31.10.2007 | 01:35
Lokaverkefni B.A.
Jæja þá er það hausverkurinn þessa daganna úúffffppppppúúúúfffff
Þetta er sko ekki auðveld ákvörðun, er búin að fara í marga hringi og fer enn!!!!
Ég er helst að hallast að einhversskonar könnun/rannsókn/úttekt og þá eitthvað sem tengist vímuefnum/afbrotum.
Það sem ég er eitthvað að spá í er:
- Rannsókn á vímuefnaneyslu í grunnskólum - sem sagt upp í 10.bekk en ekki í framhaldsskólum. Alltof stórt verkefni að taka það líka fyrir mig eina.
- tengsl afbrota og vímuefnanotkunar
- hvernig er staðið að meðferðarmálum/úrræðum fyrir ungmenni í vímuefnaneyslu á Íslandi?
- Já og áfram í þessum dúr, einhverjar hugmyndir???
Ég er að falla á tíma, þarf að vera búin að ákveða mig og einnig að finna leiðsögukennara fyrir 12. nóv!!! svo endilega kommentið á þetta og hvað haldið þið að henti mér best og hvað getur nýst fyrir þjóðfélagið??
kveðja Súpermamman
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Af mbl.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ja það er nú það, veistu af nógu er að taka í þessum málum. Dópsalar voru fyrir utan grunnskóla sem synir mínir voru í. Skólayfirvöld brugðust seint og illa við...en þó fyrir rest.
Ragnheiður , 31.10.2007 kl. 12:12
Ohhh svo var ég að átta mig á því að það er náttúrulega tekin úttekt á neyslu í grunnskólum á 2 ára fresti. SVO það er ekki tilgangur að ég kanni það......
Kannski að rannsaka það, hvernig nálgast ungmenni eyturlyf? humm svolítið erfitt líklega en endilega aðstoðið mig með hugmyndir
Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 31.10.2007 kl. 12:31
Hæ og takk fyrir síðast...hvernig væri að koma bara með hugmynd af nýju meðferðarúrræði fyrir unga vímuefnaneytendur og nota þær rannsóknir sem til eru um fjölda og þess háttar til að sýna fram á þörfina? Við vitum í raun að þörfin er til staðar, eða er það ekki?
Bara hugmynd gæskan en þú ert nú með svo frjóan koll að þú átt örugglega eftir að gera flott verkefni...svo þetta með jólakortin...hvað kosta 50 stk mig?
kveðja, Systa
Systa (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 19:17
Sæl skvís
Ég var einmitt að hugsa um þetta, ætlaði því að nýta mér vettvangsnámið á Stuðlum líka. Endilega komið með fleiri uppástungur, ég þygg sko allar og vonandi mun ein standa uppúr von bráðar
Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 31.10.2007 kl. 22:56
Mæli með því að þú takir út meðferðarúrræði.... það veitir ekki af að fá það svart á hvítu.... þar tala ég af reynslu minni og fjölda annara.
Kristín Snorradóttir, 1.11.2007 kl. 08:45
Já það er satt Kristín, ætla að skoða þennan möguleika vel....
Systa hvað ertu tilbúin að borga fyrir svona kort og hvenær viltu fá þau?
Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 1.11.2007 kl. 11:32
Heillin mín...ég hef ekki hugmynd um hvað svona kort ættu að kosta...þú veit hvað þú ert að eyða af tíma og efni í þetta þannig að þú verður að verðleggja þig ;o)
Veit að þú hefur svo sem nóg annað að gera þannig að þetta var nú bara hugmynd hjá mér og ég vil ekki pressa neitt á þig...þyrfti kort fyrir 14.des þar sem ég fer út 20 og þarf að skrifa og senda fyrir þann tíma...góða ferð til USA og shoppaðu nú ekki yfir þig....knús Systa
Systa (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 18:26
Ég mæli með könnun á meðferðarúrræðum. það er svo margt hægt að kanna í sambandi við fíklana okkar. Eitt, sem minn var mikið að pæla í og ég komst svo að því að það var rétt hjá honum. Fíklar eiga mjög erfitt með að fá líf og sjúkdómatryggingar ef þeir fara í meðferð. Hvað annað getur verið erfitt fyrir þá að öðlast eftir að þeir hætta allri neyslu. Hvað stendur þeim til boða ef þeir eiga erfitt með að fóta sig eftir að hafa hætt. Og margt fleira.
Mikið áttu gott að vera að fara til USA.
kidda, 1.11.2007 kl. 22:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.