22.3.2008 | 19:34
hver fer hægar en snígillinn?
ÉG!!! Þetta gengur það hægt að mér finnst ég fara tíu skref aftur á bak og eitt áfram Hvernig á maður að halda geðheilsunni eiginlega??
Fór að sofa þegar ég kom heim úr vinnunni eða um kvöldmatarleytið í gær og ætlaði mér að sofa til klukkan 23.00 og byrja svo að læra og læra í nótt. Það henntar mér nefnilega yfirleitt best að læra á nóttunni því að ÉG ER SVO FORVITIN að ég má ekki missa af neinu hehe þar sem lítið er að gerast í netheimum og fáir vakandi á nóttunni þá held ég mér meira við efnið!!! ENNNN nei nei skvísan mín hringdi sturluð úr hræðslu klukkan 22.00 og hafði þá faðir hennar skutlað henni heim til ömmu hennar og þar var allt slökkt og enginn heima!!! Skvísan er sjúklega myrkfælin og eina símanúmerið sem hún mundi í þessu ástandi var síminn hennar mömmu, greyið litla var bara í sjokki og engan veginn að höndla þessar aðstæður enda ekki há í loftinu. Ég hafði hana á einni línunni meðan ég hringdi úr hinum símanum og lét sækja hana. Spjallaði svo við hana og róaði þangað til hún var sótt.
ÉG MEINA AÐ SKUTLA BARNI HEIM ÁN ÞESS AÐ ATH HVORT EINHVER ER HEIMA KLUKKAN 22 AÐ KVÖLDI!! jájá ég var gefur að skilja svolítið reið... en svona erum við mismunandi...
Ég var því svolítinn tíma að ná mér niður aftur en langaði að sofa í 1 tíma í viðbót haha þreytan að gera vart við sig!! talaði svo við ástina og hann ætlaði að hringja í mig klukkutíma seinna en nei nei hann ákvað að vera góður við gellunna og leifa henni bara að sofa, ég sofnaði því fastasvefni og rankaði við mér klukkan 6 í morgun!! fannst nú ekki taka því að vakna þá haha svo ég snéri mér á hina hliðina og svaf til klukkan 10.00!!! mín búin að sofa í næstum því 14 tíma!! meira en ungabarn!
Fór fram og las NORSKU en klukkan 13.00 var ég komin með dúndrandi hausverk svo ég skreið enn eina ferðina inní rúm og svaf til klukkan 17.00 hvað er í gangi?????
Ég ætti að geta lært í nótt, úthvíld!!! Stundum tek ég svona svefnmaraþon eftir mikið álag og eftir þvi sem ég leifi mér að sofa meira, þá þarf ég meiri svefn!!
ææiii pínu pirruð út í sjálfa mig, veit samt að ég þurfti svo á þessum svefni að halda og vona að ég verði bara kraftmeiri í nótt. Ég læri og læri og nýt tímann eins vel og ég get BARNLAUS,, en er svo með móral yfir því að afreka ekki meira þegar ég hef ekkert um annað að hugsa en sjálfa mig MEÐVIRKNI HVAÐ!!!!
knús og kram
Elísabet úthvílda en vantar samt orku
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.