31.3.2008 | 21:00
Ritgerðarmaraþon
Afsakið langlokuna hér að neðan. Las yfir þetta áðan og OMG hef greinilega verið MJÖG ÞREYTT þarna í gærkveldi og já ALVEG BÚIN Á ÞVÍ hehe fullt af ritvillum og allt í belg og biðu hehe... Ég skrifaði líka um veikindi stelpnanna stóru þegar þær voru litlar en humm það hefur ekki uppfærst. Svo þið heyrið kannski bara af því síðar hehe
Er allt önnur í dag. tók ákvörðun!!! jájá ég ætla bara að hugsa um MIG og hana nú.
Hér er ég, um mig, frá mér til mín? Hvenær hef ég hugsað svona??
En já fyrst aðrir geta gert það þá hlýt ég að afreka það, þó svo að það væri ekki nema í eins og eina viku
Ég meira að segja neitaði þeim á Stuðlum um vinnu, það vantaði í kvöld og næstu daga og ég bað þá bara að hafa samband í næstu viku :-) já ég gat þetta, ég sem kann ekki að segja nei.
Ég stefni á að læra í alla nótt, koma skvísunum svo í skólann og fara að sofa. Þetta er bara minn tími og verð ég að nýta hann vel.
Ég fékk mikið knús frá karlinum mínum í gær, þurfti svo á því að halda og held barasta að hann hafi gefið mér súperorku. Líður betur í dag og ætla bara að taka einn dag í einu.
Læt þetta duga í bili og vona að ég vinni endalaust af orku núna, passið ykkur á mér ég er orkusuga þessa daganna, svo ef þið getið ekki misst orku þá skulið þið bara sleppa því að hafa samband
Ef ykkur langar að fá lánuð eins og 4 börn þá vitið þið hvar þau eiga heima, móðurlaus greyin þessa daganna. Pabbinn á heimilinu kemur reyndar úr vinnu á miðvikudaginn en fer aftur í vinnu á sunnudag.
kveðja Elísabet
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
takk samt mín kæra en á nóg af börnum, heima og að heiman:)
Farðu vel með þig, sendi þér hér smá orku..........
ofurskutlan
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 22:50
Gott hjá þér. Fyrst að setja björgunarvestið á sig til að geta bjargað hinu sem bjarga þarf. Þú ert hetja.
Love Bylgja
Bylgja Hafþórsdóttir, 1.4.2008 kl. 08:50
Hæ skvísa.
Mér lýst vel á þessa ákvörðun þín að hugsa bara um þig í nokkra daga. Prinsessurnar þínar eiga eftir að skilja þetta allt saman síðar.
Því miður get ég ekki aðstoðað þig með prinsessurnar þínar þó ég gjarnan vildi. Enda á ég bara prinsa.
Ég á fullt af umfram orku. Ég sendi þér slatta af henni.
Gangi þér vel í maraþoninu. Þú getur þetta Elísabet. Þú ert hetja og ætti maður að taka þig til fyrirmyndar.
En núna er ég hætt, svo þú getir fengið orkuna sem fyrst.
Kveðja Linda Birna.
Linda Birna (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 13:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.