Leita í fréttum mbl.is

Ráðagóðir foreldrar

Sæl verið þið

 Jæja við ástin mín erum á námskeiði hjá GRR sem heitir ráðagóðir foreldrar og er haldið fyrir foreldra barna með þroskafrávik.  ÞETTA NÁMSKEIÐ er bara SNILLDIN EIN!!! 

Eftir fyrsta kvöldið gekk ég út um 60kg léttari haha, bara ef það hefði sést á mér!!! þvílíkur léttir að heyra í 9 öðrum foreldrum sem hafa nákvæmlega sömu sögu að segja úúffff púúffff ég er ekki geðveik og ég er ekki að að gera hlutina öðru vísi þeir eru svona!!!!   nei nei segi svona, en þetta er bara frábært námskeið og svo gott að geta spjallað um það sem við erum að ganga í gegnum.   stigin sem við foreldrarnir ganga í gegnum og hvað sumir geta stoppað í afneituninni og vilja ekki taka á einu né neinu. 

Við fáum alltaf að vita það aftur og aftur þar að segja ég og ástin mín að við erum að gera rétta hluti, ég fæ reglulega og oft hrós um það sem ég hef verið að gera fyrir Rebekku, því það er alveg ljóst að ef ég hefði ekki gripið inní þá væri Rebekka ekki í svona góðu standi og ég er að sitja öll þessi námskeið sem taka tíma og kosta peninga bara fyrir BARNIÐ MITT sem ég vil gera allt fyrir.

Það er líka gaman á þessu námskeiði, við getum alveg hlegið okkur máttlausa stundum þegar aðrir eru að segja frá sínum reynslusögum, oft eru þær bara skoplegar en líka eitthvað sem við höfum sjálf gert nákvæmlega eins!!

Ég er á fullu í verkefnaskilum og er komin með í magann yfir áhættuhegðuninni úfff pppúúffff er ekki að skilja þessa bók :-( Og ég á að skila ritgerð úr efni úr bókinni núna í nóv :-(

Svo eru 9 dagar í USA og ég komin með LANGANN innkaupalista OMG ég redda bara vísa þegar ég kem heim haha

nú jæja knús og kram í bili, já og kommentið þið nú endilega svo ég viti hverjir eru að lesa hér :-)

kveðja súpermamma


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég les alltaf þegar ég hef tíma :) Gott að námskeiðið gengur vel !!

Knús Ásdís

Ásdís Rósa (IP-tala skráð) 27.10.2007 kl. 21:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elísabet Sóley Stefánsdóttir
Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Ég er ein af þessum súpermömmum, á fjórar skvísur, kærasta, vinkona, dóttir, systir og gæti talið endalaust upp

Styrktarreikningur Landsamtakanna Liðsmenn Jerico - samtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda eineltisofbeldis  - reikninsnúmerið er 1158-26-034147  Kt: 641008-0280

 

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband