26.3.2008 | 23:27
Fjölskyldan sem missti allt vegna myglusvepps
Kæru vinir
Þar sem þessi kæra fjölskylda sem lenti í því að missa húsið sitt og megnið af innbúi sínu eru mér mjög kær og hafa reynst mér vel, þá ákvað ég að hafa samband við Bylgju og Ívar til að fá samþykki fyrir því að hefja söfnun fyrir þau.
Þau voru með allar tryggingar á hreinu, en tryggingar bæta samt ekki skaðsemi myglusvepps. Bylgja er búin að vera heilsulaus síðustu ár vegna myglusveppsins og því búin að þurfa að hætta í vinnu og skóla.
Eftir standa þau uppi með 10 milljóna skuld en engar eignir og húsnæðislaus.
Þetta var erfið ákvörðun fyrir þau, en ákváðu barnanna vegna að samþykkja að gefa upp reikningsnúmerið. Heimasætan fær þá kannski fyrr að eignast sitt eigið rúm og jafnvel heimili til frambúðar. Eldri börnin og barnabarn og bráðum barnabörn fá kannski tækifæri til að heimsækja móðir þeirra á heimili hennar og Ívars.
Ég vona svo innilega að við getum lagst á eitt og hjálpað þeim í þessari baráttu, margt smátt gerir eitt stórt og vona ég að flestir sjái sér fært til að leggja inn, þó svo að það sé ekki nema verðmæti einnar pizzu eða sígarettupakka.
Reikningsnúmerið er 1102-15-9217 Kt. 2410645149
Tökum höndum saman og styðjum þessa fjölskyldu til að koma upp heimili á ný, eftir þennan mikla missi. Ég veit að þau rifu ekki niður húsið sitt og hentu eignum á hauganna að ástæðulausu, þau neyddust til þess að gera þetta.
Með kærri vinsemd
Elísabet Sóley Stefánsdóttir
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl og blessuð Súpermamma og takk fyrir hjálpina, ég vissi að það væri hægt að finna reikningsnúmer og setja inn smá pening hjá þeim. Við smáfuglarnir getum nefnilega ýmislegt ef við fljúgum um í flokkum. Ég ætla að leyfa mér að taka reikningsnúmerið þeirra og setja á mitt blogg og skora á alla aðra sem það lesa að gera slíkt hið sama. Samtaka stöndum vér en sundraðir föllum vér. Bestu kveðjur frá Arndísi Ástu Gestsdóttur í Borgarfirði.
Arndís Ásta Gestsdóttir (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 10:38
Sæl
Þetta var sjálfsagt þó svo að það hafi tekið smá tíma til að sannfæra Bylgju og Ívar :-) en það tókst og vona ég að allir geri hið sama, setjið þetta á ykkar blogg elskurnar mínar
Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 27.3.2008 kl. 10:48
Er að vinna í því að koma þessu á bloggið mitt :)
Kjartan Pálmarsson, 27.3.2008 kl. 11:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.