31.10.2007 | 01:35
Lokaverkefni B.A.
Jæja þá er það hausverkurinn þessa daganna úúffffppppppúúúúfffff
Þetta er sko ekki auðveld ákvörðun, er búin að fara í marga hringi og fer enn!!!!
Ég er helst að hallast að einhversskonar könnun/rannsókn/úttekt og þá eitthvað sem tengist vímuefnum/afbrotum.
Það sem ég er eitthvað að spá í er:
- Rannsókn á vímuefnaneyslu í grunnskólum - sem sagt upp í 10.bekk en ekki í framhaldsskólum. Alltof stórt verkefni að taka það líka fyrir mig eina.
- tengsl afbrota og vímuefnanotkunar
- hvernig er staðið að meðferðarmálum/úrræðum fyrir ungmenni í vímuefnaneyslu á Íslandi?
- Já og áfram í þessum dúr, einhverjar hugmyndir???
Ég er að falla á tíma, þarf að vera búin að ákveða mig og einnig að finna leiðsögukennara fyrir 12. nóv!!! svo endilega kommentið á þetta og hvað haldið þið að henti mér best og hvað getur nýst fyrir þjóðfélagið??
kveðja Súpermamman
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
30.10.2007 | 00:32
Föndra
Ohhh mig langar svo að föndra, hvað er með þessa löngun, hún verður alltaf svo sterk þegar ég get engan veginn leift mér að föndra haha. Er ég sem sagt orðin fíkill??? stend ég þá undir nafni sem elistef skrappfíkill
Annars er kennslulota núna, maður er alltaf hálf dasaður á svona dögum og ætti því að vera löngu komin í háttinn. En neibbb ég er að bíða eftir að samnemandi minn sendi mér sínar glærur svo hægt verði að setja þetta í einn pakka sem við eigum að KYNNA á morgun úúffffppppúúffff
Þar sem klukkan er orðin 12, þá eru BARA 4 dagar í USA og ég er komin með í magann, því ég á eftir að gera SVO MIKIÐ!!!!! áður en ég fer út....
kveðja súpermamma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.10.2007 | 00:22
Laugardagslögin!!
Jæja horfðu þið á lögin á laugardagskvöldið? Ég missti af þættinum, en komst svo af því að ástin mín eina var bara að syngja þarna hahaha nú farið þið að hlæja..... nei nei hann kom ekkert fram og vissi ekki einu sinni sjálfur að rödd hans myndi skreyta þáttinn
Ég horfði svo á endursýninguna í dag sunnudag og þá er þetta þannig að í upphafi þáttar er verið að kynna höfundanna. Einn höfundurinn gaf út plötu með ástinni minni fyrir um 2-3 árum síðan og var í kynningunni notað lag eftir höfundinn sem Elvar söng... "þetta er stuðmannalag.... ..." okkur fannst þetta nú pínu skondið og auðvitað gáfum við Hjörleifi okkar atkvæði, en lagið hans komst ekki áfram.
kveðja Súpermamma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.10.2007 | 15:15
USA
Jæja núna eru BARA 6 dagar til USA, ég er sko komin með LANGAN lista, bæði föndurtengt og jólagjagtengt hehe maður verður að nýta sér svona tækifæri
Panntaði af tveim heimasíðum í síðustu viku og lét senda á hótelið, ætlaði nú að pannta af fleirum en gaf mér ekki tíma í það.
Ætlaði líka að senda myndir í framköllun, en ég gaf mér EKKI heldur tíma í það, svo að ég ætla að skrifa myndir á CD og fara með í framköllun í walmart eða á einhverjum þannig stöðum hehe
Annars bara spenningur í gangi, ég ætlaði mér nú að gefa mér tíma í að fara í gegnum föndrið og tína til pappír og fleira handa nýju skröppurunum í kringum mig en jæja ég held að það verði að bíða betri tíma haha
Elsta gelgjan fékk magapestina í nótt og er mega pirruð hérna núna, segist vera hress en vælir yfir því að vera svöng, en langar svo ekki í neitt sem er í boði...... ekki auðveld sem sagt!!!
Við erum svo að fara í 2 ára afmæli, sem byrjar kl 16.00. Fósturdótturin átti nú að vera komin í borgina á þessum tíma, en mistök voru í bókuninni svo að hún kemur ekki fyrir en 16.45 en það er bara æðruleysið á þetta er það ekki??? svo við mætum rúmlega klukkutíma of seint í AFMÆLIÐ.... ógó fúlt þar sem ég vil vera STUNDVÍS og þoli ekki að þurfa að vera sein....
jæja læt þetta duga í bili
kveðja SÚPERMAMMAN
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.10.2007 | 13:15
Svo stolt
Af mínu forsetamerki sem ég fékk fyrir 13 árum. Þá var það hún elskulega Vigdís okkar sem afhenti okkur vinkonunum forsetamerkið.
Einu sinni skáti, ávalt skáti. Þetta á sko við, því fyrir 11 árum hætti ég sjálf að starfa í skátunum en ég er samt alltaf skáti og verð það alltaf
Eru enn svona fordómar í garð skáta eins og voru þegar ég var ung??? haha ég er enn ung en jamm það eru 13 ár síðan ég gekk stollt upp að altari á Bessastaðakirkju og fékk merkið góða á búninginn minn. Mig minnir meira að segja að ég hafi fengið svaka flott númer en humm man það ekki eins og er, þyrfti að fara að grafa upp þessi gögn mín
kveðja Súpermamman
Skátar taka á móti forsetamerkinu á Bessastöðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.10.2007 | 01:09
jólakortafjöldaframleiðsla
Jæja þið getið mynd af kortunum sem ég föndraði í kvöld í albúminu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2007 | 22:25
Eitt ÁR!!!
Jæja núna um þessar mundir er eitt ár síðan ég fór að spjalla við ástina mína, já í gegnum NETIÐ!!!
Við byrjuðum á skilaboðum í gegnum netið án þess að ég gaf upp mitt eigið nafn, svo gaf ég honum upp auka MSN addressuna mína haha og við spjölluðum þar í gegn, svo var að færa hann á mitt ekta MSN, en nokkrum dögum síðar fór ég norður á Krók og gerði mér lítið fyrir eftir MÖRG grátbeðin sms að fara alla leið á Húsavík til að hitta gripinn haha þetta var allt frekar skrítið, fyndið og stressandi í bland!!!
Þar sem ég á vinkonu á Húsavík og búin að fá ALLAR þær upplýsingar sem ég gat um ástina mína þá ákvað ég að slá til og kíkja í heimsókn til "vinkonu" minnar haha, samdi við múttu að passa og brunaði á Húsavík....
Með STRESSHNÚT í maganum alla leiðinni en líka tilhlökkun, í minningunni held ég að ég hafi skolfið alla leiðina haha.
Ástín mín beið svo með steik, brúnaðar kartöflur og salat heima hjá sér, búinn að koma dóttir sinni niður og bauð hann mér því í mat híhíhíhí
Nú eins og þið vitið þá var ekki aftursnúið, við smullum saman og já bara eins og við höfum alltaf þekkt hvort annað, getum sko talað um ALLT sem er svo gott!!!
Við eigum marga daga sem eru frekar táknræddir fyrir okkur haha svo við vorum nú að hlæja af því hvaða dag við eigum að halda uppá, ég held að ég fari nú bara eftir þeim degi sem ég keyrði á Húsavík haha en það var 3. nóv 2006!!
Ég elska þennan mann út af lífinu og sé bara ekki líf mitt án hans, ég held að ég hefði ekki meikað allt það sem er búið að ganga á nema að hafa hann hjá mér, hann er svo yndislegur og styður mig í einu og öllu. Er svo duglegur að hrósa mér og það heldur mér alveg gangandi þessa daganna.
Jæja í kvöld setti ég JÓLADISK í græjurnar haha já ég veit ég get stundum verið klikkuð!!! er búin að vera að föndra JÓLAKORT og fengur gelgjurnar líka að föndra með mér í kvöld
kveðja Supermom
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.10.2007 | 10:35
Ráðagóðir foreldrar
Sæl verið þið
Jæja við ástin mín erum á námskeiði hjá GRR sem heitir ráðagóðir foreldrar og er haldið fyrir foreldra barna með þroskafrávik. ÞETTA NÁMSKEIÐ er bara SNILLDIN EIN!!!
Eftir fyrsta kvöldið gekk ég út um 60kg léttari haha, bara ef það hefði sést á mér!!! þvílíkur léttir að heyra í 9 öðrum foreldrum sem hafa nákvæmlega sömu sögu að segja úúffff púúffff ég er ekki geðveik og ég er ekki að að gera hlutina öðru vísi þeir eru svona!!!! nei nei segi svona, en þetta er bara frábært námskeið og svo gott að geta spjallað um það sem við erum að ganga í gegnum. stigin sem við foreldrarnir ganga í gegnum og hvað sumir geta stoppað í afneituninni og vilja ekki taka á einu né neinu.
Við fáum alltaf að vita það aftur og aftur þar að segja ég og ástin mín að við erum að gera rétta hluti, ég fæ reglulega og oft hrós um það sem ég hef verið að gera fyrir Rebekku, því það er alveg ljóst að ef ég hefði ekki gripið inní þá væri Rebekka ekki í svona góðu standi og ég er að sitja öll þessi námskeið sem taka tíma og kosta peninga bara fyrir BARNIÐ MITT sem ég vil gera allt fyrir.
Það er líka gaman á þessu námskeiði, við getum alveg hlegið okkur máttlausa stundum þegar aðrir eru að segja frá sínum reynslusögum, oft eru þær bara skoplegar en líka eitthvað sem við höfum sjálf gert nákvæmlega eins!!
Ég er á fullu í verkefnaskilum og er komin með í magann yfir áhættuhegðuninni úfff pppúúffff er ekki að skilja þessa bók :-( Og ég á að skila ritgerð úr efni úr bókinni núna í nóv :-(
Svo eru 9 dagar í USA og ég komin með LANGANN innkaupalista OMG ég redda bara vísa þegar ég kem heim haha
nú jæja knús og kram í bili, já og kommentið þið nú endilega svo ég viti hverjir eru að lesa hér :-)
kveðja súpermamma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.10.2007 | 01:22
ógó þreytt
Jæja skólinn, heimilið, börnin og allt það alveg að gera út af fyrir mér úffff púúffff þetta er mikil vinna á köflum :ö)
Í DAG hugsaði ég í fyrsta skipti síðan ég ákvað að ég ætlaði mér að fara í framhaldsnám að mig langaði að taka mig árs frí, eitt ár FRÍ sem mig langar að NJÓTA þess að vera heimavinnandi MAMMA, hafa engann skóla hangandi yfir mér og engin verkefni eða próf.....váá hvað þetta er skrítin tilfinning, ætli þetta sé ekki bara smá skólaleiði kominn??? Kannast einhver við þessa tilfinningu?
Ég sé þetta alveg í hyllingum, heimilið alltaf hreint og fint, ég hef nógan tíma fyrir sjálfan mig, ræktina, snyrtingar, vinina og allt það. Hef nógan tíma fyrir börnin mín, get notið þess að eiga rólega stund með þeim ÁN samviskubits, ég get sest fyrir framan TV eða annað með karlinum mínum og sitið þar KJURR vegna þess að ég þarf ekkert að læra hahaha haldið þið að ég muni geta þetta??
Annars með fíkniefnamálið. Þar er Einar Jökull titlaður sem höfuðpaur málsins, strákurinn já ég leifi mér að segja strákur, er fæddur áttatíu og eitthvað er titlaður sem höfuðpaur NOT!!!! ég held að það séu ansi STÆRRI og STERKARI menn sem standa á bak við þetta en stráklingur...... jæja þetta er mín skoðun og þarf ekki að endurspegla mat þjóðarinnar
Núna er ég alveg að SOFNA og ætla mér því að koma mér í háttinn, ritgerðarskrif hefjast ekki seinna enklukkan 9 í fyrramálið
kveðja Súpermamman
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.10.2007 | 19:41
Afmælisstúss
Jæja
Hér er bara allt gott að frétta, búin með afmælisstúss í bili og skólinn og daglegt líf tekið við.
Við vinkonurnar lágum hér afvelta í dag að éta afganga frá því í gær á meðan börnin léku sér og rusluðu til haha en þetta var samt nær.
Yngstu skvísurnar hafa verið að sýna alveg frábæran leik undanfarið, það er svo frábært að sjá þær leika saman, fara í hlutverk og allt, eru nú samt ekki komnar á mins og þins tímabilið en samt spjalla aðeins saman í leiknum
Það styttist óðum í USA ferð, ég er alltaf á leiðinni að fara að setja upp "innkaupalista" en æii gleymi því alltaf, rennur oft á dag í gegnum hugann minn "hei, ég þarf að kaupa þetta úti" jájá margt sem vantar og er tilvalið að nota þessa ferð í það.
Mér var hugsað út í smyglskútumálsins, þegar ég las frétt inná mbl.is í dag að símar hafa verið hleraðir í allt að 10 mánuði hjá þeim sem tengjast málinu, þið megið ekki misskilja mig ég er rosalega ánægð með að þessi efni náðust en mér er hugsað til fjölskyldu þeirra sem tengjast þessu máli. Ég þekki aðeins til foreldra eins og OMG hvað ég finn til með þeim, en það er nú bara þannig að þau hafa ekkert gert og geta ekkert gert. En hafið þið einhvern tíman hugsað út í það hvernig þið mynduð höndla svona ef börn ykkar myndu gera eitthvað svona og já lenda í viðjum áfengist og vímuefna. Nú veit ég ekki hvað elskulegi kærasti minn segir núna við þessari færslu minni, þar sem hann hefur nú reynsluna en ég er bara hrædd um að missa börn mín út í svona rugl, þær eru kannski sem betur fer enn ungar en já eldast samt jafn hratt og ég
Knús og kram
Súpermamman
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2007 | 08:36
Prinsessan 10 ára
Jæja skvísan mín orðin 10 ára gömul. Ég man svo vel eftir því þegar ég varð 10 ára!! Við vinkonurnar vorum svo stolltar og okkur fannst við vera orðnar svo gamlar híhí hálf tvítugar haha
Hún var vakin með afmælissöng og pakka í morgun, fékk Hello Kittý snyrtivörur og var rosa sæl og ánægð með það. Takk kærlega danaskvísa að redda mér hehe
Annars er bara LÆRDÓMUR í dag, ætla svo að leifa afmælisbarninu að baka köku þegar hún kemur heim og svo ætlaði ég að leifa henni að velja stað til að fara út að borða, en hún neitaði þvi og vildi fiskibollur í DÓS í matinn og svo ís með jarðaberjum, ananas og marssósu í eftirrétt haha góð matarsamsetning það
Annars kemur elskan mín heim á eftir, guð hvað ég er fegin. Það er sko meira enn að segja það að vera hérna ein með fjögur börn og að rembast við að LÆRA!!!
kveðja súpermamma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.10.2007 | 21:14
börnin ríkari en ég!
jæajæa .það hrúast hérna inn peningagjafir til stelpnanna svo þær eru orðnar ríkari en mamman og hún á eftir að halda uppá tvö afmæli og lifa út mánuðinn!!. Eins gott að karlinn minn eigi smá fjársjáð núna haha
En þeim skvísunum vantar nú ýmislegt sem kostar frekar mikið eins og kuldaskó og skíðaklossa, skíðaflísstuttbuxur og fleira. Svo þennan pening ætlum við að nota upp í þetta
litlu skvísurnar sofnuðu á skikkanlegum tíma, en ég ætla að fara að koma gelgjunum í háttinn. Það tekur stundum ansi langann tíma
kveðja Súpermamma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2007 | 20:50
verkefnavinna
Jæja þá neyddist maður til þess að vinna verkefni í dag, ekki seinna vænna. Þetta er nú að ganga ágætlega, ekki búin alveg fullt eftir sko!!
Skvísan mín litla sem er greind með einhverfurófsröskun ótilgreind fór í talþjálfun, hún brilleraði svona líka í þjálfuninni að Svaný spurði mig hvort hún mætti nota skvísuna sem mótel, hún væri svo flott og mikill sjarmör. Væri svo viljasterk í að læra og skemmtilegt að vinna með hana hehe. Ekki slæmt það. Því var fengin stelpa inn í þjálfunina með videovél sem myndaði þjálfunina sem eftir var. Þetta ætlar svo Svaný að nota á fyrirlestri sem hún mun halda um helgina
Enda er skvísan náttúrulega með þeim flottari og tala allir um það sem fá hana í athugun, þjálfun eða bara aðrir að hún er sko fljót að bræða mann, svo fallegt bros og svo skemmtilegt að vinna með henni þegar hún ER í stuði. ENNNN það er hún sko ekki alltaf. Oft er mikill mótþrói og engann veginn hægt að ná til hennar eða vinna með hana.
Svaný hafði svo orð á því að það væri greinilegt að ég móðirin hafi verið dugleg að vinna með skvísuna, því hún væri nú annað en skýrslurnar sögðu til um. En þetta er náttúrulega eins árs gamlar skýrslur, ég náttúrulega eins og mér einni er lagið dróg úr því og sagði að hún hefði fengið svo frábærann þjálfara og tekið svo miklum framförum í þjálfuninni. Þá var hún nú fljót að grípa fram í fyrir mér og segja. Þjálfarinn einn og sér vinnur ekki alla þessa vinnu, þú mátt ekki gleyma hvað þú ert að gera með skvísunni það er nefnilega kraftaverk Ekki slæmt að fá svona komment.
Annars komu gelgjurnar heim eftir skóla og fóru svo beint heim til vinkvenna sinna, ótrúlegt en satt þær eru nefnilega yfirleitt hérna heima hjá mér með fullt hús af skvísum.
Nú jæja ég rölti í leikskólann til að sækja 5 ára skvísuna, það var ótrúlega hressandi að ganga smá spöl, maður er alveg hættur að hreyfa sig.
Við komum svo hér heim og ég tók fram liti og litabækur handa yngri skvísunum og þær lituðu og teiknuðu listaverk handa mömmu sinni.
Svo kom gelgjurnar heim með 2 vinkonur með sér svo ég samdi við þær að passa skvísurnar og fékk ég mér smá lúr, ég var alveg úrvinda eftir að hafa vakað til 3 í nótt og vaknað klukkan 7 í morgun.
Ég bakaði svo pizzu handa þeim og eru litlu sofnaðar og stóru á leiðinni í háttinn og já ég er að fara að vinna hópverkefni í gegnum netið takk fyrir
kveðja Súpermamma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2007 | 00:34
Súpermamma
Jæja þá ætla ég að reyna að byrja að blogga eitthvað af viti.
Ég er ein af þessum mömmum sem eru oft kallaðar súpermömmur. Ég á tvær gelgjur, sú eldri er 11 ára og sú yngri 10 ára. Svo á ég eina fósturdóttur sem er 5 ára og eina tæplega 3 ára þrjóskupúka.
knús og kram súpermamman
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndaalbúm
Tenglar
Mínir tenglar
- Bloggið hennar Ingu, stofnanda samtakanna Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda - Reikningsnúmer 0305-13-303030 Kennitala 150462-7549
- Óskasteinar - grúbba fyrir foreldar barna á einhverfurófinu Spjallborð foreldra barna með þroskafrávik
Af mbl.is
Viðskipti
- Uppfærslan hafi mikla þýðingu
- Hafa lokið 4 milljarða fjármögnun
- Tilnefna í stjórn Kaldvíkur
- Sóttu 123 milljónir í fyrstu lotu
- Mikil áhætta að vera í forsvari fyrir fjármálafyrirtæki
- Þreifingar í gangi á milli Mýflugs og Norlandair
- Ölgerðin kaupir Gæðabakstur
- Skortsala mikilvæg fyrir verðmyndun
- Inga Sæland fyrir og eftir ráðherrastólinn
- Grallarar á bak við tilboðið
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 73900
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar