Leita í fréttum mbl.is

Gleðilega páska

Jæja ég vaki og ligg hér yfir bókum, greinum og vefsíðum um Motivational Interviewing eða hvatningarviðtölum.   Mjög spennandi allt saman og takið eftir eitthvað komið á blað!! vonandi á skiljanlegri ÍSLENSKU, annars verð ég bara að fá einhvern íslenskufræðing til að hjálpa mér að orða þetta öðruvísi Tounge

Markmið mitt núna er að klára þennan kafla að mestu! eða svona það sem ég kemst yfir fyrir svefn.  Er ótrúlega óörugg eitthvað með þetta, hvar á ég að setja tilvitnanirnar, hvernig á ég að orða þetta?  hvort á ég að segja þetta svona eða svona?  Greinaskil hér eða eftir næstu setningu? og svona mætti lengi telja Frown hahaha jájá ég er að skrifa b.a. ritgerð og líður eins og 5 ára krakka sem þarf að skila mastersritgerð í latínu Frown  þarf að loka á þessa minnimáttarkennd og koma mér í þá hugsun að ég get þetta og hana nú!!! 

Ég meina af hverju get ég þetta ekki eins og Systa eða allir hinir?  Elsku Systa ofurskutlan mín í náminu gerði sér lítið fyrir og kláraði ritgerðina fyrir páska, samhliða því að undirbúa fermingaveislu sonar síns.  Ég meina hún er bara snillingur sko!!!  Þau eru það nú öll sömul sem hafa ennst námið þessi fjögur ár, hehe já ótrúlegt alveg við byrjuðum að ég held 28 og erum eftir 8 og þar af erum við 5 sem stefnum á útskrift!!!

Jæja ætla að halda áfram að lesa um Wiliam R. Miller og Stephen Rollnick og alla þá snilldar speki sem þeir lögðu fram Tounge

Eigið góðan páskadag, líklega sef ég hann að mestu af mér en passið að borða ekki yfir ykkur af súkkulaði hehe - geymið það frekar handa mérWink

knús og kram Elísabet

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ skvís.

Auðvitað kemur þú BA-ritgerðinni frá þér með sóma. Ég hef fulla trú á þér og þú átt eftir að útskrifast með sóma, ekki spurning. Efniviðurinn í ritgerðinni er heldur ekki af verri endanum. Mummi í Götusmiðjunni er flottur kall.

En gangi þér vel skvísa. Þú mátt ekki sofa af þér allan daginn ef þú ætlar að komast langt með ritgerðina þína.

Sendi þér skriftar- og súkkulaði andann.

Kveðja Linda Birna.

Linda Birna. (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 09:15

2 identicon

Sælar,

þetta eru nú bara eðlilegar efasemdir um eigið ágæti og fá þig bara til að gera betur! Notaður nú bara eitthvað af viskunni frá Miller og Rollnick til að hvetja þig áfram, eða þannig!

Sendi þér hér með ofurskutl og er þess fulviss að það dugir í amk. nokkrar blaðsíður!

kveðja

Ofurskutlan

ps.páskaegg og gott kaffi!

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 10:02

3 Smámynd: Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Takk fyrir kveðjurnar skvísur.  Ég fór að sofa 9.30 og var vöknuð aftur fyrir 13 hehe harka sex núna :-)

Skal borða nóg af páskaeggi en kaffið læt ég nú eiga sig

Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 23.3.2008 kl. 13:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elísabet Sóley Stefánsdóttir
Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Ég er ein af þessum súpermömmum, á fjórar skvísur, kærasta, vinkona, dóttir, systir og gæti talið endalaust upp

Styrktarreikningur Landsamtakanna Liðsmenn Jerico - samtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda eineltisofbeldis  - reikninsnúmerið er 1158-26-034147  Kt: 641008-0280

 

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband