3.11.2008 | 20:01
2 ár í dag
jámm 2 ár í dag síðan ég hitt elskuna mína í fyrsta skipti :-) þó svo að við höfum nú spjallað eitthvað þar að undan þá er þetta okkar dagur
En karlinn fór í vinnuna í gær þannig að ég hef ekkert séð hann í dag, en hann kemur seinnipartinn á morgun!!
Annars er dagurinn bara búinn að vera eins og hver annar dagur, reyndar höfum við verið með hugann norður á Siglufjörð og kvaddi elskulegi langafi stelpnanna í dag, sendi innilegar samúðarkveðjur til alls hans fólks. Stelpurnar rifjuðu upp góðar minningar hér í kvöld og var það gott, þær eru svo minnugar þessar elskur að langafi þeirra á Sigló verður alltaf í þeirra hjarta, með þeim góðum minningum sem þær eiga um langafa sinn.
Er búin að vera löt í dag, svo hér bíður húsverk dagsins sem ég er bara ekki að nenna að byrja á en þetta hleyour víst ekkert frá manni, því nú ver og miður :-(
Ætla að skella mér á Irobot systurnar á morgun, í kreppunni sjálfri ég veit!! en jámm ég er búin að sannfæra mig um það að ÉG eigi þær systur sko skilið svo þær verða ættleiddar til æfiloka :-)
kveðja Elísabet
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
til hamingju með áfangann..en ...en ..en er komið meira Irobot ? Ég á sko ryksuguna
Ragnheiður , 3.11.2008 kl. 22:31
jamm skúringarvélin er mætt á svæðið :-)
Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 4.11.2008 kl. 02:37
Hvar kaupiru þessa græjur Elísabet? Mig langar svoooo mikið í þetta... er að spá í að gefa mér og bóndanum þetta í jólagjöf !
Rannveig Lena Gísladóttir, 4.11.2008 kl. 09:26
Irobot.is eða Byggt og búið :-) ohhh ég hlakka svo til að prufukeyra systurnar á morgun híhí
Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 4.11.2008 kl. 09:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.