8.2.2008 | 11:55
tíminn líður hratt
á gerfihnatta öld :-)
Jájá þetta er ótrúlegt, hver vikan fíkur áfram og ég afreka EKKERT. eða jújú það er bara brjálað að gera í öll öðru en ég á að sinna, eða þar að segja SKÓLINN. Er að renna á rassgatið með þetta allt saman svo mikið að gera í uppeldi og umönnun barnanna. Keyra hér og keyra þar, sækja hér og sækja þar, fundur hér og fundur þar, aðstoða hér og aðstoða þar og þannig get ég haldið áfram ENDALAUST!!
Nú Rebekka er ekki enn búin að fara í heilaritið, þetta ætlar að ganga eitthvað erfilega. Hún átti að fara fyrir rúmri viku síðan, en þá vildu þau ekki fá hana vegna þess að hún var svo ný búin að vera með hlaupabóluna, svo átti hún að mæta í gær. Klukkan 07.30 var hringt í mig og mér tjáð að tímanum hafi verið frestað vegna neyðartilfella. Nú jæja við áttum þá tíma klukkan 13.00 í dag. En svo hringir hjúkkan sem vinnur með Ólafi Thor og þá láðist þeim að skoða skýrsluna hennar Rebekku og verður þessi rannsókn ekki gerð nema að hjúkkan sé einnig. Svo við vorum beðnar um að fresta þessu um viku. En þá er ég á leiðinni út úr bænum svo ég neitaði því og þá var farið í að leita af tíma sem henntaði öllum aðilum s.s. mér, Rebekku, hjúkkunni og taugarannsóknardeildinni. Þetta gekk eftir og eigum við að mæta á þriðjudaginn svo framalega að ekkert komi uppá :-)
Sólveig skvís keppti síðustu helgi og lenti í 6. sæti og fékk verðlaunapening. Ótrúlega stollt af minni og þá er það bara mótið á morgun og komast á pall þar líka :-)
bara að láta aðeins vita af mér, ætla að reyna að skipuleggja mig aðeins hérna, næsta vika eitthvað svo bissý
kv Elísabet
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 73887
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.