Leita í fréttum mbl.is

Ég er að fara útskrifast

haha mín fór í "hvatningarviðtal" til nema í námsráðgjöf í KHI, hún var svo elskuleg að taka mig "AÐ SÉR" hehe er sem sagt smá vettvangsverkefni fyrir hana í starfsnáminu.......  Þarna sannaðist enn og aftur hvað svona feedback hefur mikil áhrif...

Henni fannst ég bara vera komin mjög langt :-) (ég veit alveg að ég er ekki komin langt, en samt gott að heyra þetta haha)  og það væri bara fráleytt að ég myndi EKKI klára þetta.

Nú jæja ég lærði til 7.30 í morgun og svaf svo til 10.30 - 3 tíma svefn er alltof lítill og er ég því alveg að lognast útaf hérna í KHI

Ætla að læra smá meira og fara svo heim að SOFA!! lærdómur aftur í NÓTT

Elísabet jákvæða Grin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Hlustaðu á hrósið, njóttu þess og virkjaðu það til góðs.

Baráttukveðja

Þú klárar þetta með stæl.

Ragnheiður , 4.4.2008 kl. 13:19

2 identicon

Já var það ekki, er dómarinn í höfðinu á þér í yfirvinnu semsagt!

Þú getur þetta!!!

kveðja

Ofurskutlan

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 13:21

3 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Hæ snúlla... Langar aað deila með þér góðu ráði sem ég fékk frá einni sem er yndisleg.... Passlegur skammtur af lærdómi á móti passlegum skammti af hvíld og dekri er rétta uppskriftin.

Eftir góða göngu eða indiánabað er maður enn ferskari við að læra heldur en ef maður situr bara og lærir

Kristín Snorradóttir, 4.4.2008 kl. 15:38

4 Smámynd: Huldabeib

Jájá!!! Þú getur þetta alveg!!! Bara halda áfram og ekki hætta

Huldabeib, 4.4.2008 kl. 22:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elísabet Sóley Stefánsdóttir
Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Ég er ein af þessum súpermömmum, á fjórar skvísur, kærasta, vinkona, dóttir, systir og gæti talið endalaust upp

Styrktarreikningur Landsamtakanna Liðsmenn Jerico - samtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda eineltisofbeldis  - reikninsnúmerið er 1158-26-034147  Kt: 641008-0280

 

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband