2.12.2007 | 22:46
Friðarljós í minningu
Látið orðið berast.
Friðarljós í minningu
Kristins Veigars
mánudaginn 3. des. klukkan 19:00
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2007 | 14:23
Þórdís Tinna yndislegust
Þórdís Tinna, Moggabloggari númer eitt, er engin venjuleg kona.
Hún er skemmtileg, hugrökk, alltaf að hjálpa öðrum og sér það jákvæða við nánast allar kringumstæður.
Eins og flestir vita, á hún við alvarleg veikindi að stríða.
Það þarf ekkert að kynna Þórdísi Tinnu, svo þekkt er hún orðin fyrir að vera hún sjálf.
Nú er rétti tíminn til að sýna Þórdísi Tinnu stuðning í verki.
Sýnum samstöðu og styðjum við hana og dóttur hennar, Kolbrúnu Ragnheiði, svo þær geti notið hátíðanna, lausar við fjárhagsáhyggjur. Þúsundkall eða Fimmþúsundkall..... allt hjálpar.
Bankareikningur
0140-05- 015735. Kt.101268-4039
Ég skora á aðra bloggara að taka þátt og birta samskonar færslu á sinni síðu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2007 | 20:43
Viljið þið biðja fyrir litla drengnum
Viljið þið leggjast á eitt og nota alla ykkar orku til að biðja fyrir litla drengnum. Biðjið fyirr fjölskyldu hans og einnig fyrir ökumanninum sem vonandi fer að gefa sig fram.
Elsku vinir við getum ekkert annað gert en að biðja, hugsa fallega og vona það allra besta
kveðja Elísabet
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.11.2007 | 19:42
Hvað er í gangi???
Barn varð fyrir bíl og svo keyrir ökumaður bara í BURTU!!!
Við sitjum hér með hnút í maga og bíðum frétta, og vonum svo innilega að allt fari vel. Stjúpsystir litla drengsins er hérna hjá mér og ætlar að gista í nótt. Við erum búin að kveikja á kertum og ætla ég að biðja ykkur að gera það líka.
Endilega hjálpið einnig löggunni að finna þennan ökumann sem greinilega var ekki alls gáður en vona að hann fari að gefa sig fram sem fyrst.
VONUM ÞAÐ BESTA
kveðja Elísabet
Ók á barn og stakk af | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.11.2007 | 18:34
Foreldrahús
Sæl verið þið elskurnar.
Endilega lesið bloggið hjá http://daudansalvara.blog.is/ og skrifið í kommentið undir færslunni. Foreldrahús eru að verða húsnæðislaus og það má bara ekki gerast, nú er ég og mín fjölskylda að nýta okkur þjónustu þeirra eftir áramót eða þar að segja að þau fái húsnæði.
En ég vil nú líka ýtreka að foreldarhús er fyrir alla, ekki bara foreldra og fjölskyldur sem tilheyra vímuefnadjöflinum. Enda erum við svo heppin og já ég segi það aftur vímuefni fara sko ekki í manngreindarálit frekar en lúsin eða krabbamein. Við eigum sko að þakka fyrir hvern dag sem við eigum heilbrigt líf
Endilega kvittið fyrir mig og já alla hina líka
kveðja Elísabet
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.11.2007 | 22:10
Tíminn líður HRATT
já já ég var í skólanum í allan dag og þegar ein af þessu fáu yndislegu samnemendum mínum sem eftir eru sagði "hva bara ein önn eftir og þá erum við búin!" og ég bara jamm ótrúlegt!!!
Svo ég tók upp símann hérna áðan og bókaði sal haha jájá hlæjið bara....... Ég var búin að telja sjálfri mér trú um að ég færi ALDREI í Háskóla og ef ég myndi læra eitthvað þá myndi ég læra eitthvað iðnámstengt, því ég gæti aldrei tekið Háskóla.
Svo þegar ég sótti um námið vorið 2004, átti ég aldrei von á því að komast inní skólann, það eru svo margir sem ekki komast að í fyrstu tilraun sem uppfylla ekki inntökuskilyrði. En ég kláraði aldrei stúdentinn þó svo að ég hafi farið langt í það samt.
En ég komst í gegn í fyrstu tilraun, einhver einstök lukka þar í gangi. Ég hafði samt enga trú á mér og reiknaði aldrei með því að ég myndi klára þetta nám. Núna er ég komin á lokaárið og næstum því búin með næst síðustu önnina.
Ég sagði við sjálfa mig að ef ég myndi klára námið einhvern tímann myndi ég sko halda upp á það hahaha svo ég verð nú að standa við það. Svo takið frá 21. júní 2008
knús og kram
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.11.2007 | 21:13
Hvað er að manni!!!
Maður er að pirrast yfir flíkum sem börnin skilja eftir út um allt og pirrast yfir starfsfólki sem sér flíkurnar merktar en lætur mann ekki vita.
Svo eru mæður að ganga í gegnum það að vita bara ekkert um börnin sín, ég er að leita af dauðum hlutum!!!! Æiii ég finn til með henni Kristínu sem gengur í gegnum það enn einu sinni að vita af syni sínum úti og geta ekkert gert!!
Svona getur maður oft verið skrítinn, og já kannski ósanngjarn. Þetta eru dauðir hlutir, ég er þakklát fyrir að eiga yndisleg börn, þó svo að þau týni fötunum sínum. Ég er þakklát fyrir hvað þær eru heilbrigðar þrátt fyrir að eiga barn með fötlun og þakka ég dag hvern fyrir að hafa þær hjá mér alltaf!!!!
Þetta geta því miður ekki allir sagt og ætla ég að reyna að draga lærdóm af þessu, hætta að pirra mig yfir dauðum hlutum og njóta barna minna í botn
knús og kram og endilega sendið Kristínu kveðju og góðar hugsanir, þetta er örugglega það erfiðasta sem mæður ganga í gegnum.
Ég þekki eina móðir vel, sem á virkann fíkil sem hefur verið í neyslu í úúffff 19 ár!!! hann hefur átt nokkra góða tíma en þeir hafa aldrei verið langir
Þökkum fyrir góðu tímanna með börnunum okkar
KNÚS OG KRAM Elísabet
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.11.2007 | 15:10
Óskilamunir
Jæja
Börnin mín er partur af þeim börnum sem skilja fötin sín eftir allsstaðar, ég get svo svarið það að stundum held ég að þær fari alls berar heim til sín, því ég finn ótúlegustu föt á ótrúlegustu stöðum. Nú jæja tilgangur þessa bloggs er að pirrast smá, ég merki fötin barna minna yfirleitt mjög vel með nafni, símanúmeri og stundum heimilisfangi. En þær flíkur sem týnast finnast sjaldnast :(
Í dag hringdi yndisleg kona í mig sem var stödd í Laugardagshöllinni og var að leita af fötum af syni sínum, hún sér þar úlpu í óskilamunum 66° úlpa sem var vel merkt með nafni og síma. Þessi kona tekur upp símann sinn og hringir í mig og segir mér að hún sé með úlpu þarna sem henni finnist alveg skelfilegt að vita af í óskilamunum, svona vegleg og nýleg flík. Ég náttúrulega þakkaði konunni mjög vel fyrir og bað hana að setja úlpuna í afgreiðsluna því hún yrði sótt sem fyrst.
Eftir þetta símtal fór ég að velta því fyrir mér, starfsfólk íþróttabygginga og starfsfólk á opinberum stöðum, skoða þau ekki flíkurnar sem verða eftir? Ég sjálf myndi pottþétt gera það og hringja í viðkomandi og segja þeim frá því hvar flíkina er að finna. Ég er í framhaldi af þessu að velta fyrir mér hvort þetta sé allsstaðar svona, því úlpan er búin að vera týnd í rúman mánuð.
Held að það væri ósköp einfalt að skoða þær flíkur sem eftir verða dag hvern og þær flíkur sem eru merktar með nafni og síma að hringja og láta vita.
ææiii ég er náttúrulega æfinlega þakklát þessari ókunnugu konu, en jafnframt pínu pirruð að starfsmenn svona bygginga skulu ekki hringja út. Það getur ekki tekið langann tíma að láta foreldra vita af flíkum barna þeirra.
En jæja pirr dagsins farið og kannski kemur bara meira pirr blogg í dag, hver veit :-)
kveðja súpermamma sem er endalaust að leita af flíkum barna minna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.11.2007 | 09:40
Tölvufíkn
Þetta er sko vaxandi vandi og ég er á því að þetta sé afleyðing þess að við lifum í svo hröðu þjóðfélagi að börnin okkar eru mikið ein heima og leita í tölvurnar. Fíknin kemur svo og verður þetta að vítahring líkt og með annarri fíkn.
Ég hef fundið fyrir því að ég sjálf var komin á hálan ís, það fyrsta sem ég gerði á morgnanna var að fara í tölvuna, fyrsta sem ég gerði þegar ég kom heim var að fara í tölvuna og lesa póstanna og það síðasta sem ég gerði áður en ég fór að sofa var að athuga hvort einhver skilaboð væru. Þegar ég sjálf áttaði mig á þessu þá takmarkaði ég mína notkun og gekk þetta vel og gengur ennþá, talvan getur verið góð afþreying en einnig algjör böðull.
Ég á eina skvísu sem er farin að sína þessa fíkn ansi ung, ég fór því þá leið að ég keypti klukku með rauðum skífum sem hægt er að stilla tímann myndrænt. Þannig takmarka ég tímann hennar í tölvunni og getur hún og allir aðrir heimilismenn fylgst með því hvað tímanum líður, en hún fær max 30 mín á dag.
Ég á einnig unglinga sem vilja vera á leikjasíðum og bloggsíðum, það er sama regla sem gildir fyrir þær nema að þær fá max 1 tíma í senn og max 2 tíma á dag.
Við verðum að takmarka börnin okkar og sína þeim aga í þessu eins og öllu öðru, ef þau fá valdið þá er hættan alltaf til staðar. Ég ráðlegg líka ÖLLUM foreldrum að hafa tölvur heimilisins á opnum rímum og einnig er sniðugt að slökkva á rádernum þegar tölvunotkunin á að hætta.
Þetta er alvarleg fíkn sem við verðum að hugsa um eins og allar aðrar fíknir
kveðja Supermamma
Skrópa vegna tölvuleikja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.11.2007 | 23:15
rúsínublogg
Jæja smá krúslufréttir
Skvísan tók upp á því eftir eina norðurferðina að heimta bleiju þegar hún svæfi, ætli hún hafi ekki fengið bleiju á nóttunni þar og fundist það mun þægilegra en þurfa að vakna sjálf og fara á klósettið
Nú jæja ég ákvað að leifa henni að fá bleijuna þá nóttina og hún hefur svo ekki tekið annað í mál eftir það, heimtar alltaf bleiju og ég jájá ég veit leift henni það, Stundum hefur hún pissað í hana og stundum ekki. En hún var sko löngu hætt að pissa á sig á nóttunni.
En í kvöld ákvað hún að hún vildi sko ENGA bleiju og ég bara mjög sátt, enda hefur hún ekki pissað í bleiju í marga daga.
Svo er nú annað krúslufréttir hún náttla er eins og spegilmynd af Dagný apar allt upp eftir henni og er eins og rispuð plata á eftir henni. Þegar hún vaknaði svo áðan til að fara á klósettið þá sagði hún ELÍSABET!!!!! jájá ég er barasta ekkert mamma lengur bara ELÍSABET því Dagný segir náttúrulega yfirleitt nafnið mitt. Fyrst fannst mér þetta nú pínkuponsulítið fyndið. En váá hún er að auka þetta all svakalega og er þetta nú eiginlega farið að líta hálf vandræðalega út ég er Elísabet ekki mamma og svo á hún pabba út um allan bæ, eða alla veganna heldur hún það haha
jájá svo ég útskýri kannski smá þá er skvísan mín á einhverfurófinu, fyrir ykkur sem þekkið mig ekki
kveðja súpermamma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.11.2007 | 22:56
letiblogg
ææiii ég er bara drullu löt núna. Var heima í allan dag með stelpunni og kom ansi fáu í verk. Finnst ég samt hafa verið á fullu í allan dag, ótrúlegt hvað maður getur verið á fullu en samt ekki afrekað neitt
Annars fórum við til læknis og skvísan með barkabólgu og þarf að taka því rólega, lítið hægt að gera og þurfum við bara að sjá hvort hún vinni ekki á þessu sjálf.
ég er þvílíkt að mikla skólaverkefnunum fyrir mér, ég bara kem mér ekki á gang, er náttúrulega að vinna mikið og eiginlega búin á líkamanum. Allsstaðar verkir og kallar líkaminn á hvíld. Það er svo sem ekki í boði og verður því að bíða betri tíma.
Mig langar að fara að byrja að skrappa og gera það sem ég ætla að klára fyrir jól en kem mér ekki einu sinni á stað í þeim málum, skrítið að vera svona........
En afrekaði að útbúa ætis styrkja handa Rebekku s.s. svona hólfað box sem ég er búin að setja mismunandi styrkja eins og kexbúta, snakk, morgunkorn, rúsínur, smá nammi skorið niður í litla bita og eitthvað fleira. Vona að þjálfarinn verði nú súper ánægð með þetta þegar skvísan kemur með boxið í leikskólann . Svo þarf ég að fara að setja upp dagsskipulagið, ææiii hef ekki verið dugleg með þetta en nota klukkuna samt mikið, lífið gengur alveg ágætlega og er Rebekka bara búin að vera ótrúlega ballenseruð. Kannski er það vegna þess að hún er búin að vera núna í að verða 6 vikur hjá mér án þess að vera í einhverju róti????
Annars er hún að þrjóskast með mömmu sína, hún leggst í neðstu tröppuna og ætlast til þess að ég haldi á henni upp stigann sem ég geri EKKI, vegna þess að bakið á mér er nógu slæmt fyrir, ég bíð henni hönd mína og ég leiði hana upp, en yfirleitt neitar hún því. Þetta er því svolítill barningur að koma barninu upp stigann og tekur þetta á. Ég má ekki gefa eftir og halda á henni upp því þá verður þetta eylíft vesen. Rebekka er það þung að ég bara get ekki verið að halda á henni upp stigann hérna, enda er hún full fær um að ganga hann sjálf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.11.2007 | 09:27
Útivinnandi, hvernig farið þið að?
Hvernig farið þið útivinnandi að?? ég byrjaði að vinna 7. nóv og eru það 10 virkir dagar, af þessum 10 dögum hef ég verið veik í 2 daga og stelpurnar í 2 Ég er hérna heima núna með Hörpu Katrínu sem er bullandi kvefuð og líklega með bullandi eyrnabólgu. Er því að bíða eftir símtali frá lækninum okkar, en hann er í aðgerðum. Hún hefur nefnilega verið hjá honum síðan hún var nýfædd eða í 11 ár og vill hann sko ekki að við förum eitthvað annað nema í neið
Þegar ég var lasin var karlinn í fríi en þegar börnin veikjast er hann að vinna er þetta ekki týpiskt!!!
Auðvitað á hann rétt á veikindadögum eins og ég, en það er bara erfiðara þegar hann vinnur svona 2 sólarhringa og 4 sólarhringa heima.
Stelpurnar mínar hafa alltaf verið miklir pestagemlingar svo ég er bara engan veginn að sjá að ég geti unnið eitthvað að viti? fyrir utan það reyndar að vera öryrki sjálf
Æiii þetta er bara púst dagsins, hef oft hugsað þetta hvernig útivinnandi mæður fara að, reyndar eru flest börn sem betur fer hressari en mín, en sama það eru mörg börn sem sækja allar pestar
kveðja Elísabet veikindasuga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2007 | 22:17
Vinna-heimilislíf-skóli!!
Jæja alltaf sama stuðið hérna. Er að vinna á fullu og svo við tekur heimilislíf og situr svo námið á hakanum :-( úfff ég er nú farin að vera ansi stressuð sko!!! En vonandi ´fer ég að fá tíma til að liggja yfir skólabókunum.
Núna er næsti hausverkur í skólanum að semja HLJ'OÐSK'ULPT'UR!!!! jájá ég sko af öllum!!! Hef sko ekki hugmynd hvernig ég á að fara að þessu og er eiginlega með hausverk yfir þessu öllu saman.
með Ba verkefnið þá er ég búin að ákveða að skrifa um meðferðarúrræði barna á Íslandi. Eyjólfur Örn ætlar að vera leiðsögukennari minn og á ég eftir að hitta hann til að fara betur yfir þetta
Elvar var ræstur út í vinnu í gær svo ég verð ein heima í 4 sólarhringa. ohhh hvað mér finnst þetta eitthvað tómlegt og erfitt. Er bara orðin svo góðu vön að hafa hann mikið heima, ég sem var alltaf ein...
Kveðja súpermamma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2007 | 23:56
Pabbi og ekki pabbi
Hvenær eru krakkar búnir að ná þroska i að greina foreldra sína frá ókunnugum? Ég man svo vel eftir stóru stelpunum þegar allir karlar voru pabbar, ég fór með þær í 11. 11 og dóttir mín yngri stóð föst á því að maðurinn í búðinni væri pabbi sinn. Alveg sama hvað ég þrætti við hana þá var þetta pabbi! Ætli hún hafi ekki verið rétt um 1árs mig minnir það!!!
Litla skvísan mín yndislega sem er að verða 3 ára í janúar er enn á þessu tímabili. Stundum er þetta eiginlega frekar neyðarlegt því hún er svo stór að fólk heldur að hún sé líka eldri en hún er...
Eitt sinn var ég með hana í bakaríi, við sátum saman mæðgurnar ég að borða hnetuvínabrauð og hún kleinuhring, þegar maður gekk inn í bakaríið sem var fullt af fólki og hún kallaði yfir sig með sinni sterku rödd "PABBI og benti á manninn sem var að koma einn" maðurinn leit í áttina á skvísunni með skelfinarsvip... þarna á þessu mómenti langaði mig að hverfa ofaní gólfið, hvað heldur fólkið eiginlega hérna inn? úúfff þetta er pínu neyðarlegt sko!! haha eins og barnið eigi pabba út um allan bæ...
En nú jæja síðasta tilfellið er núna í kvöld, við fórum í Smáralindina í dag, þar var hestasýning og alveg FULLT af fólki. Við settumst niður í stúkunni og voru stelpurnar þvílíkt spenntar yfir hestunum. Rebekka er svo hávær að það heyra allir þegar hún talar. En hún hafði sko mikla þörf fyrir að segja öllum að ÞARNA væri sko hestur og "sjáu hettinn" "hettur" "deihettar"(TVEIR HESTAR) "sjáu hettinn" o.s.frv. Athyglin þurfti sko að vera hjá henni og ef ég vogaði mér að horfa á hestanna og þá tók hún í andlitið mitt og sagði "mamma sjáu??"
Ég var nú farin að reyna að sussa niður í skvísunni því hún talar svo hátt að fólkið heyrði ekki orð sem karlarnir tölu í hátalarkerfið í Smáralindinni, skvísan yfirgnæfði þá sko leikandi
En þegar ég var nú búin að ná athyglinni frá hestunum og hún farin að róast aðeins yfir þessari upplifun uppgötvaði hún mann sem sat rétt fyrir neðan okkur, "pabbi" pabbi" "PABBI MINN!" fengu Smáralindagestir að heyra mjög reglulega, hún var sem sagt alveg sanfærð um að maðurinn sem sat þarna væri pabbi hennar, hann átti sko EKKERT sameiginlegt með Halldóri pabba hennar og ekki heldur Elvar, svo mér fannst þetta frekar mikið óþægilegt sko. Ég reyndi að leiðrétta hana en það þýddi ekkert hún vissi það að þetta væri pabbi hennar og TAKK FYRIR TAKK. Ég reyndi að dreifa athyglinni aftur og núna að hestunum aftur hehe Hún var mjög upptekin af þessum pabba og vildi bara fara til hand, "égvipabba" "ette pabbi minn"(ÞETTA ER PABBI MINN). Svo ég tók þá ákörðun að forða mér af vettvangi og endaði á fridays að borða
Það var sem sagt þreytt húsmóðir sem kom heim í kvöld og var fljót að koma skvísunum niður og leggjast í HEITT bað
kveðja súpermamma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2007 | 19:09
Góður dagur
Átti frábæran dag í vinnunni og er alveg að finna mig þarna held ég barasta, yfirmaður minn bauð mér meira að segja áframhaldandi vinnu haha en ég er nú ekki alveg að fara að vinna, en sagði honum samt að hann mætti kalla á mig ef þeim vantaði starfskraft. Ætlum að ræða þetta samt betur.
Ég er bara því miður ekki full heilsu og væri svo glöð ef ég gæti bara unnið fulla vinnu eins og fullfrísk manneskja. en það er bara því miður ekki í boði
Fór til læknis í morgun og fékk grun minn endanlega staðfestann og er komin á lyf, guð hvað ég vona að þetta virki á mig og hjálpi mér að takast á við ofvirknina.
Annars er ég að fara að vinna aftur í kvöld, er að fara að föndra með krökkunum svaka stuð hjá okkur hehe
læt þetta duga í bili, er á fljótferð
kveðja súpermamma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2007 | 19:45
Furðulegt
hvernig sumir eru!!!
Jájá ég átti góðann dag, byrjaði reyndar með því að elsta gelgjan vaknaði lasin, hún var nú ekki alveg til í að vera EIN heima og ÉG bara varð að mæta í vinnu og karlinn líka úúffff. Hvernig fara útivinnandi mæður að!! Ég var búin að vera lasin heima tvo daga og bara gat ekki hugsað mér að forfalla mig enn einn daginn! Eftir smá samningsviðræður ákvað ég að vera aðeins lengur heima og mæta seinna í vinnuna, var því mætt fyrir klukkan 10 í stað 8. Svo samdi ég við frænku um að taka hana með sér heim úr vinnunni klukkan 12 svo skvísan var nú bara ein heima í 2 tíma.
Átti góðann dag í vettvangsverkefninu og held barasta að ég sé alveg að finna mig í þessu starfi. Eftir vinnudaginn tók smá smsþras við minn barnsföður, ótrúlegt hvað það getur verið slítandi.. Fór í smá útréttingar og leið leiðin svo heim.
Mér var nú orðið ansi mikið mál að komast á salernið og rauk því upp stigann með fullar hendur af innkaupapokum, göllum, töskum og tilheyrandi. Yngsta skvísan sem er nú ekki alltaf sú glaðasta svona seinni part dags, lagst í stigann í sínum mótþróa og neitaði að ganga lengra. Ég kallaði á skvísuna og sagði henni að koma, en hún vældi eitthvað og ég meira að segja reyndi að kaupa hana með ís þar sem ég var nú hvort eð er búin að lofa honum. En mín lét sig ekki eins og henni einni er lagið og þegar ég kallaði til hennar í annað skipti kom ónefndur maður út úr einni íbúðinni og spurði mig hvað gengi nú eiginlega á hérna??? þvílíkur mengunarháfaði sem þetta væri og ég ætti að koma barninu inní mína íbúð. Ég reyndi að halda ró minni og sagði honum að ég væri nú bara að kalla á barnið að koma upp og hún væri nú ekki að hlíða mér. taktu barnið inní þína íbúð og taktu á vandamálinu þar ekki hér á ALMENNINGSGANGI!!! ég spurði hann hvort þetta væri svona mikið vandamál og hvort það væri nú ekki mengungarháfaði frá íbúðinni hans þar sem endalausar framkvæmdir eru þar og búið að vera síðustu vikur fram á kvöld. ÞAÐ ER EÐLILEGT EN ÞETTA ER EKKI EÐLILEGT!!!
Díses hvað ég reiddist, ég tók barnið mitt yndislega og fór uppí MÍNA íbúð!!! ég hugsaði reyndar eftir á að þessi einstaklingur hlýtur að vita lítið um börn, ég sagði honum meira að segja að barnið mitt væri ekki eins og öll börn og því væri þetta eitt af hennar "köstum" sem var NB ótrúlega lítið og þægilegt í þetta skipti!!!
jæja þá er ég búin að pústa, skil ekki svona fólk, það er ekki eins og börnin mín séu á ganginum hérna alla daga. Þau nota ganginn EKKI neinn nema að fara út og inn heima hjá ´sér!
kveðja súpermamma pirraða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2007 | 20:26
áhættuhegðun
já það er það efni sem ég er að lesa og já við skulum segja REMBAST við að lesa í gegnum úúfffff puúffff ég þýði sömu orðin aftur og aftur og aftur og aftur og aftur haha en aldrei síast þetta inn í minn litla heila hehe kannski smá ýkt en svona líður mér.
Sem betur fer á ég svo YNDISLEGAN karl, hann er búinn að sitja hérna sveittur með mér og lesa skólaefnið, hann er svo yndislegur þessi elska Held að hann eigi alveg skilið að útskrifast með diploma þegar ég útskrifast með B.a. haha enda hefur hann þá farið í gegnum 2 ár með mér... kannski spurning um að leggja þetta fyrir nefnd haha???
Annars var ég að blogga á Rebekku síðu þið sem fylgjist með þar.
Ég er búin að vera með magapest og því ekki geta mætt í vinnu en mun mæta í fyrramálið VONANDI!!! hlakka til
kveðja supermamma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2007 | 23:23
Frumburður minn 11 ára
Frumburður minn 11 ára í dag þann 11.11
ÓTRÚLEGT að litla stelpan mín er orðin 11 ára hehe ég man svo vel eftir því þegar ég komst að því að ég væri orðin ólétt haha svo skipulagt og var búið að bíða eftir henni ansi lengi en samt var ég nú BARA 18 ára að verða 19... jájá ég var svo fullorðin, flutt að heiman farin að búa með manni sem var 8 árum eldri en ég, við áttum okkar eigin íbúð og vorum svo tilbúin til að eignast saman barn :-)
Harpa Katrín kom í heiminn með látum, fyrstu verkirnir voru um 16 leytið, ég fór uppá spítala rétt fyrir klukkan 18 og skvísan var komin í heiminn klukkan 20.09 Mamma hringdi fljótlega eftir það uppá spítala til að fá fréttir af mér og var henni bara tilkynnt að barnið væri komið í heiminn haha hún sem var pottþétt á því að ég myndi færa henni barnið í afmælisgjöf, hún á nefnilega afmæli á morgun 12 :-)
Skvísan var veik frá fæðingu, hún grét á spítlanum úr magakvölum. Grét á nóttunni, grét á daginn og grét á kvöldin og ég "unga" mamman gekk með hana á milli lækna og fékk alltaf ungamömmumóment "þetta lagast, þú bara kannt ekkert á barnið" váá hvað ég verð pirruð þegar ég hugsa um þennan tíma, barnið mitt þurfti að kveljast og kveljast í 3 mánuði og við tók eyrnabólgur sem hófust þegar hún var rétt 9 vikna og eru ENNNN að skjóta sér upp. Þetta var tæp 4 erfið ár fyrir okkur báðar mæðgurnar, inn og út frá læknum, inn og út af spítölum og þess á milli veikar heima. Við áttum sem betur fer 3 yndislega lækna sem við gáum farið til hvenær sem er, þurftum iðulega ekki að pannta tíma heldur var nóg að mæta á staðinn. Ég fékk meira að segja gsm síma og heima síma hjá tveim þeirra. Þessir læknar reyndust mér vel og reynast vel ennþá í dag.
Seinni ár hafa nú verið betri sem betur fer, verið frekar heilsuhraust og frísk, vaxið og dafnað eins og heilbrigt barn. Guð hvað það er yndislegt að eiga svona yndislegar dætur, ég er svo rík ég á 3 yndislega gullmola og fékk svo einn gullmola með karlinum mínum. Ég er svo rík :-)
Dagurinn er búinn að vera góður, fórum í afmælisveislu til Emelíu Guðrúnu "ómammagefmérrósíháriðámér" hehe þetta var svo krúttlegt þegar ég spurði Rebekku í morgun hvort við ættum að fara í afmæli, þá var hún snögg að svara "já emígurúnómammagemerosiáridámér" afmælisbarnið söng sem sagt lagið Ó mamma gef mér rós í hárið á mér á Söngvaborg og núna á hún þetta skemmtilega nafn sem mér finnst náttla frábært að skvísan mín hafi tengt þetta saman :ö) hún er svo klár.
Eftir afmælið fóru stóru stelpurnar á tónleika með Magna og Jóhönnu Guðrúnu og þaðan fórum við að ná í Dagný á flugvellinn og í Smáralindina til að fara út að borða í tilefni dagsins
Eigið góða viku elskurnar
Kveðja súpermamma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
8.11.2007 | 20:24
Komin heim frá USA og byrjuð að VINNA!!!
Jæja kaupæðisferðin mikla búin og ég kom með ansi stórar og ÞUNGAR töskur heim. Að sjálfssögðu vildu tollararnir vita fyrir hvað mikið ég verslaði og eftir smá spjall sendi hann mig með miða í rauða hliðið og sagði mér að borga tollinn
Þið trúið ekki hvað ég var fegin þegar ég gekk svo loks í gegnum hliðið og þeir vildi ekkert skoða HVAÐ ég verslaði, því ég held að þeir hefðu hlegið ansi mikið haha því uppistaðan á því sem ég verslaði var HELLO KITTY, DÓRU dót og alls konar STYRKJA fyrir atferlisþjálfunina hennar Rebekku í leikskólanum. Jájá og ekki má gleyma FÖNDRINU, sem var ansi mikið og var ég fljót að koma því hér í kassa og hillur svo ENGINN sæi hvað ég verslaði mikið haha Karlinn heldur því fram að ég sé skrappfíkill haha ég held að hann hafi nú alveg rétt fyrir sér.
Annars er ég byrjuð í vettvangsnáminu og er ég að vinna á Stuðlum, gengur bara ótrúlega vel og held að þetta henti mér bara súper vel...... Maður er nú ekki alltaf skemmtilegur en ég held nú samt að krökkunum líði ekkert illa með að hafa mig þarna til að skipta mér af þeim, þau eru öll yndisleg.
Þetta eru því strembnar vikur framundan vinna, ritgerðarskrif, lestur, hugsa um börnin, læknisheimsókn, teymisfundur, ferð í Skálholt og þannig get ég endalaust talið upp áfram
Ætla að halda áfram að undirbúa morgundaginn
knús og kram súpermamman
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2007 | 11:40
USA á MORGUN!!!
jájá bara morgundagurinn hehe.... ég er orðin ótrúlega spennt og ætla nú reyndar að reyna að vera skynsöm í kaupunum, en hahaha kann ég það??
Annars er skólinn minn alveg að gera út af fyrir mér núna, þessar ensku bækur sem við eigum að lesa eru ekki alveg vinir mínir, SAMT var ég í 4 vikur úti í námi í sumar Liggur við að ég þurfi bara að flytja í hálft ár til að reyna að ná þessari blessuðu ENSKU!!!! en ég get það nú ekki :-)
Ætla að halda áfram að læra
kveðja súpermamman
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Af mbl.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 73900
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar