Leita í fréttum mbl.is

Andvökur augum spilla

Er málsháttur minn Tounge  frekar fyndið þar sem ég fór nú ekki að sofa fyrir en 09.30 í morgun haha 

Svaf til klukkan 13.00 og fór þá fram og borðaði, las svolítið og dekraði við mig.  Var svo slöpp í maganum að ég ákvað að skríða aftur inní rúm seinnipartinn og svaf þá til klukkan 22.00 jájá var vakin með páskasteikinni haha sem karlinn töfraði fram og ég borðaði með bestu lyst Grin en það liðu ekki nema hálf tími að ég fékk aftur í magann og er salernisherbergið besti vinur minn núna Sick

ohhh er þetta ekki alveg EKTA ÉG!!! komið á skrið farin að afreka eitthvað en nei þá veikist ég!!  Vona að þetta verði fljótt að fara og ég geti notað orkuna í skrifin. 

Næsta verkefni er HAM - Hugræn atferlismeðferð og er það líka ótrúlega spennandi allt saman, þekki það reyndar svolítið sjálf en það er ekki nóg ég þarf að grúska í erlendum bókum og leita af FRUMHEIMILDUM!!!!

jæja verð að rjúka núna, þangað til næst hafið það GOTT!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Takk, innilega fyrir góðar kveðjur. ´Það væri frábært ef þú nenntir að fá þér rúnt hingað á "Heimsenda" he, he. Heitir Fellsendi en er svo afskekkt að mínir lendurskírðu staðinn. Ætla núna að skella mér í að kíkja á bloggið þitt.

Ástarkveðja til yndislegu stelpnanna þinna.

Bylgja

Bylgja Hafþórsdóttir, 24.3.2008 kl. 07:48

2 Smámynd: Ragnheiður

Óheppnin eltir þig í þessu námi í bili en við staðfastlega trúum að fall sé fararheill.

¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨ hérna eru lærdómsstraumar.

Kær kveðja

Ragnheiður , 24.3.2008 kl. 11:29

3 identicon

Æ,æ,æ.... ekki gott að heyra og þú að fara að takast á við HAM, sem ég verð reyndar að játa að er ekki í miklu uppáhaldi hjá mér, hugsa að ég yrði líka veik í þeirri stöðu:)

Sendi þér samt hér með ofurskutlukraft!

kveðja Ofurskutlan

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 12:10

4 identicon

Datt hér inn Elísabet. Gangi þér súpervel með ritgerðina þína. EF þú getur ekki klárað núna þá er það bara að nota sumarið i það. Mér fannst það alla vega voða gott og svo bara útskrifaðist ég í október. Finnst ég sko bara algjör hetja enda hafði ég í ýmsu að snúast alveg eins og þú.

Þetta eru annars ekki sérlega góðar heimtur hversu fáir eru eftir af hópnum okkar. Sjaldan séð annað eins brottfall. En vonandi koma einhverji af þessum sem eru í "fríinu" og klára þetta. Baráttukveðjur Unnur Björk "bekkjó"

Unnur Björk (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 15:53

5 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Séndi hér með ofurkrafta til þín.... veltir þessu BA verkefni fram á hálftíma með þessum kröftum

Eigum við ekki að fara að drekka kaffi við tækifæri????

Kristín Snorradóttir, 24.3.2008 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elísabet Sóley Stefánsdóttir
Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Ég er ein af þessum súpermömmum, á fjórar skvísur, kærasta, vinkona, dóttir, systir og gæti talið endalaust upp

Styrktarreikningur Landsamtakanna Liðsmenn Jerico - samtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda eineltisofbeldis  - reikninsnúmerið er 1158-26-034147  Kt: 641008-0280

 

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband