Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Til hamingju!

Innilega til hamingju Húsvíkingar!  Hvenær fær maður svo að heyra lagið Guðni?  híhí

Það fer vonandi að styttast í heimsókn á Húsavík. Greinilega mikið fjör hjá ykkur í dag

kveðja Elísabet

 


mbl.is Fjölmenni á 1. maí hátíð á Húsavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

B.A. námið búið!!!

Eða svona næstum því Halo   á morgun klukkan 16.00 ætla ég að vera búin :-)

Smá fínpússing eftir og svo er bara námsfrí!!! Ótrúlegt hvað maður er samt háður þessu eitthvað, finnst skrítið að vera búin eins og ég var komin með uppíkok!!!  Eiginlega strax farin að sakna skólans, námsins....  Fékk þá flugu í hausinn meira að segja að taka kennarann haha jájá neinei ég er búin að lofa sjálfri mér FRÍ!!!

Bara að láta aðeins vita af mér, er ótrúlega þreytt og andlaus og væri alveg til í smá orku og drifkraft til að hefjast handa hér á bæ!!  VEITIR EKKI AF

 


stress stress og meira stress

Jæja rétt rúmlega 14 tímar að tímafresturinn rennur út við lokaskilin!!!  Ansi mörgum sinnum síðustu sólarhringa hef ég verið að berjast við púkanna á öxlinni.  Annar vill hætta við, langar svo að gera þetta betur, skila verkinu frá sér með stollti og góðri samvisku og vera ekki í svona stress kasti á síðustu metrunum...   Hinn vill komast í FRÍ, klára þetta og útskrifast. 

Ég er búin að sofa ansi lítið síðustu sólarhringa eða kannski mætti segja mánuð!  Tíma áætlanir hafa ekki staðist og því er ég ekki fullkomlega sátt.  Ritgerðin er komin saman, aðeins fínpússing eftir sem tekur SVO LANGAN TÍMA, aðeins eftir að koma sjónarmiðum mínum frá mér í lokaorðin en að öðru leiti er hún búin.  Hlakka til að prenta hana út og skila, en undir niðri kraumar samviskubit, mórall yfir því að hafa þetta verkefni ekki fullkomið.  Eins og ég svo GLÖÐ myndi vilja, en það er ekki fullkomið það veit ég vel.

Vinnan við þetta hefur verið rosalega mikil, ég veit að vinnan sem ég hef lagt í ritgerðina er í mörgum tilfellum MIKLU MEIRI en hjá mörgum öðrum.  Ástæðan, á ég að vera eitthvað að afsaka mig? humm jújú ég er með dyslexíu, ADHD sem hefur alveg pottþétt haft áhrif á þessa vinnu.  Einbeitingin út og suður og allt þarf að vinna mörgum sinnum því ég veð úr einu í annað og klára aldrei neitt.  Svo þegar ég ætla að fara að byrja aftur þar sem ég henti frá mér því ég fór að gera eitthvað annað þá er ég búin að steingleyma því sem ég ætlaði að gera þar, eða jafnvel tekur mig marga klukkutíma að setja mig inní það efni til að geta byrjað í vinnunni... 

Svo er það efnisvalið mitt í þessari elskulegu lokaritgerð, ég réðst ekki á auðveldasta efnið ekki frekar en fyrri daginn, þarf alltaf að gera mér allt svo erfittt haha en meiri partur af ritgerðinni er unnin úr erlendum heimildum, því ju efnisvalið er bara þannig - þá kemur sú blessaða tungumálafötlunin inní,  en ég get samt sagt ykkur það að ég hef komið sjálfri mér VERULEGA á óvart þar, en tíminn sem hefur farið í þennan fræðilestur er ansi mikill haha

jæja smá vorkunar pistill hér á ferð, ætla að halda áfram, kannski verð ég með aðeins minni móral þegar ég skila ritgerðinni ef ég næ að vinna eitthvað aðeins meira í henni úfffff svo er þetta orðið svo stórt skjal, tæplega 14000 orð og 53 bls að ég verð að skipta þessu upp í minni skjöl til þess að geta unnið í þessu, of víðamikið fyrir mig annars

kveðja Elísabet


jæjajæja

rétt rúmlega sólarhringur í skil!!!  jájá og mín náttúrulega út í skóla að læra.... búin að vera hérna í ALLAN DAG!!

Komum suður í gærkveldi eftir frábæra daga á Akureyri, stelpurnar stóðu sig svo vel, Harpa Katrín var reyndar frekar óheppin, datt í báðum ferðum en skíðaði samt mjög vel og sýndi snilldar takta.  Færðin var mjög erfið og því ósköp skiljanlegt að margir hálf rúlluðu niður brekkuna.

Sá þessa mynd á skidasíðunni, verð endilega að skella henni hingað inn.  Á eftir að setja mínar myndir í tölvuna, það gerist eftir B.A skrif.

2439964826_0fd5e42ae3

Sjáið skvísan mín þarna í bláu peysunni með bláa ÍR buffið og vinkona hennar Elísa Arna í 2. sæti :-)


montrass

já svo montin að vera mamma, montin af dætrum mínum, Sólveig Birna keppti í stórsvigi í dag á AA-leikunum og gerði sér lítið fyrir og endaði í 7. sæti.  Samt var mín BARA á svigskíðum ekki stórsvigsskíðum eins og flestir keppendurnir, það skiptir nefnilega máli, svo mín hefði líklega lent ofar ef hún væri á stórsvigum.  SAFNA SAFNA fyrir stórsvigum handa skvísunum Wink  Við erum sem sagt á leiðinni á verðlaunaafhendinguna þar sem dóttir MÍN fær að standa á palli Grin ÓTRÚLEGA ÁNÆGÐ MAMMA HÉR!!!  rétt 2 ár síðan hún steig fyrsta skipti á skíði svo framförin og árangurinn því rosalega mikill.

Harpa Katrín stóð sig líka MJÖG VEL, hún keppti í svigi og hún er náttúrulega í eldri flokki og því erfiðara að ná svona langt.  Hún endaði í 22. sæti sem er bara FRÁBÆRT,

Jæja ætlum að drífa okkur á verðlauna afhendinguna, varð bara að monnta mig, skelli líklega mynd af skvísunum hingað í kvöld til að monta mig ENN MEIRA

 kveðja Elísabet montrass


Síðasti skóladagurinn

Ótrúlegt en satt þá var minn síðasti skóladagur í KHI í bili alla veganna í dag...  ég er bara svo gáttuð á sjálfri mér að ég er ekki að trúa þessu!!!

Byrjuðum í ágúst 2004 í stofu H 001 og enduðum námið 22.apríl 2008 í stofu H001  - sömu stofunni Wink

Ég hélt náttúrulega að ég myndi aldrei klára þetta nám :-)

En jæja að öðru, AA-LEIKARNIR á morgun, vinna 2 verkefni og lokaritgerð í kvöld, suður á laugardagskvöld og LOKALOKALOKA skil á þriðjudaginn!!!  úfffff

Ætla að halda áfram hérna veitir ekki af.

kveðja Elísabet


Afneitun

Ég mæli með því að þið lesið þessa færslu um afneitun hjá henni Jónu snilling Smile   

Llíka færsluna hennar sem hún linkar á, þetta er mjög svo áhrifarík færsla en segir svo margt um það sem við foreldrar barna með þroskafrávik erum að kljást við.  Það er ekki auðvelt að þurfa að standa í svona einn og fá svo athugasemdir frá nánum ættingjum að ekkert sé að.  Spurning um að senda pabba Rebekku bókina? Ég hef ekki töluna á þeim skiptum sem ég hef einmitt verið í sömu stöðu Crying  En sem betur fer með auknum tjáningarþroska hefur köstum Rebekku fækkað mjög mikið, en eitt kastið tók hún í dag, ósköp saklaus aðdragandi.

Þannig var það nú að þær systur voru á leiðinni í búðina, hún var búin að velja sér jakka og hjálpaði systir hennar henni að renna upp jakkanum, en það var ekki það sem hún hafði hugsað sér, því ég MAMMAN átti að gera það.  Í fyrstu reyndum við aðeins að tjónka við hana og breyta umræðuefni en það bar engan árangur, ég meira að segja renndi niður jakkann og upp aftur en nei þetta var búið að koma henni úr jafnvægi og þá þarf hún bara sinn tíma.  Við fórum því bara að græja þær og létum skvísuna eiga sig, en þar sem hún fékk nú ekki athyglina þá bara réðst hún á elstu systur sína, krafturinn var svo mikill að hún 12 ára gömul réði ekkert við hana og kallað á HJÁLP....  Ég viðurkenni það alveg að stundum kvíði ég fyrir því að það komi sá dagur að ég ráði ekki heldur við hana, krafturinn, öflin og hvað hún er sterk eykst bara Frown 

Eins og hún er yndislega, ég elska hana svo mikið, dýrka hana og finnst hún frábær.  Hún er algjört kraftaverk og búin að brillera í þessi 3 ár æfi hennar, þegar hún var nokkra vikna vissi enginn hvað og hvernig hún myndi þroskast, mér var tjáð að það gæti ALLT verið að, svo ég sá fyrir mér fjölfatlað barn - maður hugsar alltaf það versta - það sem ógnar manni mest.  En kraftaverkin gerast og Rebekka er ótrúlega heilbrigð, yndisleg, dugleg og frábær.  Heillar ALLA, með sínum sjarma.

Um daginn vorum við á Sauðárkróki hjá mömmu og pabba, stelpurnar voru inní herbergi og þá aftur elsta skvísan með þeim, Rebekka og Dagný voru að að lita í litabók, allt í einu sér Rebekka MYND í litabókinni sem Dagný var með og ætlaði sko að lita ÞESSA MYND!!!  Harpa útskýrir fyrir henni að þetta sé bókin hennar Dagnýjar og hún verði að leifa henni að klára að lita sína mynd, á augabragði var Rebekka búin að ráðast á bæði Hörpu bráðum 12 ára og Dagný bráðum 6 ára og hélt þeim í "gíslingu" var búin að ná taki í hárinu á þeim þannig að þær greyin gátu ekkert gert annað en að ÖSKRA á HJÁLP, ég var inní eldhúsi og heyrði að eitthvað alvarlegt var í gangi svo ég hljóp af stað og pabbi líka.  Ég þurfti að beita öllum mínum kröftum til að losa þær, hún verður svo STERK!! Ég held að elskulegi pabbi minn hafi orðið fyrir svolitlu áfalli að verða vitni að þessu, hann settist niður og þurfti bara aðeins að anda. 

Sumir vilja meina að þetta sé frekja!!!! en það þýðir sko ekki fyrir neinn að halda því fram, því ég á tvær ELDRI FREKJUR, sem voru sko ansi ákveðnar og gerðu ýmislegt og harðar mótmælir...  en þessi mótmæli hjá Rebekku eru bara ALLT ÖÐRUVÍSI!!

Smá saga til gamans Wink  Það var teymisfundur á miðvikudaginn og Rebekka var tekin inn í lok fundarins, smá sýniþjálfun.   Þórdís (þjálfari hennar) spurði Rebekku hvort hún vildi ekki gera spilagaldur fyrir Maríu?  Hún hafði nefnilega komið í leikskólann eftir páskafrí og gert spilagaldur fyrir Þórdísi, við erum ekkert búnar að vera að gera þetta hérna heima og ekki Þórdís heldur svo ég hugsaði strax að hún væri nú löngu búin að gleyma þessu, enda ekki nema rétt 3 ára!!  Mín skvísa gerði sko galdurinn mörgum sinnum bæði fyrir Maríu og mig, alveg sama hvað við reyndum að rugla hana þá gerði hún hann rétt.  Hvað skyldu mörg 3 ára börn geta gert spilagaldur?  Hún Rebekka mín er SNILLINGUR

kveðja Elísabet


Dekurdagur í dag

Búin að eiga góðan dag í gær og dag með skvísunum mínum.  Sendi ritgerðina frá mér til leiðsagnakennarans í gær klukkan 15:45 Wink 51 bls ritgerð og hún er EKKI BÚIN!!!!

Lenti í vandræðum með Innganginn og niðurlagið, samantektin svona lala svo ég veit að ég fæ þetta í HAUSINN annað kvöld!!

Skvísurnar stóru fóru á skíðaæfingu í morgun og litlu búnar að vera duglegar úti að leika sér, ég búin að liggja hérna með tærnar uppí loft á milli leikja hjá stelpunum.  Jújú þær þurfa nú athygli þessar elskur :-)

Bakaði voða góða eplaköku í staðin fyrir að þrífa haha er það ekki góður kostur???

Annars tekur við lærdómur í fötlunar áfanganum á morgun, lota á mánudag, þriðjudag og svo er það norður á miðvikudag.

Stelpurnar komnar með flottar ÍR peysur með nöfnum og buff í stíl, stelpurnar litlu fengu líka skíðapeysur svo þær verða flottar :-)

Bara aðeins að láta vita af mér, ég er enn á lífi þó svo að ég eigi fáa orkudropa eftir, held að ég hafi sjaldan verið svona útkeyrð eins og núna, líkaminn meira að segja farinn að svara þessu álagi með sjálfsofnæmisviðbrögðum............. ekki gott!!

kveðja Elísabet sem vonar svo að geta klárað ritgerðina fyrir 29. apríl og komast í FRÍ!!!!


Síðustu metrarnir

eru alltaf erfiðastir!!!!! já þetta er bara allt að koma VONA ÉG, sendi Eyjólfi hugmyndafræði kaflanna í gær og fékk til baka að þetta væri flott.

Núna er bara að setja allt í fluggírinn því ég bara verð að klára þetta núna og skila til Eyjólfs í síðasta lagi fyrir klukkarn 16 á morgun!!

Ég ætlaði mér að fara í Götusmiðjuna til að fá smá meira innsýn, en eins og þið sjáið þá hef ég ekki get það, svo ætli ég verði ekki með Ofurskutluna og Mumma á símalínunni næsta sólarhringinn hehe  Svona ef þau nenna eitthvað að tala við mig meira haha...

Er að fara með Sólveigu til tannsa þaðan með skvísurnar í söng og dansskóla Þorvaldar Bjarna og ætli það verði ekki svo skíðaæfing eftir það, fimmtudagar eru keyrsludagar..  Elvar að vinna svo þetta lendir á mér. 

Lærði til 7 í morgun þannig að ég sé fram á aðra nótt með ofurkrafti og fluggír til að klára þetta


Eitt ár í frí!!

Já ég tók STÓRA og ERFIÐA ákvörðun, sótti ekki um neitt masternám þetta árið, fannst það erfitt og eiginlega fjarstæðukennt þar sem ég er nú ekki einu sinni útskrifuð :-)

Síðustu 4 ár hafa einkennst af mikilli keyrslu, álagi og ekki síst erfiðleikum.  Ég er farin að þrá ró og frið, að njóta þess að vera með gimsteinunum mínum án þess að vera með samviskubit yfir að vera ekki að læra.

Að sjálfsögðu hafa þær alltaf notið forgang, eins og hægt hefur verið hverju sinni, en þar sem þær eru ekki að njóta forgangs frá hinu foreldrinu þá er ég kannski með meiri kröfur á mig, skiljanlega börn þurfa ást, umhyggju og ekki síðst óskipta athygli :-)

Næsta ár ætla ég sem sagt að njóta þess að eiga börnin mín, rækta sjálfa mig því jú ekki hef ég nú gert það síðustu ár, njóta þess að vera hamingjusöm, þakklát fyrir það sem ég á og njóta þess til fullnustu.  Kannski fer ég í eitthvað nám, einhver námskeið o.s.frv. en ég mun líka fara að vinna eins mikið og heilsan leifir sem verður eflaust ekki mikið :-(

 ææiii ég er farin að hlakka til, kannski einum of því ég er með ritstíflu dauðans og kem engu í verk, dagarnir fljúga áfram eins og eldur í sinu en ritgerðin situr föst eftir :-(


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Elísabet Sóley Stefánsdóttir
Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Ég er ein af þessum súpermömmum, á fjórar skvísur, kærasta, vinkona, dóttir, systir og gæti talið endalaust upp

Styrktarreikningur Landsamtakanna Liðsmenn Jerico - samtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda eineltisofbeldis  - reikninsnúmerið er 1158-26-034147  Kt: 641008-0280

 

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband