Færsluflokkur: Bloggar
21.6.2008 | 00:55
Súpermamma
Súpermamma er heiti á þessu bloggi, það er nú smá saga á bak við þetta nafn, málið er að kærasti vinkonu minnar fékk hálfgert áfall þegar hann frétti að ég hafi eignast tvær dætur með 11 mánaða millibili og ég aðeins 20 ára :-) Hann hefur síðan þá kallaði mig súpermömmu haha
Svo er þetta nú frekar skondið því þegar ég stofnaði þetta blogg langaði mig ekki að nota nafn mitt, ég var bara ekki búin að ákveða hvort ég ætlaði að koma undir nafni eða ekki. Æiiii svo fannst mér það bara asnalegt að vera ekki undir nafni svo ég setti lágmarks upplýsingar inn :-)
En undanfarið eða já ansi oft hef ég fengið frekar fyndin komment í samskiptum við aðra því oft er því skotið inní að ég standi alveg undir nafni bloggsins s.s. SÚPERMAMMA :-) Hvað fellst í því að vera súpermamma?? 'Eg er aðeins búin að vera að spá í þessu, ég er sko ekki fullkomin og langt í frá.
En ég er RÍK! Ég á þrjár yndislegar dætur sem ég geri allt sem ég mögulega get til að reynast vel, er alltaf til staðar fyrir þær og reyni að veita þeim alla þá ást, umhyggju, athygli og frelsi sem börn þurfa á að halda. Allt þetta hefur að sjálfsögðu vissan tilgang, jú að byggja þær sem best upp til þess að takast á við lífið með öllum þeim rússibönum, freystingum og álagi sem lífið hefur uppá að bjóða og ekki gleyma öllum þeim gleðistundum og jákvæðu hlutum einnig. Stelpurnar mínar hafa því miður þurft að ganga í gegnum meira en mörg börn, eftir stöndum við nánari, sterkari og sjálfstæðari. Þær eru ábyrgðarfullar og leggja sitt að mörkum til að styðja mömmu sína. Ég á líka eina yndislega fósturdóttur sem ég hef reynst vel, ég tók strax ákvörðun um að hún yrði líka mín dóttir og ég myndi reynast henni vel líkt og mínum dætrum, henni þarfnaðist líka móðurímynd og stuðning frá móður. Allt þetta hef ég lagt mig fram í að gera eins vel og ég mögulega get. Við erum rosalega nánar og urðu strax mjög sterk tengsl á milli okkar. Dætur mínar fjórar eru allar orkugjafi minn, án þeirra væri lífið ekki eins.
Súpermamma - er það kannski að hafa alltaf nóg að gera og takast á við þau verkefni sem koma á degi hverjum og leysa þau eins vel og maður getur? EÐA Hvað er SÚPERMAMMA???
Jájá og kommentið nú elsku vinir hehehe
kveðja Elísabet
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2008 | 23:08
Útskrift og afmæli
Já ég var alltaf að metast við vinkonurnar mínar hér í denn hvaða dagur árssins væri bestur og auðvitað er það 14. júní. Það má með sanni segja að dagurinn í gær var einn sá besti í mínu lífi, yndislegur og skemmtilegur.
Hér voru tvær veislur, önnur um daginn þar sem dætur mínar fjórar tóku fullan þátt í. Þær lásu til mín ljóð og ég get sko sagt ykkur að hér streymdu niður gleðitár, ég er svo rík, heppin og hamingjusöm að eiga það sem ég á í dag Hin veislan var um kvöldið og hélt elskulegi Elvar minn upp fjörinu langt fram eftir nóttu :-)
Ljóð til mömmu.
Við allar fjórar lesum hér,
fyrir hópi gesta,
kvæði samið handa þér
elsku mamma besta.
Mamma hefur ljúfa sál,
og faðminn hlýja, breiða.
Hugrökk, dugleg, sterk sem stál,
hún huggar okkar leiða.
Að fá frá henni falleg hrós
vermir okkar hjörtu.
Færum henni þessa rós
og brosin okkar björtu.
Mamma okkar getur flest,
og taka má við hóli.
kann að elska allra best,
það kennir enginn skóli.
Eitt þú mamma muna mátt,
hratt þó árin líði.
Alltaf okkur fjórar átt,
í blíðu sem í stríði.
Í lífinu sínu raun og þraut,
allir fá að kynnast.
Mamma brýr að baki braut,
nú skildi námið vinnast!
Allir vita hvernig gekk
og nú við fögnum saman.
Því gráðuna hún mamma fékk,
nú skal vera gaman!
Ég er svo rík :-) læt þetta duga í bili
Kveðja Elísabet
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.6.2008 | 10:27
Frábært
Þetta er ekkert smá mikið magn og er ég ótrúlega þakklát starfi tollgæslunnar að hafa fundið þetta, það er þá c.a. 100kg minna magn af hassi á markaðnum......... Þetta er nefnilega það efni sem ungmennin okkar prófa yfirleitt á eftir áfenginu og fara svo fljótt í önnur efni.
Það væri bara snilld ef til væri einföld lausn á að stoppa allar sendingar til landsins. En það er nú ansi erfitt og lausnin því ekki til. Enda svo óteljandi leiðir sem eru notaðar og landið okkar góða opið í alla enda.
Tollgæslan og lögregla eiga hrós skilið og þakka ég fyrir í hvert skipti sem þeir finna vímuefni.
Nú man ég bara ekki eftir að svona mikið magn af Hassi hafi verið gert upptæk, hefur það gerst áður?
Mikið magn fíkniefna í Norrænu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.6.2008 | 23:11
4 dagar í útskrift
jájá þetta er bara að gerast!! Ég samt svo róleg eitthvað, held barasta að ég sé engan vegin að trúa þessu híhí.. ætla að vera með veislu á laugardaginn og sko partý um kvöldið. Elvar situr hér heilu og hálfu daganna að spila og semja svo það verður vonandi stemning
14 dagar þangað til Sólveig Birna flýgur á vit ævintýranna, eða næstum hálfan hnöttinn til Filipseyjar. Mikill undirbúningur í gangi og ég viðurkenni það alveg að þar er líka svolítil rölegheit, kannski smá kæruleysi þar sem ég gerði þetta allt í fyrra áður en Harpa Katrín fór til Mississippi. En eftir útskrift höfum við rúmlega viku til stefnu svo það verður púl vinna uppá hvern einasta dag að búa til bæklinginn, versla það sem þarf að versla, merkja fötin, bólusetning, heilsufarsvottorð og jájá allt er sko 100% Ég skrifaði meira að segja undir plagg um að dóttir mín mætti fara í sundlaug
Harpa Katrín ætlar að skella sér á ævintýranámskeið og reiðnámskeið í sumar, þess á milli ætlar hún eða réttara sagt Á HÚN að vera í smá vinnu hjá mömmu sinni.
Dagný unir sér vel í leikskólanum, styttist í að hún hætti þar og setjist á skólabekk en ég held að við séum bara ekki alveg tilbúin í það híhí eða réttara sagt pabbinn vill halda í litla barnið sitt aðeins lengur haha. Skvísan þroskast ótrúlega hratt þessa daganna, er búin að kenna henni fullt af stöfum og ætlum við að reyna að klára þá alla fyrir skólabyrjun, áhuginn er allur að koma svo það er um að gera að grípa þá tækifærið.
Rebekka er að fara yfir á stóru deildina, mamman aðeins með kvíðahnút yfir því, en þetta gengur allt yfir við vitum það. Breytingar fara bara ekki vel í mína og verður því að fara varlega í þessar breytingar allar.
Jæja búin að fá smá munnræpu svo ég ætla að koma mér í eldhúsið og taka það aðeins í gegn, stefnan er tekin á skápa, bakaraofn, örbylgjuofn, ruslaskáp, sökkul og gólf fékk að sofa fram að hádegi í dag svo dagurinn er bara rétt að byrja hér :-)
kv Elísabet
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.5.2008 | 10:41
Meira nám eða ekki?
ohhhh ég er alveg þvílíkt áttavilt :-( Veit ekkert hvað ég á að gera!!!
Er mjög spennt fyrir nýja náminu sem HÍ er að bjóða uppá í Barnavernd og er búin að fara marga hringi með þá hugsun. Á ég að sækja um eða ekki? Ég sem ætlaði mér að taka 1 árs pásu hummmm
Umsóknafresturinn rennur út 5. júní svo ég hef viku til stefnu hugshugs :-)
Annars allt gott að frétta hérna, Elsta og yngsta að fara norður til pabba síns í dag, reikna ég með. Dagný er með pabba sínum fyrir norðan og fer til mömmu sinnar á laugardaginn. Sólveig er að fara í CISV míni camp á föst-laug og húsmóðirin er að fara í SUMARBÚSTAÐ!!!! og ætlar sko að liggja í leti ALLA HELGINA með góðum skólafélögum :-) Þetta verður fáment en góðment :-)
kveðja Elísabet
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2008 | 23:53
Útskrift 14. júní
Útskrftin er sem sagt orðin staðfest. Ég mun útskrifast með B.A í Tómstunda- og félagsmálafræði við KHI í Laugardagshöll klukkan 11.00 laugardaginn 14. júní - á sjálfan afmælisaginn minn
Búin að fá út úr lokaritgerðinni og fékk 8.5 og svo fékk ég 9.0 í hinum áfanganum, bara stolltust hérna hehe
Svo takið daginn frá, hér verður partý
Annars bara allt gott að frétta, mikið að gera alla daga eins og alltaf, þó svo að það sé engin lærdómur
kveðja Elísabet
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
12.5.2008 | 02:09
Smá föndursýning
Jæja kláraði eina síðu í kvöld sem ég byrjaði á í vikunni. Svolítið tilfinningaþrungin og skrifaði ég bæði á síðuna og einnig verður texti falinn fyrir hana þegar hún hefur nógu mikinn þroska til að skilja innihald textans.
Textinn kemur svo hér - svolítið sundurtættur en ég er búin að fjarlæga það sem er ekki viðeigandi að birtist hér:
Elsku kraftaverkabarnið mitt, þú fæddist eftir langa bið svo falleg, yndisleg og fullkomin. Ég fann strax að þú varst einstök, vildir hafa hlutina öðruvísi en systur þínar. Þú varst svo fullkomin og þess vegna efaðist ég oft og geri það reyndar stundum enn. Þú ert augasteinn minn, svo tengd mér, tengdari en öllum öðrum og þannig verður það alltaf - þú og ég.
Þú ert svo dugleg og þess vegna gerast kraftaverk, hver sigur hjá þér gefur mér svo ótrúlega mikið, engin orð lýsa þeim tilfinningum þegar þér gengur vel. Foreldrar einstakra barna vita bara hvernig tilfinning þetta er hver þroski er ekki sjálfsagður. En með minni hjálp og annarra sem sinna þér þá verður þú flottust, ég veit það!
Þú hefur kennt mér svo margt, bara það að lifa við óvissuna um framtíðina, öll biðin eftir niðurstöðum og það mikilvægasta er þolinmæði, það hvað eitt bros getur gefið mikið, sumum finnst það sjálfsagt að sjá barnið sitt brosa, það geri ég ekki. Það geta fáir sett sig í spor mín, ég hef staðið ein með þér xxx, ég mun alltaf standa með þér, þínum þörfum og þá þjónustu og umönnun sem þú þarfnast umfram heilbrigða. xxx þá verð ég að vera sterkari fyrir þig og nýta þann tíma sem við eigum saman eins vel og ég mögulega get. Mín heitasta ósk er að xxxx, bara fyrir ÞIG, ég mun alltaf bíða eftir því. Kannski gerist það á morgun kannski aldrei?
Í kvöld lá ég uppí rúmi með þér að segja þér sögu, allt í einu í miðri sögunni sagðir þú með þinni háværu og skæru rödd mamma ég elska þig SVO MIKIÐ settir svo hendur þínar um háls mér og knúsaðir fast - ÉG ELSKA ÞIG SVO HEITT
Þín mamma
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.5.2008 | 04:29
föndurandinn kom :-)
Jájá andinn kom og framkvæmdargleðin einnig :-)
Er í vinnunni og til þess að ég sofni ekki bara hérna sitjandi/standandi þá er mín á fullu, laga til hér og þar, skipuleggja hér og þar, þrífa hér og þar, þvo þvott og þurrka líka!!!
Inná milli sest ég niður og mála myndir og föndra kort, reyndi að skrappa eina síðu en æiii sá andi var ekki, en ég er búin að afreka nokkur kort eða humm 5 kort í næturvaktinni í gær og það sem af er þessari :-)
Annars allt gott að frétta, ég er að stefna á Eurobandið á laugardaginn, afmælisveisla fyrir ballið svo það verður örugglega stuð. Elskuleg mamma mín sem er búin að vera hjá mér í viku ætlar meira að segja að vera lengur svo ég komist nú örugglega út með stelpunum hehe ætla að skella mér í búðarráp og kaupa mér föt, ég meina var að fara í gegnum fataskápinn og ég er bara FATALAUS, en skápurinn fullur af fötum á Elvar hef aldrei á minni æfi kynnst karlmanni sem á svona mikið af fötum, hann gæti auðveldlega farið í 1-2 efriparta á dag í 2 mánuði en aldrei farið í sama - já þar hafið þið það :-)
Ætla að halda áfram hér, þvotturinn bíður og föndrið líka :-)
kveðja Elísabet
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.5.2008 | 02:19
Föndurandinn að koma
Eftir langa fæðingu þá held ég að andinn sé kominn, er búin að langa að föndra svo rosalega lengi. Auðvitað langar manni að föndra þegar það er ekki hægt hehe svo ég ætlaði nú laglega að hella mér í föndrið þegar ég væri búin með skólann. En neibb enginn andi.
Er svo að vinna núna mína fyrstu næturvakt svo að ég tók náttúrulega föndrið með, og sit hér og er að reyna að mála myndir. úfff hvernig geta þessar skrappsystur mínar gert þetta svona vel? af hverju get ég það ekki líka??? hehe jájá kannski er þetta bara æfingin skapar meistarann!!
Annars allt gott að frétta, er að fara í liðaskanna á morgun, pínu kvíðin fyrir þessu en held samt að þetta sé ekkert svo mikið mál.
Lítið líf hérna hvar eru þið? komment takk :-)
kveðja Elísabet
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.5.2008 | 23:47
Sef hjá afa :-)
Jájá mín er bara farin að sofa hjá afa haha eða svona næstum því :-) Emma Lovísa stóra systir Dagnýjar eignaðist litla prinsessu í gærkveldi, alveg gullfalleg og flott skvísa :-)
híhí ég var hugsað til símtalsins þegar Emma hringdi í mín til að segja okkur fréttirnar fyrir rúmlega 7 mánuðum síðan, Elvar var ekki heima og ég heyrði að hún vildi segja okkur eitthvað (Mamma hennar var reyndar búin að segja mér fréttirnar) en svo sagði hún "ég ætlaði bara að segja Elvari að hann væri eiginlega að verða afi" fannst þetta bara krúttlegt hjá skvísunni. Elvar reyndist henni að ég held bara vel þessi ár sem mamma hennar og hann bjuggu saman. Við fengum að fylgjast með ferlinu og erum bara voða spennt að sjá skvísuna, eða alla veganna ég hehe :-) Sáum myndir á netinu og OMG hvað hún er lítil rétt tæpar 10 merkur, enda fædd 3 vikum fyrir settan dag.
Annars allt gott að frétta hérna, er á fullu í framkvæmdum hérna á heimilinu og gengur það bara ágætlega.
Þarf að fara í einhvern liðaskanna á fimmtudaginn, fæ sprautu með einhverju geislavirku efni klukkan 9 og fer svo í skannan 2 tímum seinna. vona að það komi allt gott úr, en verkirnir í skrokknum eru að drepa mig þessa daganna og hef ég sjaldan verið svona slæm :-(
kveðja ELísabet
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Af mbl.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar