8.4.2008 | 00:24
jájá full bjartsýni
í dag...... en ekki lengur!!!!! já nú sveiflast ég eins og ég veit ekki hvað...
Komst á skrið í dag en er svo bara búin að vera að ÞJÁST eftir að ég kom heim, Petí elskuleg las nú yfir það sem ég var komin með og leiðrétti náttúrulega FULLT af málfræði/stafsetningarvillum, TAKK ELSKU PETÍ MÍN, þú gafst mér innblástur hér í vonleysinu....
Ætlaði að vera dugleg í lærdóm í kvöld/nótt en bara allt stopp og ég er líka bara orðin ÞREYTT. Nenni þessu ekki og farin að hugsa um að fresta þessu bara og dúlla mér við þetta í sumar og skila ritgerðinni þá frekar frá mér sátt, heldur en í svona flýti
Æiii en svo langar mig svo að útskrifast með skvísunum ohhh þetta er togstreyta dauðans hérna...
Á ég að gera það sem ég get og skila ritgerðinni inn þó svo að ég sé ekki fullkomlega sátt við hana? Næ þá líklega að útskrifast á R'ETTUM tíma, afmælisdaginn minn og með MÍNUM GELLUM.....
Eða á ég að nota tímann í vor/sumar og vinna ritgerðina eins vel og ég get og skila henni þá frá mér sátt? og Útskrifast þá frekar í október?
ææiii jájá svona líður mér núna!
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú getur þetta dugnaðarfroskur, he he. Takk fyrir að lána ömmu og afa stelpurnar í ferminguna. Rebekka var svo góð og Gestur sló í gegn hjá litlu stelpunum. Er farin á Sigló til að hlaða batteríin, heyrumst.
Bylgja Hafþórsdóttir, 8.4.2008 kl. 08:18
hehe það var bara sjálfsagt. Frétti að Rebekka hafi alveg haft afa sinn í "vasanum" hehe alveg dekstruð út í eitt. Þau eru yndisleg
Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 8.4.2008 kl. 08:38
Koma svooo...þetta er alveg að hafast hjá þér, ekki gefast upp. Nú er bara að spýta í lófana og rusla þessu af - þú getur þetta alveg...annað eins hefurðu nú afrekar og miklu meira en það. Miklu skemmtilegra að eiga sumarið alveg skuldlaust frá lærdómi.
Smilla, 8.4.2008 kl. 08:39
Ég jáa hana Smillu :D
Sigurrós (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 18:18
Alltaf að kíkja og athuga hvernig gengur með ritgerðardrusluna. Ég veit það róar þig kannski ekkert en samt... þetta er alltaf svona! Þú ert alveg að lýsa mér í bæði skiptin. En svo bara hefst þetta svo merkilegt sem það er nú.
Áfram Elísabet...... baráttukveðjur frá Rotterdam
Unnur Bjork (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 09:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.