita af mér, er hér á fullu að undirbúa jólaföndur Seljaskóla, svo ætla Liðsmenn Jerico að vera í Smáralindinni fimmudag og föstudag frá kl 16.00 að selja jólakort og kynna samtökin, endilega látið sjá ykkur þar :-) 

Rosalega falleg jólakort til sölu, 10 saman í pakka á 1000kr svo endilega hafið samband ef þið hafið áhuga að styrkja Liðsmenn Jerico.

Læt þetta duga í bili

kveðja Elísabet


Ég á 12 ára afmælisprinsessu

Já ótrúlegt en satt þá er bara skvísan mín orðin 12 ára!!! guð.... hvað tíminn líður hratt, ég man svo eftir því þegar ég lá á bekknum hjá sjúkraþjálfaranum klukkan 16.30 og fékk fyrsta "skítaverkinn"  ég var svo sem búin að vera með einhverja fyrirvaraverki og fór aðeins af stað 3 vikum fyrr en svo allt stopp...... Klukkan 18.30 fór ég uppá spítala og var ég komin með mitt fyrsta barn í hendurnar einum og hálfum tíma síðar :-)  yndisleg, falleg og heilbrigð stúlka :-)  Sem flýtti sér í heiminn og tók út sína orku fyrstu árin, hún er nú ekki mikið að flýta sér í dag þessi elska sem betur fer :-)

Annars er ég LÖT!! er að reyna að koma mér í gang hérna, þarf að gera svo margt en æææiii bara nenni því ekki...... Er að reyna að afreka eitthvað áður en foreldrarnir mínir koma suður og bara jámm nenni því ekki!!  svona er lífið stundum er ég löt :-)

kveðja ELísabet


Dagbókin týnd!!

ohhh hvað maður verður eitthvað vængbrotinn og áttarviltur þegar aðal skipulagið glatast :-(  Hef ekki hugmynd um það hvað ég gerði við dagbókina mína á föstudaginn, en á góðan stað setti ég hana :-)

Fékk sem betur fer sms frá Ólafi Thor áðan til að minna mig á að Rebekka á að mæta til hans á morgun, annars hefði ég sko gleymt þeim tíma...

Annars allt ágætt að frétta, frumburðurinn minn afmæli á morgun og múttan mín 60 ára á miðvikudaginn...  Nóg að gera hér í afmælisstandi.

Ég er ástfangin af "ættleiddu systrunum" þær eru sko bara draumur :-)

Ætla að koma mér í háttinn NÚNA!! Vakna fersk í fyrramálið og reyna að afreka eitthvað hérna heima, ekki veitir af!

kveðja Elísabet


Súperhúsmóðir

híhí já já þykist vera einhver súperhúsmóðir þessa daganna :-)  Meðan systurnar ættleiddu ryksuga og skúra gólfin hjá mér þá stend ég í stórræðum við gerbakstur :-)  Þetta er bara voða gaman, ég var bara búin að gleyma því :-(  já hef ekki verið svona dugleg í MÖRG ÁR!!!

Finnst hálf fáránlegt að viðurkenna það fyrir sjálfri mér að núna er ég komin á fertugsaldurinn og ég nenni ekki að hafa fyrir matnum á heimilinu, en þegar ég var 20 ára með 2 ung börn stóð ég í eldhúsinu og var að húsmóðast :-)  Bjó til sultur, hlaup.  Bjó til slátur, kæfu, rúllupylsu.  Hakkaði allt kjöt sjálf og vigtaði í poka, steikti hakkbollur í frystinn, hakkaði fiskinn og bjó til fiskibollur og fiskibuff.  Þegar ég var að búa til einhverja rétti, þá bjó ég oft til tvöfalt og setti annan réttinn í frysti.  Ég bakaði mjög mikið, var dugleg að nýta mat, henti eiginlega aldrei mat!!!!! Get talið svona upp endalaust.  Allt af þessu ofantöldu hef ég ekki gert í nokkur ár...... en kreppan hefur líka sína jákvæðu kosti, ég er farin að gera þetta aftur og það sem meira er að mér finnst það bara gaman :-)

Stóru stelpurnar eru í systkinasmiðjunni núna og lýst okkur bara svaka vel á allt þar, fór í búðina að vesla það sem vantaði í áframhaldandi bakstur en þegar ég kom heim varð ég LÖT, ææiii ég bara nennti ekki að byrja svo ég sit bara hérna í tövlunni meðan önnur ættleiddu skúrar stofuna hóhóhóhó, jájá þið meigið sko alveg öfunda mig :-)

Kveðja Elísabet súperhúsmóðir :-)


Allt til sölu :-)

Jæja skvísurnar farnar á fullt í fjáraflanirnar svo núna eru í boði 1kg af glæ nýjum appollo blönduðum lakkrís á 1000kr, WC pakkning á 2500kr og eldhúspappír pakkning einnig á 2500kr.   Endilega hafið samband ef þið hafið áhuga, á þetta hérna á lager....

Svo er ég að fara í jólakortaframleiðsluna, ætla að selja jólakortin ódýrt í ár :-)  Er líka með tækifæriskort - er farin að taka niður panntanir fyrir jólakortin og mun afhenda þau um mánaðarmótin :-)

 kveðja Elísabet


2 ár í dag

jámm 2 ár í dag síðan ég hitt elskuna mína í fyrsta skipti :-) þó svo að við höfum nú spjallað eitthvað þar að undan þá er þetta okkar dagur InLove

En karlinn fór í vinnuna í gær þannig að ég hef ekkert séð hann í dag, en hann kemur seinnipartinn á morgun!!

Annars er dagurinn bara búinn að vera eins og hver annar dagur, reyndar höfum við verið með hugann norður á Siglufjörð og kvaddi elskulegi langafi stelpnanna í dag, sendi innilegar samúðarkveðjur til alls hans fólks.  Stelpurnar rifjuðu upp góðar minningar hér í kvöld og var það gott, þær eru svo minnugar þessar elskur að langafi þeirra á Sigló verður alltaf í þeirra hjarta, með þeim góðum minningum sem þær eiga um langafa sinn.

Er búin að vera löt í dag, svo hér bíður húsverk dagsins sem ég er bara ekki að nenna að byrja á en þetta hleyour víst ekkert frá manni, því nú ver og miður :-(

Ætla að skella mér á Irobot systurnar á morgun, í kreppunni sjálfri ég veit!! en jámm ég er búin að sannfæra mig um það að ÉG eigi þær systur sko skilið svo þær verða ættleiddar til æfiloka :-)

kveðja Elísabet


Andvökunætur

Ohhh ég er orðin svo þreytt á þessu, stundum er ég sofnuð eða svona rétt við það að sofna þegar ég bara glað vakna og jájá engin þreyta og því engin svefn :-( 

Hvað er málið eiginlega?  Er kannski búin að sofa frá 30mín-2 tíma og jájá bara vakna og velti mér svo til og frá í rúminu með mikin fögnuð karlsins eða hitt þó og heldur, enda svo á því að fara fram og jámm enginn svefn :-( 

Annars allt gott að frétta hérna, er á kafi í smáhlutaboxum að flokka og skipuleggja, ef þetta er ekki klikkun þá veit ég ekki hvað!  Jájá ég er t.d. að flokka svona sirka 500 tölur í öllum stærðum og gerðum eftir litum, svona 3000 kósur/eylet eftir litum og gerðum og svona 5000 splitti einnig eftir litum´haha svona get ég talið áfram og allt er þetta flokkað í pínulítil hólf svo hver og einn litur fær sín hólf :-)

Annars er voða skemmtileg skrappleikur í gangi á skrapplistanum og eru Harpa Katrín og Sólveig Birna alveg að slá í gegn í þeim leik, eru náttúrulega lang yngstar og rúlla þessum verkefnum upp með glæsibrag, hvað annað :-)

Annars ætla ég að reyna að gera enn eina tilraunina að skríða uppí rúm svo ég segi bara góða nótt...

 


afmæli, skírn, myndir og fleira

Hér er allt gott að frétta, við fengum að leika okkur með Jasmín Rós skvís til klukkan fjögur í dag, alveg yndislegt, hún er svo góð og yndislegust :-)

Rebekka kom skríðandi uppí til mín í morgun og sagði "elsku mamma ég vil svona lítið systkyni" ég sagði henni að hún ætti lítinn bróðir hjá pabba sínum og þá kom "en mamma ég vil eiga litla systir hér hjá þér!"  jájá bara krútt - en þeim systrum verður nú ekki að ósk sinni, alla veganna ekki í bráð :-) Er alveg blessunar laus við allt klink :-)

Skarphéðinn litli bróðir minn á afmæli í dag - til hamingju með 29 árin elsku brósi - ég heimta partý eftir ár :-)

Á morgun er það svo skírnarveisla, mikil spenna og tilhlökkun að fá að vita hvað prinsinn á að heita :-) Stelpurnar eiga að lesa í kirkjunni svo þetta verður bara gaman :-)

Þuríður gamla barnapían mín og eiginlega pössunarbarnið mitt þegar ég var yngri er bara á FSA núna að eiga sinn frumburð - ohhh hlakka til að fá að knúsa litla frændsystkyni mitt þar, vona að ég fari bara að fá símtal fljótlega :-)

Annars tóku stelpurnar mynd af gellunni í dag hahaha svo ég skellti hér í fitubollualbúmið myndum en fyrri myndin er tekin núna í dag 15kílóum léttari Wink  og hin í janúar 2008

 Blessaður skuggi að trufla mig þarna en jæja ég er þá komin með myndir

kveðja Elísabet

Jan 200815 kíló

 


15 kílóum léttari :-)

og af því tilefni fór ég uppí skáp og náði í fullann kassa af FÖTUM :-)  jámm fötum sem ég átti fyrir 2 árum síðan þegar ég var jafn þung og ég er í dag híhí nánast ónotuð eða lítið notuð föt svo ég ´týmdi ekki að setja þau í rauða krossinn ef ég skyldi nú ná að létta mig aftur.  Það var því voða gaman að fara í gegnum þetta, sumt vil ég bíða aðeins með að nota, kannski nota ég það aldrei :-)  en annað er ég t.d. í núna híhí

Annars allt gott að frétta hérna, er eitthvað að reyna að floKKa og svortera skrappdótið mitt, er búin að skrá mig í "Ertu klár skrappari"  s.s. leikur þar sem við skröppum 7 síður á 7 dögum, fáum fyrirmæli hvernig síðan á að vera fyrir hvern dag fyrir sig, svo það er bara hægt að skrappa eitt verkefni á dag - bara gaman og kannski kem ég mér í gang aftur.  Stefnan er að föndra eitthvað af jólagjöfunum sko!

Annars er ég að fara að passa Jasmín Rós "ömmuskvísuna" mína, okkur hlakkar voða mikið til og eru allir voða spenntir.  Mér þykir voðalega vænt um mömmu hennar og auðvitað Jasmín skvís líka.  Bara gott og gaman að geta aðstoðað þau og haft gott og gaman að því :-)

Annars er ég búin að smita Emmu Lovísu af skrappbakteríunni híhí hún er búin að koma hérna í nokkur skipti og skrappa voða gaman og er hún bara þvílíkt að brillera í þessu  - rosa flottar síður hjá henni og er ég bara voða lítið að aðstoða hana :-)

Rebekka greyið litla fór bara að hágráta hér í gærkveldi þegar hún átti að fara að sofa, hún vildi fá Halldór pabba sinn og sagðist sakna hans svo rosalega mikið :-(  Greyið litla hefur náttúrulega ekki séð hann núna í mánuð og skiljanlega er hún farin að sakna hans.  "ég sakna svo Halldórs pabba, Rósu og litla bróðir"  ég átti bara bákt með mig, fann svo til með henni en reyndi eins og ég gat að útskýra fyrir henni að núna væri pabbi hennar á sjónum og hún gæti ekki farið til hans.  Ég leifði henni svo að hringja í pabba sinn og róaðist hún aðeins eftir það, en fór svo aftur að hágráta þegar hún var komin uppí rúm "mamma ég elska þig svo mikið, viltu lúlla hjá mér" þessi dúlla mín er bara draumur.  Það tók mig smá tíma að útskýra fyrir henni að ég gæti ekki sagt hvenær hún færi til pabba, hann vissi það ekki sjálfur, en hann þyrfti fyrst að veiða fiskinn og svo gæti hún hitt hann.  En þetta tókst að lokum og hefur hún nú ekkert minnst á hann í dag.

Stóru skvísurnar eru allar í vetrafríi svo að það er bara dekur og dúllerí hér, þær eru svo allar í bíó núna með Elvari

Jæja bara knús og kram til ykkar allra :-)

kveðja Elísabet


Næsta síða »

Höfundur

Elísabet Sóley Stefánsdóttir
Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Ég er ein af þessum súpermömmum, á fjórar skvísur, kærasta, vinkona, dóttir, systir og gæti talið endalaust upp

Styrktarreikningur Landsamtakanna Liðsmenn Jerico - samtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda eineltisofbeldis  - reikninsnúmerið er 1158-26-034147  Kt: 641008-0280

 

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband