7.4.2008 | 09:52
Ef draumurinn í nótt/morgun........
myndi rætast þá væri ég í góðum málum
Ég sem sagt fékk tækifæri til að hitta alla þá helstu fræðimenn sem ég er að grúska í núna og rökræða við þá í eigin persónu haha verst að flestir þessir fræðimenn eru löngu komnir undir græna torfu og því fæ ég aldrei tækifæri hehe Eða jú kannski í næsta lífi hahaha
En jájá ég lærði til 4 í nótt og náði aðeins að finna fræðilegar heimilidir til að sanna mál mitt eða þannig. úffff ég viðurkenni það að ég er ansi kvíðin fyrir þessu öllu saman en vona innilega að ég nái að klára þetta... guð hvað ég verð þá glöð.
Sá í dagbókinni minni til mikilla skelfinga að ég á að sækja um masternámið í síðasta lagi á föstudaginn!! úffff ég sem ætlaði mér að fara beint í masterinn, hef engann tíma til að gera þessa umsókn og þá ferilskrá sem ég á örugglega að skila með!! svo er ég líka orðin svolítið efins, á ég að fara í áframhaldandi nám eða ekki?? ég bara veit að ef ég fer ekki núna þá held ég að ég komi mér aldrei af stað aftur :-( En eins og staðan er núna þá er ég líka orðin langþreytt en jú það er frí í sumar.. æiiiii veit ekkert hvað ég á að gera
kveðja Elísabet
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Af mbl.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Farðu beint í masterinn - ef þú ætlar að taka hann á annað borð. Ég ætla alla vega ekki að taka pásu :)
Petí (IP-tala skráð) 7.4.2008 kl. 15:35
Ekki hika við að fara í masterinn. Miðað við kröfurnar sem er verið að gera á kennara. Þá er það ekki spurning að fara.
Linda Birna (IP-tala skráð) 7.4.2008 kl. 18:34
Go girl, þú ert þreytt núna og þá virðist þetta allt miklu erfiðara. Gerðu umsóknina og svo verður þú tilbúin þegar þar að kemur :-)
kveðja
Ofurskutlan
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 7.4.2008 kl. 20:00
Ekki fresta því að fara í masterinn!! Því um leið og maður frestar hlutunum er svo mikil hætta á að maður sleppi þeim....og líka : Illu er best aflokið er það ekki annars
Huldabeib, 7.4.2008 kl. 23:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.