2.7.2008 | 22:47
10 kg múrinn unninn :-)
og nýr tugur einnig :-) jájá ég veit eiginlega ekki hvað er að gerast með mig ég er bara að léttast og léttast en hef ósköp lítið fyrir þessu. Allir að spyrja mig hvernig ég fari eiginlega að þessu og ég hummm á ekki mörg svör!!!
Jújú ég er orðin mun meðvitaðri um þá staðreynd að ég er matarfíkill!!! Brynjar nuddarinn minn hamrar þessu í mig í hvert einasta skipti sem ég fer til hans - orðið svolítið þreytt ég veit það en samt svo nauðsynlegt að fá skammirnar :-) Því hann kemur mér alltaf af stað aftur.
Það sem ég hef messt passað mig á er að borða EKKERT eftir kvöldmat, ég reyni að sleppa alveg öllu narti á kvöldin og ef mig langar í eitthvað á milli mála þá er það ávextir eða grænmeti. Ég er að reyna allt til þess að sleppa namminu alveg, það hefur gengið ágætlega en ég fær mér samt alltaf eitthvað smá inná milli. Ég er svo einnig að reyna að forðast/borða minna af kolvetnum eins og brauði, hrísgrjón, pasta og allt það...
Núna er ég mikið að spá í að láta verða að því að fara á GSA fund, ég lofaði Brynjari að vera búin að mæta einnig á Alanon fund og byrjuð að skoða sporin þar svo ég verð bara í þessu enda þarf ég á því að halda hehe
Sólveig Birna hefur það mjög gott úti, ég er búin að vera að skrifa fréttir á heimasíðuna hennar og mun setja inn myndir um leið og þær koma á netið.
Annars allt þokkalegt að frétta hér, er búin að vera reyndar alveg fárveik síðan á mánkvöld og varla komist fram úr rúminu úffff og það sem meira er að ég er með svo mikla hálsbólgu að ég get ekki borðað neitt né drukkið að ráði og er því líkaminn kominn í svelt og það er ekki það sem ég vil. Bað Elvar að kaupa fyrir mig skyrdrykki og eitthvað fljótandi en svo hef ég bara enga lyst. Hér var pönntuð pizza og brauðstangir og ég smakkaði það ekki einu sinni. Enda sýndi vigtin rúm 2 kíló minna en á mánudaginn - sem kemur alveg pottþétt á mig aftur reyndar, ef ekki þá er ég orðin 12 kíló léttari :-)
Knús og kram
Elísabet
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Af mbl.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ji hvað þetta er flott hjá þér! Frábært að þetta gangi svona vel.
Smilla, 3.7.2008 kl. 02:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.