14.7.2008 | 22:54
Hvað skal gera?
Jæja ég mætti náttúrulega ekki á fundinn minn í kvöld, búin að vera mjög tvístígandi og eiginlega veit ekki af hverju....... Held að ég sé eins og alkarnir sem eru alltaf að bíða eftir rétta tímanum að taka á sínum málum Ég er eiginlega ekki að treysta mér af stað, það er svo margt sem ég má ekki borða aldrei!!! sem ég er bara ekki að sjá gerast!! Jájá hef kannski ekki trú á sjálfri mér og veit innst inni að ég mun endalaust vera að "falla" hvað þýðir það? ekki tilbúin?
Ég notaði s.s. slappleika og bakverki sem afsökun fyrir því að fara ekki á fundinn. Við erum búin að vera að brasa hérna og erum búin að taka allt út úr herbergi Sólveigar og erum að mála.. Bakið mitt sagði svo STOPP NÚ í dag og ég því búin að vera hálf vonlaus hérna.
Vigtin er enn á niðurleið svo ég er í "afneitunarástandinu" og er að reyna að telja sjálfri mér trú um að halda áfram ein og fylgjast vel með vigtinni og heilsunni. Ef hún fer að fara meira ein 1kg upp þá veit ég hvað ég þarf að gera - mæta á fund. S.s. er þetta bara bull í mér? eða á ég að reyna að halda áfram minni braut en vera meðvituð um að ef þetta gengur ekki hjá mér, ég fer að svelta mig eða fer í ofát og þyngist þá fer ég á fundinn og HANA NÚ!!!
Er að spá í að vera frekar opin hérna og já kannski að gefa upp þyngdartapið hérna svo þið getið fylgst með, ef ég uppfæri það svo ekki þá vitið þið hvert ég er farin á fund :-)
Ég hef mjög mikla trú á þessu, ég veit að ég þarf að viðurkenna vanmátt minn og ég veit að 12 sporin er það sem ég þarf að ganga í gegnum, ennnn og já það er alltaf þetta ennnnnn ég er ekki tilbúin að neita mér um þessar matartegundir forever!!! En hvað þarf Alcoholisti að gera? Hann þarf að neita sér um vissar drykkjartegundir forever til að ná bata!! Þetta er rökrétt og það sem meira er ÉG VEIT ÞAÐ!!!!
kv Elísabet
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Af mbl.is
Innlent
- Lyftari yfir fót og rjúfa þurfti hurð
- Er kynjastríð í uppsiglingu?
- Dæmdur fyrir kynferðislegt nudd á stjúpdóttur
- Viðræður í Karphúsinu ganga misvel
- Sjálfstæðisflokkurinn á einhvern hátt stjórnlaus
- Áttu að rannsaka akademíuna en gerðu það aldrei
- Kona myrt á 10 mínútna fresti
- Fatlaður drengur fær ekki þjónustu í verkfalli
- Svona verður verkfall lækna á Akureyri
- Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn systur sinni
Viðskipti
- Dr. Bjarni Pálsson til Vinds og jarðvarma
- Icelandair færir eldsneytið til Vitol
- Arkitektar ósáttir við orðalag forstjóra FSRE
- Ný ríkisstjórn þurfi að hafa hraðar hendur
- Indó lækkar vexti
- Hlutverk Kviku að sýna frumkvæði á bankamarkaði
- Þjóðverjar taka við rekstri Fríhafnarinnar
- Trump lyftir Bitcoin-verði í hæstu hæðir
- Ekki svigrúm til frekari launahækkana
- Sækja fjármagn og skala upp
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
í 12 sproasamtökum er mælt með að hafa hlutina einfalda
Þráhyggjan er vond vinkona... Ég vona að hvaða ákvörðun sem þú tekur verði rétt fyrir þig. Þú ert velkomin hvenær sem er.
Helga Dóra, 14.7.2008 kl. 23:45
takk fyrir elsku Helga Dóra, bara að ég myndi vita hvaða ákvörðun sé rétt?
Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 15.7.2008 kl. 00:46
stattu þig stelpa, allt er flókið og erfitt fyrst, þú þarft að setja þig í forgang og ekki ofhugsa þetta, ef þetta er það sem þú vilt þá kemur þetta á endanum.
Brussan, 15.7.2008 kl. 07:26
Halló, halló, auðvitað veistu hvaða ákvörðun er rétt! Varstu kannski búin að taka hana en ert hrædd ? Hlustaðu á innsæið þigg og þú veist svarið! Svo er bara að stíga skrefið, lengra en þú þorir! Hoppa út í djúpu kona og treysta því að einhver hendi til þín björgunarhring!
Eða með öðrum orðum Ef maður gerir ekki neitt- þá gerist ekki neitt!
Baráttu og stuðningskveðjur
Ofurskutluknús
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 09:14
Innsæið þitt átt þetta nú að vera, en einmitt við gerum öll mistök og þá reynum við bara aftur:)
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 09:15
Þetta er erfitt fyrstu vikunnar en svo sérðu árangur . Breyttu hugsunni að þú getur þetta og hvað þú ert flott kona og þú og líkaminn þinn eruð að vinna í þessu saman. Það hjálpar mikið.
kveðja frá króknum!
þorgerður Þórhallsd (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 10:48
Ég tek bara undir með hinum sem skrifuðu á undan. Það er best að stökkva bara út í djúpu áður en maður fær tækifæri til að verða hræddur.
Steinunn Ósk Steinarsdóttir, 15.7.2008 kl. 14:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.