Leita í fréttum mbl.is

flutt að heiman

og uppí skóla... jájá börnin komin í fóstur og ég því komin í útlegð við ritgerðarskrif, verst bara að ritstíflan er að gera mig klikkaða, eða kannski bara skipulagsleysi og agaleysi? 

æiii er svolítið svartsýn á að ég nái að klára lokaverkefnið á tilsettum tíma, en það verður bara að koma í ljós.  Vantar því fullt af orku, ritgerðarstraumum og hlýjum hugsunum svo ef þið eigið eitthvað að deila þá er hún vel þegin Tounge

Annars bara gott að frétta af börnunum, stóru skvísurnar léku sér á skíðum í Tindastól í allan dag.   Afi gamli keyrði þeim uppí fjall í hádeginu og sótti þær svo aftur eftir vinnu, nóg að gera hjá gamla settinu :-)

Ætla að halda áfram hérna, mikil vinna á morgun.  Fer austur í heimsókn í Götusmiðjuna og hlakkar mig mikið til að skoða það og spjalla við starfsfólkið en það kraumar nú samt líka smá kvíðahnútur hehe ekkert alvarlegur bara lítið sjálfsstraust og því erfitt að mæta einn á svona staði Wink

knús og kram

Elísabet


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ vinkona og takk kærlega fyrir skeytið ...
Auðvitað nærðu að klára lokaverkefnið í tíma..þú ferð nú ekki að klikka á einni smá 5 eininga ritgerð eftir allt sem þú ert búin að ná að klára í þessu námi okkar...gangi þér vel gæskan og góða ferð austur í Götusmiðju..

luv, Systa

Systa (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 23:08

2 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Hér koma ritgerðarstraumar

Kristín Snorradóttir, 19.3.2008 kl. 23:59

3 identicon

Vonanadi ganga skrifin vel!

Gaman að sjá þig fyrir austan, verst að hafa ekki fengið tækifæri til að spjalla. Láttu mig endilega vita ef ég get aðstoðað!

Hér kemur skammtur af ofurskutlukrafti!

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 20.3.2008 kl. 10:36

4 Smámynd: Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Takk fyrir ofurskutlukraftinn mín kæra.  Ég mun koma aftur austur og þá ætla ég að tryggja þig :-)  Læt þig vita áður til að ath hvort þú sért ekki örugglega í vinnunni þá.

Ætla að halda áfram að skrifa :-)

kveðja Elísabet

Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 20.3.2008 kl. 11:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elísabet Sóley Stefánsdóttir
Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Ég er ein af þessum súpermömmum, á fjórar skvísur, kærasta, vinkona, dóttir, systir og gæti talið endalaust upp

Styrktarreikningur Landsamtakanna Liðsmenn Jerico - samtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda eineltisofbeldis  - reikninsnúmerið er 1158-26-034147  Kt: 641008-0280

 

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband