31.8.2008 | 22:24
barnlaus helgi
ótrúlegt en satt þá áttum við barnlausa helgi!! En hvað gerum við, VINNUM!!! Elvar kom reyndar heim í gærmorgun og áttum við góðan dag, fórum í Íkea og eyddum þar einhverjum peningum sem eru ekki til úffff seinna tíma vandamál :-) fórum svo í brúðkaup, alltaf svo yndislegt í brúðkaupum.
Erum svo búin að vera á fullu hérna í dag, herbergi litlu prinsessanna að verða tilbúið og þá er að ráðast í föndur/bóka og vinnuherbergið úffff það er sko vinna!!
Erum búin að sofa 4 nætur í nýju rúmi og er ég ekki að venjast því ;-( Bakið á mér í klessu og axlirnar líka ohhhhh vonandi fer ég að venjast rúminu, ömurlegt að vera í klessu alla daga, ekki það að ég er nú því miður aldrei verkjalaus en næ ný yfirleitt að þrauka dagana áfram en geri það nú ekki lengi svona :-(
Börnin komin til baka og öll sofnuð enda skóli og leikskóli á morgun, brjáluð dagsskrá hjá mér líka
góða nótt
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 73887
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hef heyrt að það taki 2 - 3 vikur fyrir kroppinn að venjast nýju rúmi....
Gangi þér vel....
Helga Dóra, 31.8.2008 kl. 22:32
jamm ég á víst að gefa þessu 3 vikur en OMG mér finnst þessir fjórir dagar alveg miklu meira en nóg!!! kvíður fyrir að leggjast í rúmið :-(
Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 31.8.2008 kl. 23:15
Sammála Helgu Dóru! Þetta tekur tíma og tekur líka á svona auman skrokk sem er þó alltaf á fullu! Þú þyrftir (eins og fleiri) að prófa hugleiðslu ... er sjálf alltaf á leiðinni með það ... En þú ert yngri og skynsamari :) Passaðu þína dýrmætu þig!
Freyja, 1.9.2008 kl. 00:41
Sammála þeim hér fyrir ofan, alltaf tími fyrir kroppin að aðlagast nýju rúmi. En þetta verður besta rúm eftir þessar vikur. En það er líka gaman að skella sér í Ikea og versla og eyða peningum í buddunni þótt að maður sé heil lengi að vinna fyrir því. En þetta hefur verið samt yndislega helgi fyrir ykkur.
kveðja að norðan.
Þorgerður (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 10:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.