8.8.2008 | 13:01
Eric Clapton í kvöld
og hlakkar mig svo mikið til :-) Hann var fyrsti erlendi tónlistarmaðurinn sem ég fjárfesti CD :-) Minnir að ég hafi verið þá um 12-13 ára og CD græjur bara frekar nýtilkomnar úpppsss hvað maður er orðinn GAMALL!!!!
Annars er ég eiginlega komin með UPP Í KOK af þessum framkvæmdum hérna, sem taka svo LANGAN tíma og allt í drasli á meðan :-( Væri alveg til í að fá svona eins og 10 auka hendur sem gætur bara bjargað þessu á mun styttri tíma :-) Æiiiii held að ég sé eitthvað svaka þreytt núna, uppgefin og eiginlega kannski bara líkaminn að segja stopp og hana nú!!! Ég hef bara því miður ekki heilsu í svona til lengdar!!!
Ennn herbergið hennar Hörpu er að verða tilbúið, þar eða að segja búin að mála, á eftir að lakka gluggakistuna 1-2 umferðir í viðbót, hún var svo illa farin og á líka eftir að lakka hurðakarmanna og hurðina, en ætla að enda á því. Svo er að þrífa skrifborðið, rúmið, dýnuna og fara í gegnum DRASLIÐ, henda og svortera úffffffff
Fór og keypti mér hveitikímið, yessss er það ekki svolítið byrjun haha en váá hvað mér finnst erfitt að byrja, er eitthvað í svo lausu lofti, framkvæmdir, 3/4 barnlaus og lítið spáð í matarræði og hollustu þessa daganna ;-( Hef samt reynt að borða reglulega í fríinu og vonandi er ég eitthvað niður eða stend í stað og þvi ekki þyngri en áður en ég fór í frí. Vigtin er batterýslaus svo ég veit ekki töluna, batterýin eru komin á innkaupalistann hehe þau bara fást ekki hvar sem er svo það gæti tekið mig ansi langan tíma að koma þessu í verk, eins og svo rosalega mörgu öðru
kveðja í bili
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 73887
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Skil þig svooo vel að vera komin með upp í kok af framkvæmdum.
Þetta er alltaf ferlega spennandi þegar hugmyndin kemur upp, þegar maður er svo aftur á móti byrjaður skilur maður ekki hvernig í veröldinni manni datt til hugar að standa í þessu. En það er ansi ljúft þegar þessu lýkur.
Smilla, 9.8.2008 kl. 17:13
Það getur verið sniðugt, hef ég heyrt,,,, að forgangsraða... Ekki eitthvað em eg er sérfróð í... En hefur víst reynst fólki afar vel......
Helga Dóra, 10.8.2008 kl. 11:13
Kærleikskveðja til þín og þinna.
Kristín Snorradóttir, 12.8.2008 kl. 09:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.