Leita í fréttum mbl.is

USA

Jæja núna eru BARA 6 dagar til USA, ég er sko komin með LANGAN lista, bæði föndurtengt og jólagjagtengt hehe maður verður að nýta sér svona tækifæri

Panntaði af tveim heimasíðum í síðustu viku og lét senda á hótelið, ætlaði nú að pannta af fleirum en gaf mér ekki tíma í það.

Ætlaði líka að senda myndir í framköllun, en ég gaf mér EKKI heldur tíma í það, svo að ég ætla að skrifa myndir á CD og fara með í framköllun í walmart eða á einhverjum þannig stöðum hehe

Annars bara spenningur í gangi, ég ætlaði mér nú að gefa mér tíma í að fara í gegnum föndrið og tína til pappír og fleira handa nýju skröppurunum í kringum mig en jæja ég held að það verði að bíða betri tíma haha

Elsta gelgjan fékk magapestina í nótt og er mega pirruð hérna núna, segist vera hress en vælir yfir því að vera svöng, en langar svo ekki í neitt sem er í boði...... ekki auðveld sem sagt!!!

Við erum svo að fara í 2 ára afmæli, sem byrjar kl 16.00.  Fósturdótturin átti nú að vera komin í borgina á þessum tíma, en mistök voru í bókuninni svo að hún kemur ekki fyrir en 16.45 Angry en það er bara æðruleysið á þetta er það ekki??? svo við mætum rúmlega klukkutíma of seint í AFMÆLIÐ.... ógó fúlt þar sem ég vil vera STUNDVÍS og þoli ekki að þurfa að vera sein.... 

jæja læt þetta duga í bili

kveðja SÚPERMAMMAN


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Öfund...öfund...mig langar til USA...en hvernig er það..ertu að selja þessi mjög svo flottu jólakort???

Sjáumst á morgun...luv, Systa

Systa (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 21:44

2 Smámynd: Elísabet Sóley Stefánsdóttir

jamm það er stefnan kannski, ef einhver vill kaupa haha

Ætla líka að gera merkispjöld

Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 28.10.2007 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elísabet Sóley Stefánsdóttir
Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Ég er ein af þessum súpermömmum, á fjórar skvísur, kærasta, vinkona, dóttir, systir og gæti talið endalaust upp

Styrktarreikningur Landsamtakanna Liðsmenn Jerico - samtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda eineltisofbeldis  - reikninsnúmerið er 1158-26-034147  Kt: 641008-0280

 

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband