Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Bókin um einhverfu!

Ég fékk senda bók í morgun, bókin um einhverfu, sýnist í fljótubragði þetta vera alveg frábær bók og gott tæki fyrir marga til að lesa.   Ég veit reyndar ekkert af hverju ég fékk þessa bók, það er önnur saga Wink  Þar sem ég hef engann tíma til að lesa þessa bók núna, á kafi í öðrum lestri þá bauð ég atferlisþjálfara yngstu dömunnar bókina að láni sem hún þáði með þökkum.  Ég hlakka til að lesa bókina þegar skólaverkefnum er lokið.

En já smá dæmisaga hérna um skvísuna mína yngstu. 

Við fórum á pizza hut að borða núna í kvöld, Rebekka sá strax barnastól með svona rauðum og gulum boltum fyrir framan sem hægt var að snúa.  Hún vildi fá þennan stól þó svo að hún væri náttúrulega alltof stór i hann.  Til að kaupa friðinn á Pizza Hut fullum af fólki leifði ég henni það.  Um leið og hún settist í stólinn þá uppgötvaði hún að það var spíta fyrir fæturna, en þar sem hún var of stór í stólinn og þá gat hún ekki sett þá þar, upphófst mikil vonleysi því hún ætlaði að sitja í stólnum en líka hafa fæturna þar sem þeir áttu að vera, mamman sá að það vantaði nú ekki mikið uppá svo hún tók hana úr strigaskónum og gat hún þá rétt svo komið sér á réttan stað.  Með fæturna í kremju skyldu hún sitja frekar en að vera með þær lafandi.  Boltarnir heilluðu og fengu þeir að rúlla hring eftir hring eftir hring í einhvern tíma.

Þegar maturinn kom fékk hún sinn mat en vildi tómatsósu, ég tók flöskuna sem var á miðju borðinu og gaf henni sósu en lagði hana "óvart" frá mér annarsstaðar, það sem meira var er að ég setti ekki lokið niður á flöskunni.  Ég fékk því að heyra hátt og skýrt þannig að flestir gestir pizza hut heyrðu að það ætti að loka tómatssósunni og bætti hún því svo við "ekki þarna, heldur þarna"  núnú allt er nú gert til að halda friðinn svo ég fór eftir hennar fyrirmælum Blush

Þegar maturinn okkar kom svo þá bað ég Hörpu um að skipta við mig sæti þar sem það raðaðist betur niður það sem við pönntuðum saman.  Ég skipti um sæti en NEI!!!!! skvísan gjörsamlega gargaði " EKKI SITJA ÞARNA, HELDUR HÉRNA!"  nei nei ekki breyta neinu systemi svo mín stökk aftur í sætið svo fólkið í kring fengi nú frið til að borða Halo

Þetta líf getur stundum verið svolítið snúið fyrir þessi kríli, en ég viðurkenni það nú alveg að hún fær nú ekki að stjórna dagsdaglega, en jájá svona til að koma í veg fyrir að fólkið á veitingastöðunum haldi ekki að ég geti ekki alið upp mín börn, eða að hún sé bara ofdekruð frekjudýr með því að taka frekju/brjálæðisköst ef hún fær ekki að stjórna þá velur maður það nú bara stundum að typla á tánum og leifa henni að stjórna ferðinni - stundum er það betra en ekki til lengra tíma litið FootinMouth

Ég var því fljót að láta mig hverfa þegar við vorum búin að borga og rauk út í skóla í ritgerðarskrif sem ég ætla s.s. að reyna að klára að mestu í kvöld!!

kveð að sinni

Elísabet


5 ára afmæli

Já Elvar átti 5 ára edrú afmæli í dag/gær 10.apríl.   Stelpurnar voru nú þvílíkt hneikslaðar á þessu tilstandi okka hérna haha ég gaf honum nýjan síma í "afmælisgjöf" þar sem ég er orðin ansi þreytt á því að ná aldrei í hann vegna þess að síminn hans er fastur á silent s.s. heyrist ekkert í honum. Sólveigu Birnu fannst þetta svo hneikslandi og eiginlega bara asnalegt :-)  En eins og Elvar sagði að þá er þetta miklu meira afmæli fyrir hann heldur en sjálfur afmælidagurinn.... 

Hún svo sem þekkir ekki þennan heim og veit ekki hvað þetta er mikill sigur og gleði fyrir alla.  Hún er náttúrulega bara 10 ára.

Annars tók ég mér frí frá skólalærdómi í kvöld, skelltum okkur á Ítalíu og svo á íslensku myndina í bíó og omg, við sváfum BÆÐI yfir henni!!! s.s. fær ekki góða dóma frá okkur, gátum flissað svona eitthvað aðeins inná milli en já ekki mynd fyrir mig.

Ritgerðin er komin í 39 blaðsíður og ég á samt FULLT eftir.  Er að bíða eftir svari frá Eyjólfi var að vonast eftir því að heyra frá honum í dag en það gerðist ekki svo ég vona að hann svari mér fljótlega á morgun.

Ætla að halda áfrma, er að grúska í tilfinningagreind og því sem Goleman segir, bara spennandi það.

kveðja Elísabet

 


hvað næst?

Jájá er mætt hér í KHI, svaf til klukkan 14 og fór svo til Grindavíkur að hitta OFUR BRYNJAR hehe eins gott að hann eða einhver nákominn lesi þetta ekki haha æiii það skiptir engu hann veit hvort sem er allt :-)  Þessi maður er BARA snillingur og það sem hann er að gera fyrir mig er bara snilld jájá þið megið alveg efast en það er bara ykkar mál :-)   Ef þið viljið komast í samband við OFUR BRYNJAR þá er ég með upplýsingar :-)

Annars fór ég svo á Þjóðarbókhlöðuna til að ná mér í enn fleiri bækur úfff er hérna með staflanna af bókum og OMG nenni þessu ekki.

já svo ég komi mér að fyrirsögninni á þessu bloggi HVAÐ NÆST??  Ég er að drepast úr TANNBÍNU já takið eftir TTTTAAAANNNNNPPPPPÍÍÍÍÍNNNNUUUUU í FYRSTA skipti á minni æfi er ég komin með tannbínu Crying  ég hef alltaf verið að furða mig á þessu þegar fólk talar um tannbínu við mig því ég hef bara ekki vitað hvað það er, en þar sem ég fór til tanna fyrir rúmum mánuði síðan og fékk skellinn. Vegna gigtarinnar sem er að hrjá mig og þeirra lyfja sem ég þarf að taka er ég búin að vera að kljást við munnþurrk og þar sem skortur er á munnvatnsframleiðslu þá eykst líkurnar á skemmdum og viti menn það voru nokkrar.   En ég var ekki farin að finna fyrir neinu og gat ekki fengið tíma hjá tannsa fyrir en í maí þá hafði ég engar áhyggjur.  Fann svo fyrir smá svona "kul" tilfinningu um helgina og jájá núna er ég bara með standslausan seyðing Angry og ekki virka verkjalyfin.

Ef þetta verður ekki betra á morgun þá verð ég bara að hringja í Hönnu tannsa minn og biðja hana að troða mér að, þetta er ekki ofanáleggjandi á alla hina verkina haha og ég að reyna að halda einbeitnigu.

Ætla að fara að halda áfram hérna, þýðir ekkert annað

kv Elísabet tannbína


jæja þetta gerist á skjaldbökuhraða

Ég hitti leiðsagnakennarann minn í dag og hehe hann er bara rólegur!!! Ég bennti honum á það að ég gæti sko ekki verið róleg og hana nú.... 

Á að skila honum í kvöld - lokaskil, mun skila honum í kvöld, en EKKI lokaskil :-)  Þetta eru fyrstu skil hehe hann hefur nefnilega ekki lesið staf í því sem ég er búin að skrifa ssjjiiiittttt pínu stressuð.....

Svo er að fá þetta lauslega yfirlesið frá honum á fimmtudaginn og keyri þá restinni í gegn og skila aftur á fötudag.  Hann mun svo skila mér ritgerðinni í lok næstu viku og jájá takið eftir!!! þá hef ég BARA helgina til að klára þetta.   Mánudagur-miðvikudagur er kennslulota og verkefna skil í fötlunar áfanganum.  Við þurfum svo að bruna norður ekki seinna en klukkan 13.00 á miðvikudag því AA- leikarnir verða settir klukkan 20.00.  Kem svo suður á laugardagskvöld SEINT eða sunnudag og svo eru LOKA LOKA LOKA LOKA LOKA skil á þriðjudeginum úfffff jájá ég ætti kannski að gera könnun?

Næ ég að skila lokaritgeðrinni og ná?
Næ ég að skila lokaritgerðinni og falla?
Næ ég ekki að skila lokaritgerðinni?

hahahaha jájá hver veit?  EKKI ÉG!!!

Ætla að halda áfram!!

kveðja Elísabet


jájá full bjartsýni

í dag...... en ekki lengur!!!!! já nú sveiflast ég eins og ég veit ekki hvað...

Komst á skrið í dag en er svo bara búin að vera að ÞJÁST eftir að ég kom heim,  Petí elskuleg las nú yfir það sem ég var komin með og leiðrétti náttúrulega FULLT af málfræði/stafsetningarvillum,  TAKK ELSKU PETÍ MÍN, þú gafst mér innblástur hér í vonleysinu....

Ætlaði að vera dugleg í lærdóm í kvöld/nótt en bara allt stopp og ég er líka bara orðin ÞREYTT.  Nenni þessu ekki og farin að hugsa um að fresta þessu bara og dúlla mér við þetta í sumar og skila ritgerðinni þá frekar frá mér sátt, heldur en í svona flýti Frown

Æiii en svo langar mig svo að útskrifast með skvísunum ohhh þetta er togstreyta dauðans hérna...

Á ég að gera það sem ég get og skila ritgerðinni inn þó svo að ég sé ekki fullkomlega sátt við hana?  Næ þá líklega að útskrifast á R'ETTUM tíma, afmælisdaginn minn og með MÍNUM GELLUM.....

Eða á ég að nota tímann í vor/sumar og vinna ritgerðina eins vel og ég get og skila henni þá frá mér sátt?  og Útskrifast þá frekar í október?

ææiii jájá svona líður mér núna!


Ef draumurinn í nótt/morgun........

myndi rætast þá væri ég í góðum málum Wink 

Ég sem sagt fékk tækifæri til að hitta alla þá helstu fræðimenn sem ég er að grúska í núna og rökræða við þá í eigin persónu haha verst að flestir þessir fræðimenn eru löngu komnir undir græna torfu og því fæ ég aldrei tækifæri hehe  Eða jú kannski í næsta lífi hahaha

En jájá ég lærði til 4 í nótt og náði aðeins að finna fræðilegar heimilidir til að sanna mál mitt eða þannig.  úffff ég viðurkenni það að ég er ansi kvíðin fyrir þessu öllu saman en vona innilega að ég nái að klára þetta... guð hvað ég verð þá glöð.

Sá í dagbókinni minni til mikilla skelfinga að ég á að sækja um masternámið í síðasta lagi á föstudaginn!! úffff ég sem ætlaði mér að fara beint í masterinn, hef engann tíma til að gera þessa umsókn og þá ferilskrá sem ég á örugglega að skila með!!  svo er ég líka orðin svolítið efins, á ég að fara í áframhaldandi nám eða ekki??  ég bara veit að ef ég fer ekki núna þá held ég að ég komi mér aldrei af stað aftur :-(  En eins og staðan er núna þá er ég líka orðin langþreytt en jú það er frí í sumar..  æiiiii veit ekkert hvað ég á að gera

kveðja Elísabet


Slappleiki dauðans!!

já það er sko bara slappleiki hérna, ég með dúndrandi hausverk dauðans og beinverki um allan skrokk.  Óglatt, lystarlaus og gullfoss í þokkabót Sick  það er s.s. einhver vírusskítur mættur hérna og ég því í sjálfsvorkun og ofaná allt stresssss dauðans!!!

Alveg sama hvað ég dæli í mig verkjatöflum, fæ mér frískt loft nei nei hausverkurinn versnar bara Crying  er því að fara í mína útgáfu á Indjánabaðinu hennar Kristínar haha eða bað með svona slökunar liðverkjaolíum og vona að ég verði eitthvað skárri, sjáum til!!

Þangað til næst

Elísabet magapínustressverkjakerlingin


Líkaminn segir STOPP

Ég svo sem vissi að það myndi gerast, hélt bara að ég myndi halda þetta lengur út, þið vitið þurfti aðeins fleiri daga sko Wink

En nei nei ég sofnaði VILJANDI með Rebekku á föstudagskvöldið, ætlaði mér svo að vakna þegar karlinn kæmi heim eftir spilamennskuna og nei nei ég svaf hin fastasta alveg sama hvað hann reyndi að vekja mig.  Svo man ég eftir því að hafa stillt símann og hann fékk að snúsast alla nóttina, karlinum til mikilla gleði hehehehe.

Vaknaði svo í gærmorgun bara ágætlega hress og kom stóru stelpunum á skíðaæfingu og ákvað svo að skreppa í Húsdýragarðinn og hitta mömmuhópinn okkar Rebekku, hef aldrei komist til að hitta þær svo ég ákvað að slá þessu upp í smá kæruleysi og eyða tíma með litlu skottunni minni.

Ég fann þar að ég var farin að vera eitthvað skrítin, svo KALT, sem er sko ekki ég aldrei KALT!!!  við tók svo hausverkur, beinverkur, meiri kuldi og ÞREYTA þegar ég kom heim.  Kíkti samt á 2 ára afmæli  KÓ litla frænda, en stoppaði nú stutt þar, skreyð svo uppí rúm þegar heim var komið og jájá ég VAR AÐ VAKNA!!!! 

Sem sagt enginn lærdómur þessa helgina eins og ég ætlaði mér Angry en vona að ég nái einhverju þreki og dugnaði í dag úfff púffff

knús og kram

Elísabet


Ég er að fara útskrifast

haha mín fór í "hvatningarviðtal" til nema í námsráðgjöf í KHI, hún var svo elskuleg að taka mig "AÐ SÉR" hehe er sem sagt smá vettvangsverkefni fyrir hana í starfsnáminu.......  Þarna sannaðist enn og aftur hvað svona feedback hefur mikil áhrif...

Henni fannst ég bara vera komin mjög langt :-) (ég veit alveg að ég er ekki komin langt, en samt gott að heyra þetta haha)  og það væri bara fráleytt að ég myndi EKKI klára þetta.

Nú jæja ég lærði til 7.30 í morgun og svaf svo til 10.30 - 3 tíma svefn er alltof lítill og er ég því alveg að lognast útaf hérna í KHI

Ætla að læra smá meira og fara svo heim að SOFA!! lærdómur aftur í NÓTT

Elísabet jákvæða Grin


úfff stress!!!

Jájá ég er bara hætt að sofa.. Fór að sofa kl 2 í nótt og klukkan 4.30 glaðvakanaði ég og gat ekki sofnað aftur þannig að mín fór fram og dritaði niður texta haha held að einhver hafi vakið mig með þessum krafti.  Var orðin ofþreytt klukkan 9 í morgun svo ég skreyð uppí rúm og svaf heila 2 tíma, vaknaði og ætlaði aldrei að sofna aftur.  Náði svo einum klukkutíma eftir hádegi.

Er búin að vera út í skóla í dag og já afrekað aðeins.  Er að fara að hitta aðstoðarkonuna mína á morgun og er svolítið kvíðin..  ææii veit ekki af hverju, er að telja sjálfri mér í trú um að hún muni henda ritgerðinni eins og leggur sig í hausinn á mér haha jájá maður er greinilega ekki að læra af öllum þessum meðferðarleiðum sem ég er að grúska í :-)

Eyddi núna svolitlum tíma í að setja upp ritgerðina eftir leiðbeiningum um lokaverkefnaskil.  Svona handavinna tekur alveg ótrúlega mikinn tíma.   Er komin í heilar 15 bls í heildina jájá en það er bara samt dropi í hafið sko!!

Ætla að halda áfram

kveðja Elísabet


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Elísabet Sóley Stefánsdóttir
Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Ég er ein af þessum súpermömmum, á fjórar skvísur, kærasta, vinkona, dóttir, systir og gæti talið endalaust upp

Styrktarreikningur Landsamtakanna Liðsmenn Jerico - samtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda eineltisofbeldis  - reikninsnúmerið er 1158-26-034147  Kt: 641008-0280

 

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband