21.11.2007 | 23:15
rúsínublogg
Jæja smá krúslufréttir
Skvísan tók upp á því eftir eina norðurferðina að heimta bleiju þegar hún svæfi, ætli hún hafi ekki fengið bleiju á nóttunni þar og fundist það mun þægilegra en þurfa að vakna sjálf og fara á klósettið
Nú jæja ég ákvað að leifa henni að fá bleijuna þá nóttina og hún hefur svo ekki tekið annað í mál eftir það, heimtar alltaf bleiju og ég jájá ég veit leift henni það, Stundum hefur hún pissað í hana og stundum ekki. En hún var sko löngu hætt að pissa á sig á nóttunni.
En í kvöld ákvað hún að hún vildi sko ENGA bleiju og ég bara mjög sátt, enda hefur hún ekki pissað í bleiju í marga daga.
Svo er nú annað krúslufréttir hún náttla er eins og spegilmynd af Dagný apar allt upp eftir henni og er eins og rispuð plata á eftir henni. Þegar hún vaknaði svo áðan til að fara á klósettið þá sagði hún ELÍSABET!!!!! jájá ég er barasta ekkert mamma lengur bara ELÍSABET því Dagný segir náttúrulega yfirleitt nafnið mitt. Fyrst fannst mér þetta nú pínkuponsulítið fyndið. En váá hún er að auka þetta all svakalega og er þetta nú eiginlega farið að líta hálf vandræðalega út ég er Elísabet ekki mamma og svo á hún pabba út um allan bæ, eða alla veganna heldur hún það haha
jájá svo ég útskýri kannski smá þá er skvísan mín á einhverfurófinu, fyrir ykkur sem þekkið mig ekki
kveðja súpermamma
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Af mbl.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.