4.9.2008 | 11:01
Skrítnir dagar
ææii já þetta eru frekar skrítnir dagar og líður mér frekar asnalega :-(
Dagurinn í gær var erfiður, það var teymisfundur hjá Rebekku og ýmislegt sem kom þar fram sem hræðir mig ekki það að ég hef verið svakalega rosalega heppin með mína dömu og þeim ótrúlegu kraftaverku framförum hennar, þá verð ég því miður að opna augun fyrir því að í fyrsta skipti er hún farin að missa niður fyrri færni, færni sem hún var súperklár og ofurdugleg við
Hér fyrir ári síðan þá var Rebekka púsl sjúk, hún púslaði allan daginn og var það hennar skemmtilegasti leikur, rétt fyrir jólin náði hún að púsla 99 kubba púsl, fékk reyndar aðstoð þá hjá okkur við að taka ramman frá og púsla hann fyrst en að öðru leiti púslaði hún sjálf, 60-80 kubba púsl voru þau púsl sem hún púslaði vanalega og var mjög snögg að því. Í febrúar/mars var leikur Rebekku eingöngu farinn að snúast um púsl, ég ákvað því að taka öll púsl á heimilinu og setja uppí skáp. Hún hefur jú haft púsl í leikskólanum en smá saman hætti hun að sækja í þau og er núna dúkkuleikjasjúk. Núna hálfu ári seinna kann hún ekki að púsla, hún náði að púsla 12 kubba púsl með aðstoð :-( hún horfir á púslin eins og hún bara hafi aldrei séð þetta áður. Þetta var sjokk fyrir mig, en eitthvað sem ég kannski vissi innst inni en vildi ekki sjá.
Ég veit að ég á ekki að mála skrattann á vegginn og halda að þetta sé komið til að vera, núna fer bara mín prinsessa í púslþjálfun hérna heima, en þetta segir mér bara það að öll þau kennsla og aðhalda sem hún fær hér heima virkar en þetta segir mér líka það að til þess að hún missir ekki niður fyrri færnir þarf að halda öllu við, það má ekki taka neitt úr í langan tíma nema að halda því við markvisst, sem við höfum reyndar gert en púslið gleymdist og það kvarflaði bara ekki að mér að forma/reglu/rökhugsunar prinsessan mín myndi tapa þessu :-(
Ég talaði einnig við gigtarsérfræðinginn minn og sagðist hún ekki geta gert neitt fyrir mig til að lina mér sársaukann, næsta skref er morfínverkjalyf og það harðneita ég :-( Hún ráðlagði mér reyndar að fara til bæklunarlæknis til að skoða hnén mín, sem eru sérstaklega að pirra mig ofaná alla bak og stoðkerfisverki.
Já eins og þið sjáið er ég í vonleysisgírnum núna og það er vont, óþægilegt og erfitt. Ætla að reyna að koma mér í jákvæða partinn í lífinu í dag og setja þessar neikvæðu hugsanir á HOLD.... spurning hvernig það gengur?
kveðja Elísabet
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
ég var alltaf undirlögð af verkjum í liðum, fór til gigtarlæknis sem spurði engra spurninga heldur sprautaði mig með sterum (held reyndar að það það hafi verið chilipipar en það er önnur saga) nokkrum mánuðum síðar komst ég í fráhald frá hveiti,sykri og sterkju, hef ekki fundið liðverk síðan.
Elín Sigríður Grétarsdóttir, 4.9.2008 kl. 12:44
gott að heyra Ella, ég veit það að hveiti og sykur er sko minn versti ´óvinur og auðvitað ligg ég í því núna og því heilsan eftir því :-( djööööööö hvað það er erfitt að byrja
Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 4.9.2008 kl. 16:34
þarft bara að byrja einu sinni og svo er þetta bara eins erfitt og þú ákveður að það sé ... mínir gömlu vinir segja oft og iðulega "ef ella sigga getur verið í fráhaldi, þá geta það ALLIR" ... komdu á fund, við erum til staðar fyrir þig
Elín Sigríður Grétarsdóttir, 4.9.2008 kl. 16:52
síminn minn er 844-0406 alltaf til staðar......
Helga Dóra, 4.9.2008 kl. 21:11
allt satt og rétt hjá ykkur skvísur og elsku Helga Dóra ég vona að símtalið sé nær en okkur grunar hehe :-)
Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 4.9.2008 kl. 23:03
Elísabet, ertu til í að senda mér póst á jonag@icelandair.is ?
Jóna Á. Gísladóttir, 10.9.2008 kl. 10:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.